Jökull - 01.01.2015, Síða 93
Jöklabreytingar 2013–2014
Langjökull
Geitlandsjökull – Samkvæmt skýrslu Bjarna Krist-
inssonar hefur jökulsporðurinn verið að hopa niður
brekku undanfarin ár. Landinu sem kom undan jökli í
ár hallar aftur á móti upp að jöklinum svo að nú hopar
hann upp brekku.
Ekki var komist til mælinga á Hagafellsjöklum
eystri og vestari.
Hofsjökull
Nauthagajökull – Hermann Leifsson sá um mælingar
fyrir Leif Jónsson haustið 2014 en samkvæmt skýrslu
þeirra þá hefur jökulinn aldrei verið blakkari.
Múlajökull suður – Líkt og fyrir Nauthagajökul þá
lýsa Hermann og Leifur jöklinum sem blökkum og
sléttum sem jökulsorfinni klöpp. Sporðurinn gengur
fláandi fram í sístækkandi lónið og erfitt að staðsetja
jaðarinn nákvæmlega. Sporðurinn verkar þunnur og
hugsanlega á floti.
Sátujökull við Eyfirðingahóla – Samkvæmt skýrslu
Braga Skúlasonar voru aðstæður til mælinga ekki upp
á það besta, SV strekkingur og lofthiti -6 til -7◦C.
Kominn var þó nokkur snjór en samt snjólítið á jökulj-
aðri. Bragi tekur einnig fram að eins og oft áður hafi
ekki verið gott að ákveða eiginlegan jökuljaðar vegna
malardreifar.
Sátujökull á Lambahrauni – Jökullinn sléttur en grár
yfir að líta samkvæmt skýrslu Braga Skúlasonar.
Mýrdalsjökull
Sólheimajökull – Í fyrra var austurtunga jökulsins sem
lá með Jökulhaus sunnanverðum alveg horfin. Sam-
kvæmt veglegri mæliskýrslu Einars Gunnlaugsson-
ar og Hildigunnar Þorsteinsdóttur rennur ekkert vatn
lengur frá jöklinum niður í dalinn sunnan við Jökul-
hausinn og streymir það nú allt meðfram og undir Sól-
heimajökul norðan Jökulhaussins.
Kötlujökull – er hulin þykku öskulagi við sporðinn.
Öskulagið einangrar jökulísinn og hindrar bráðnun.
Engin breyting mælist í ár en jökulsporðurinn rís mjög
brattur upp og er nánast lóðréttur á köflum.
Torfajökull
Samkvæmt skýrslu Hálfdánar Ágústssonar varð ekki
komist að Torfajökli sunnanverðum í ár, en mælt var
við norðurjaðar jökulsins. Leitast verður við að fara
að suðurjaðri Torfajökuls á næsta ári og svo að lág-
marki annað hvert ár, til skiptis milli ára, til mælinga
við suður- og norðurjaðar jökulsins.
Vatnajökull
Skeiðarárjökull vestur – Samkvæmt skýrslu Hannesar
Jónssonar haustið 2014 vantar varla nema árið uppá
að Súla flytji í Gýgjukvísl. Hannes segir haftið sem
stemmir af suður varla mikið yfir 100 m langt og 10
til 15 m hátt. Nú haustið 2015 bárust Oddi Sigurðs-
syni svo fréttir frá Hannesi um að Súla sé að mestu
komin í Gýgjukvísl.
Skeiðarárjökull austur – Mælingar allar gerðar með
fjarlægðarkíki yfir lón samkvæmt skýrslum Ragnars
Franks Kristjánssonar.
Morsárjökull – Samkvæmt lýsingum Ragnars Franks
Kristjánssonar hefur jökulinn rýrnað en mikið er af
„dauðum“ ís fyrir framan jökulinn, svo erfitt er að
greina sjálfan jökulinn frá „dauða“ ísnum. Ekkert lón
framan við jökulinn að norðvestanverðu.
Öræfajökull
Svínafellsjökull – Framskrið mælist á öðrum af tveim-
ur mælistöðum við Svínafellsjökul. Í skýrslu Svövu
Bjarkar Þorláksdóttur segir: „Litlar breytingar frá
fyrra ári. Jökulsporðurinn lægri en í fyrra og virð-
ist vera að þynnast þótt svo sporðurinn hreyfist lítið.“
Við hinn mælistaðinn, við Hafrafell, mælist 65 m hop
á tveimur árum og því ljóst að Svínafellsjökull er að
rýrna eins og aðrir jöklar. Við Hafrafell gengur jökull-
inn fram í lón og í mæliskýrslu segir: „Nýlega hafði
hlaupið úr lóninu þar sem ísjakar stóðu þar á þurru
landi. Heimamenn segja frá miklu vatni í Svínafellsá
nýlega – en þá voru líka hlýindi.“
Falljökull – Töluverðar breytingar eru á svæðinu við
sporð jökulsins frá ári til árs samkvæmt lýsingum
Svövu í skýrslu. Aurborinn hluti sporðsins (austar)
virðist enn hopa í samræmi við hvítan sporðenda
vestar.
Snævarr Guðmundsson gekk jaðar Fjallsjökuls
með GPS tæki og hnitaði jaðar Kvíárjökuls og
Hrútárjökuls af Landsat gervihnattamyndum. Þess-
ar mælingar eru mun víðtækari heldur en hefð-
bundnar sporðamælingar á stökum mælilínum þvert
á sporðinn. Það er þó mikilvægt að halda samfellu á
milli þessara mæliaðferða og fyrri mælinga á stökum
JÖKULL No. 65, 2015 93