Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 16

Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 16
Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildverslun og verktöku. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildverslun og verktöku. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika Fyrirtæki með mikla möguleika Gamalgróin og vel þekkt raftækjaverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Mikill eigin innflutningur á ýmis konar rafmagnsvörum sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun og heildverslun. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildverslun og verktöku. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika Hlíðarvegur 11, 200 Kópavogi Opið hús mánudaginn 12. nóvember kl 18:00 – 18:30 Falleg 3. herb. neðri hæð í þríbýli með bílskúr og sérinngangi. Í íbúðinni eru 2 svefn- herbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús, borðstofa og stofa. Góðar suðursvalir. Bílskúr upphitaður. Heitt og kalt vatn. Frábær staðsetning. V. 42.9 m. Nánari uppl. Haraldur Guðjónsson lgf s. 783 1494 Haraldur Guðjónsson lögg. fast. s. 783 1494 halli@fasteignasalan.is OPIÐ HÚS Úganda Aðgerðasinninn, rithöf- undurinn, ljóðskáldið og fræði- maðurinn Stella Nyanzi hefur verið í fangelsi síðan í síðasta mánuði eftir að hún var ákærð í fyrra fyrir að hafa kallað Yoweri Museveni forseta „rasshaus“ á síðasta ári. Yfirvöld líta á að með ummælunum, sem féllu á Facebook, hafi Nyanzi brotið gegn lögum um stafræna áreitni. Nyanzi ákvað í gær að hafna lausn gegn tryggingu svo hún gæti verið áfram í fangelsi og kennt konum hvernig á að nota Facebook. „Hvað er eiginlega verið að rannsaka? Hvort Yoweri Museveni sé enn móðgaður? Ég ætla að fara aftur í Luzira-fangelsið og kenna kon- unum þar hvernig maður skrifar á Facebook svo þær geti skrifað eins og ég geri þegar þær losna,“ sagði Nyanza við dómara í Buganda Road í gær. Hún sagði jafnframt að það væri í eðli hennar, sem skálds og rithöf- undar, að skrifa. Hún hafi valið að beina skrifum sínum gegn ríkis- stjórninni. Nyanzi hefur reglulega kvatt sér til hljóðs í mótmælum gegn yfir- völdum. Á síðasta ári vakti hún athygli í baráttu gegn brottrekstri af skrifstofu sinni við Makerere- háskóla. Þá batt hún sig fasta á svæðinu og afklæddist fyrir framan tökumenn fréttastöðva. Auk þess að hafa barist af krafti gegn ríkisstjórn Yoweris Museveni hefur Nyanzi til dæmis barist fyrir því að úgandskar konur fái tíða- vörur gjaldfrjálst sem og fyrir rétt- indum hinsegin fólks. BBC fjallaði ítarlega um þessa baráttukonu á síðasta ári, eftir að hún var ákærð fyrir ummælin um forsetann. „Museveni segist enga peninga eiga fyrir tíðavörunum sem hann lofaði. Samt er hann að lofa því að koma upp eftirlits- myndavélum úti á götu. Hvílíkar lygar,“ hafði breska ríkisútvarpið til að mynda eftir Stellu Nyanzi í umfjölluninni. – þea Áfram í fangelsi vegna Facebook-ummæla Bretland Lýðræðislegi sambands- flokkurinn (DUP), norðurírski flokkurinn sem ver ríkisstjórn Íhaldsflokksins á Bretlandi undir forsæti Theresu May vantrausti, mun ekki styðja Brexit-áform May ef þau koma óbreytt fyrir breska þingið. Þetta sagði formaðurinn Arlene Foster í viðtali við írsku sjón- varpsstöðina RTE í gær. „Ef hún leggur það sem er að finna í bréfi hennar fyrir þingið og atkvæðagreiðsla fer fram þá munum við ekki geta stutt málið,“ sagði Foster en flokkur hennar hefur tíu þingmenn. Án þeirra hefur ríkis- stjórnin ekki meirihluta. „Hún þarf nú að ákveða hvort hún vilji feta áfram þennan stíg þar sem hún veit að hún hefur ekki stuðning lýðræðislegu sambandssinnanna tíu í Westminster,“ bætti Foster við. Rótin að óánægjunni er það sem Foster telur vera svikin loforð um landamæri Írlands og Bretlands. Téðu bréfi May til Foster var lekið til The Times og þar sagði May að málamiðlanir væru óumflýjan- legar. DUP-liðar hafa ítrekað farið fram á að komið verði í veg fyrir sýnileg landamæri á svæðinu. Sam- kvæmt BBC eru DUP-liðar einnig óánægðir með þá stefnu May að Norður-Írland gæti þurft að sam- þykkja reglugerðir innri markaðar ESB, vilji fólk koma í veg fyrir sýni- leg landamæri. Landamæramálið hefur reynst rembihnútur í samningaviðræðum ESB og Breta um útgönguna. Svo erf- itt virðist málið að mögulega gætu Bretar þurft að ganga út án samn- ings um framtíðarsamband við ESB. Fleiri eru óánægð með May. Í gær tilkynnti Jo Johnson, yngri bróðir Boris, um að hann segði af sér sem undirsamgönguráðherra. Brexit- málið var ástæðan en áður hafði eldri bróðirinn sagt af sér í utan- ríkisráðuneytinu af sömu ástæðu. Johnson sagðist ekki geta greitt atkvæði með áætlunum May þegar þær koma fyrir þingið. Kallaði þær sprottnar af hugarórum. „Að gefa þjóðinni tvo valkosti, annaðhvort yrðum við algjör undir- lægja eða hér myndi ríkja glund- roði, er versta frammistaða Bret- lands á alþjóðavettvangi frá því í Súesdeilunni. Vegna þess farsa sem Brexit-málið er orðið er það eina rétta í stöðunni að leyfa þjóðinni að eiga lokaorðið,“ sagði Johnson sem barðist gegn Brexit í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2016. „Boris bróðir minn, sem leiddi baráttuna fyrir útgöngu, er afar óánægður með tillögur ríkisstjórn- arinnar. Það er ég líka. Ég þekki það af eigin reynslu í samgönguráðu- neytinu að mikill glundroði myndi fylgja Brexit án samnings,“ bætti Johnson við enn fremur. thorgnyr@frettabladid.is Halda áfram uppreisn gegn forsætisráðherra Samstarfsflokkur Íhaldsflokksins getur ekki stutt Brexit-áform forsætisráðherr- ans. Litli bróðir Boris Johnson segir af sér vegna óánægju með störf forsætisráð- herra í málaflokknum. Segir stefna í algjöran glundroða vegna Brexit-málsins. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, á í miklum erfiðleikum með að halda stjórninni saman. NordicphoTos/AFp Ef hún leggur það sem er að finna í bréfi hennar fyrir þingið og atkvæðagreiðsla fer fram þá munum við ekki geta stutt málið. Arlene Foster, formaður Lýðræðislega sambandsflokksins Hvað er eiginlega verið að rannsaka? Hvort Yoweri Museveni sé enn móðgaður? Ég ætla að fara aftur í Luzira-fang- elsið. Stella Nyanzi, að- gerðarsinni, skáld og fræðimaður. 1 0 . n ó v e m B e r 2 0 1 8 l a U g a r d a g U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 1 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 5 A -5 A E 8 2 1 5 A -5 9 A C 2 1 5 A -5 8 7 0 2 1 5 A -5 7 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.