Fréttablaðið - 10.11.2018, Síða 20
Haukar - Skallagrímur 82-80
Haukar: Hilmar Smári Henningsson 23/7
stoðsendingar, Hjálmar Stefánsson 18,
Marques Oliver 16, Haukur Óskarsson 8,
Kristinn Marinósson 6, Matic Macek 6, Daði
Lár Jónsson 3, Arnór Bjarki Ívarsson 2.
Skallagrímur: Aundre Jackson 23/12 frá-
köst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 23,
Matej Buovac 18/8 fráköst, Bjarni Guðmann
Jónsson 8, Eyjólfur Ásberg Halldórsson 2/8
fráköst/7 stoðs., Davíð Ágústsson 2, Kristó-
fer Gylfason 2, Kristján Örn Ómarsson 2.
Leik Njarðvíkur og KR var ekki lokið þegar
Fréttablaðið fór í prentun.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Landsliðshópurinn
Markverðir:
Hannes Þór Halldórsson
Rúnar Alex Rúnarsson
Ögmundur Kristinsson
Varnarmenn:
Birkir Már Sævarsson
Hjörtur Hermannsson
Sverrir Ingi Ingason
Kári Árnason
Eggert Gunnþór Jónsson
Jón Guðni Fjóluson
Hörður Björgvin Magnússon
Ari Freyr Skúlason
Guðmundur Þórarinsson
Miðjumenn:
Rúrik Gíslason
Jóhann Berg Guðmundsson
Arnór Sigurðsson
Samúel Kári Friðjónsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Aron Einar Gunnarsson
Birkir Bjarnason
Arnór Ingvi Traustason
Sóknarmenn:
Gylfi Þór Sigurðsson
Alfreð Finnbogason
Kolbeinn Sigþórsson
Albert Guðmundsson
Jón Dagur Þorsteinsson
Valur í Hollandi
um helgina
handbolti Valur mætir hollenska
liðinu H.V. Quintus í 3. umferð
Áskorendabikars Evrópu um helg-
ina. Báðir leikirnir fara fram ytra.
Fyrri leikurinn, sem er heimaleikur
Quintus, fer fram í kvöld og sá síð-
ari, sem telst heimaleikur Vals, er á
morgun. Sigurvegarinn úr einvíginu
kemst í 16-liða úrslit Áskorenda-
bikarsins.
Valskonur hafa verið á góðri sigl-
ingu að undanförnu og unnið fimm
leiki í röð í deild og bikar. Valur er
á toppi Olís-deildar kvenna með 13
stig eftir átta umferðir.
Quintus er í 2. sæti hollensku
deildarinnar með tólf stig, tveimur
stigum á eftir toppliði VOC Amster-
dam. Quintus hefur unnið sex af
fyrstu sjö deildarleikjum sínum á
tímabilinu. – iþs
Lovísa Thompson, einn af lykil-
mönnum Vals. FréTTabLaðið/Ernir
Fótbolti Íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu leikur sína síðustu
leiki á árinu þegar liðið mætir
Belgíu í lokaleik sínum í Þjóða-
deild UEFA og svo vináttulands-
leik gegn Katar. Leikirnir fara báðir
fram á belgískri grundu en íslenska
liðið mætir Belgíu í Þjóðadeild
UEFA fimmtudaginn 15. nóvember
og Katar mánudaginn 19. nóvem-
ber. Emil Hallfreðsson, Jón Daði
Böðvarsson, Hólmar Örn Eyjólfsson,
Rúnar Már Sigurjónsson og Björn
Bergmann Sigurðarson geta ekki
tekið þátt í þessum verkefnum
vegna meiðsla. Þá tekur Ragnar
Sigurðsson út leikbann í leiknum
gegn Belgíu og verður ekki með í
leiknum gegn Katar.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði
íslenska liðsins, sem hefur verið
fjarri góðu gamni síðan á heims-
meistaramótinu í sumar kemur
inn í leikmannahópinn. Hann mun
taka þátt í leiknum gegn Belgíu,
en fær hvíld í leiknum gegn Katar.
Þá koma Arnór Sigurðsson, Hjörtur
Hermannsson, Eggert Gunnþór
Jónsson og Guðmundur Þórarins-
son inn í hópinn frá síðustu leikjum.
Erik Hamrén, þjálfari íslenska
liðsins, minnti á að sigur í leikn-
um gegn Belgíu gæti orðið til
þess að liðið hafni á meðal tíu
efstu þjóðanna í A-deild Þjóðadeild-
arinnar og það myndi þýða að liðið
yrði í hærri styrkleikaflokki en ella
þegar dregið verður í undankeppni
EM 2020. Þar af leiðandi leggi liðið
allt kapp á að fara með sigur af
hólmi í þeim leik. Þá hafi liðið ekki
náð í mörg hagstæð úrslit á þessu ári
og af þeim sökum muni það leggja
allt kapp á að vinna Katar þrátt fyrir
að um vináttulandsleik sé að ræða.
„Mér fannst ég merkja mikla
bætingu í síðustu tveimur leikjum
liðsins og við stefnum á að byggja
á því í komandi verkefnum. Mér
fannst liðið mun þéttara í varnar-
leiknum og við vorum skarpari í
sóknarleiknum. Við sköpuðum fjöl-
mörg góð færi til þess að skora fleiri
mörk en við skoruðum. Við bættum
okkur í föstum leikatriðum báðum
megin á vellinum,“ sagði Hamrén
í samtali við Fréttablaðið á blaða-
mannafundinum í gær.
„Hugarfarið var einnig allt annað
og það var gaman að sjá það. Við
þurfum hins vegar að bæta okkur
í varnarleiknum og bæta smáat-
riðin þar. Við erum að fá á okkur
of mörg mörk og þurfum að laga
það. Það er auðvitað slæmt að vera
án jafn margra lykilleikmanna og
raun ber vitni. Það er hins vegar
ekki í okkar höndum að koma í veg
fyrir þau. Þetta er hluti af fótbolt-
anum og ég vorkenni mest þeim
leikmönnum sem hafa orðið fyrir
þessum meiðslum,“ sagði hann enn
fremur.
„Það er hins vegar jákvætt að við
fáum Aron [Einar Gunnarsson]
aftur inn í liðið. Ég mætti honum
þegar ég stýrði sænska liðinu og
hef rætt við hann mikið í síma. Ég
hlakka mikið til þess að hitta hann
og fara yfir málin með honum. Það
verður gott að fá hann aftur inn í
liðið,“ sagði Svíinn um mikilvægi
þess að fá fyrirliðann aftur í hópinn.
„Við förum í þessa leiki til þess að
vinna þá og það getur skipt okkur
miklu máli að ná hagstæðum
úrslitum á móti Belgíu. Það munu
einhverjir leikmenn fá tækifæri í
leiknum gegn Katar, en þrátt fyrir að
við munum breyta byrjunarliðinu á
einhvern hátt ætlum við að fara með
sigur af hólmi,“ segir hann um kom-
andi verkefni. hjorvaro@frettabladid.is
Viljum enda árið með sigri
Erik Hamrén segir að sigur gegn Belgíu gæti komið íslenska karlalandsliðinu í fótbolta til góða í undan-
keppni EM 2020. Þá sé það mikilvægt fyrir íslenska liðið að enda árið með sigri eftir óhagstæð úrslit á árinu.
Fótbolti Klukkan 16.30 á morgun
flautar Anthony Taylor til leiks
hjá Manchester-liðunum, City og
United, á Etihad. Þetta er lokaleikur
12. umferðar ensku úrvalsdeildar-
innar og sá síðasti fyrir landsleikjahlé.
City hefur byrjað þetta tímabil
eins og liðið endaði það síðasta;
með því að vinna leiki og skora haug
af mörkum. Strákarnir hans Peps
Guardiola hafa unnið níu af fyrstu
ellefu deildarleikjum sínum og gert
tvö jafntefli. City hefur skorað 33
mörk og aðeins fengið á sig fjögur.
City hefur unnið sex leiki í röð í
öllum keppnum með markatölunni
23-1. Það er því yfir litlu að kvarta,
inni á vellinum allavega.
Það hefur gustað hressilega um
United, eða réttara sagt José Mour-
inho. En úrslitin í síðustu leikjum
hafa verið góð. United hefur unnið
þrjá leiki í röð í öllum keppnum.
Stærsti sigurinn kom gegn Juventus
á miðvikudaginn. Enska liðið lenti
undir en tryggði sér sigurinn með því
að skora tvö mörk undir lokin. Uni-
ted hefur raunar lent undir í fimm af
síðustu sex leikjum sínum en aðeins
tapað einum þeirra.
United lenti einmitt undir í síð-
asta leik sínum á Etihad en kom til
baka, vann og frestaði því að City
fagnaði Englandsmeistaratitlinum.
Það var einn af fáum hápunktum á
frekar auðgleymanlegu tímabili hjá
United sem endaði 19 stigum á eftir
grönnum sínum.
Guardiola og Mourinho hafa
marga hildina háð og oft hefur verið
stirt á milli þeirra. Þeir hafa þó að
mestu haldið sig á mottunni síðan
þeir tóku við Manchester-liðunum
sumarið 2016.
Lið undir stjórn Guardiola og
Mourinho hafa mæst 21 sinni. Spán-
verjinn hefur yfirhöndina í leikjum
þeirra á milli. Hann hefur unnið tíu
leiki, Mourinho fimm og sex sinnum
hefur orðið jafntefli. – iþs
Verður United fyrst liða til að vinna meistarana?
Leikmenn Manchester City eru í góðri æfingu við að fagna mörkum enda
skorað heilan helling af þeim á undanfarin misseri. norDiCpHoToS/GETTy
Erik Hamrén bíður enn eftir sínum fyrsta sigri sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. FréTTabLaðið/anTon
Hugarfarið var
einnig allt annað og
það var gaman að sjá það.
Við þurfum hins vegar að
bæta okkur í varnarleiknum
og bæta smáatriðin þar.
Erik Hamrén
Guðrún Brá
með forystu
golF Guðrún Brá Björgvinsdóttir er
með forystu eftir fyrstu tvo hringina
á lokamóti Evrópumótaraðarinnar.
Mótið fer fram í Barcelona á Spáni.
Guðrún Brá er á tveimur höggum
undir pari líkt og Anais Meyssonn-
ier frá Frakklandi. Guðrún Brá lék
á pari vallarins á öðrum hringnum
í gær. Fyrsta hringinn lék hún á
tveimur höggum undir pari.
Guðrún Brá er í 71. sæti á stiga-
lista Evrópumótaraðarinnar. Staða
hennar verður væntanlega mun
betri eftir mótið í Barcelona. – iþs
Guðrún brá er í góðri stöðu í barce-
lona. FréTTabLaðið/anDri Marinó
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 l a U g a r d a g U r20 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-7
D
7
8
2
1
5
A
-7
C
3
C
2
1
5
A
-7
B
0
0
2
1
5
A
-7
9
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K