Jökull - 01.01.2015, Side 112
GJÖRFÍ-nefnd: Þóra Karlsdóttir formaður, Ástvaldur
Guðmundsson og Jósef Hólmjárn.
Félagatal: Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir, Alexander
Ingimarsson og Valgerður Jóhannsdóttir.
Geymsla í Mörk: Alexander Ingimarsson.
Erlend áskrift: Björn Oddsson.
FÉLAGATAL
Skáðir félagsmenn um síðustu áramót voru alls 632.
Þar af eru heiðursfélagar 16, almennir félagar 480,
fjölskyldufélagar 18, námsfólk 78 og fyrirtæki, stofn-
anir og fréttastofur 40. Erlendir áskrifendur Jökuls eru
rúmlega 50.
RANNSÓKNIR
Þær rannsóknir sem Jöklarannsóknafélagið kom að
með beinum hætti á árinu voru á Vatnajökli og Mýr-
dalsjökli auk sporðamælinga sem unnar eru víða um
land af sjálfboðaliðum.
1. Afkomumælingar á Mýrdalsjökli. Farin var dags-
ferð á Mýrdalsjökul í maí og afkoma mæld. Vegna
vondrar tíðar og anna margra við eldgos í Holuhrauni
og umbrot í Bárðarbungu tókst ekki að vitja um stikur
í haust.
2. Vorferð 30. maí–11. júní. Ferðin var óvenju um-
fangsmikil þetta árið enda tvískipt. Fyrri hlutinn (30.
maí – 7. júní) var með hefðbundnu sniði en seinni
hlutinn (7. – 11. júní) var heldur fámennari og meiri-
hluti þátttakenda vísindamenn frá nokkrum stofnun-
um. Þokkalega viðraði fyrri vikuna en seinna hollið
hreppti frábært veður. Verkefni gengu almennt vel
og tókst að ljúka öllu sem áætlað hafði verið. Unn-
ið var að hefðbundnum verkefnum í Grímsvötnum,
Bárðarbungu og víðar. Þá var unnið að rannsókn-
um í Kverkfjöllum og vitjað um jarðskjálfta- og GPS
stöðvar sem komið hefur verið upp á nokkrum stöðum
á jöklinum, m.a. í tengslum við FutureVolc verkefnið.
Sett var upp net af jarðskjálftamælum á Skeiðarárjökli
í seinni ferðinni auk skjálftamælis á Bárðarbungu.
3. Sporðamælingar. Í byrjun febrúar höfðu skýrslur
skilað sér frá 29 mælistöðum. Hop er ráðandi eins og
undanfarin ár. Dauðís og lón valda sumstaðar vand-
ræðum við mælingar, því erfitt getur verið að ákvarða
með einhlítum hætti hvar jaðarinn liggur. Til lengri
tíma litið jafnast slíkar óreglur þó út.
Eins og jafnan er ekki fjallað um margvíslegar
jöklarannsóknir sem stofnanir hér á landi og erlendir
háskólar stunda. Sumt af þeim mælingum er þó unnið
með stuðningi af húsum félagsins.
Mokað frá skála í vorferð 2014. – Clearing snow from the hut at Grímsfjall during the spring expedition.
Ljósmynd/Photo. Anna Líndal.
112 JÖKULL No. 65, 2015