Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 40

Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 40
Salvör Thorlacius ætlar að verja helginni með dóttur sinni sem er tveggja og hálfs árs og er búin að vera hjá pabba sínum í viku. „Við ætlum að baka pitsu og hafa það huggulegt; lita, perla, fara í sund og á róló. Hvernig er dæmigerð helgi? Ég, Elsa og kærastinn minn Magnús Árnason reynum að baka pitsur á föstudagskvöldum. Ef ég er ekki að vinna í Systrasamlaginu á laugardeginum förum við á róló og í sund og stundum í Húsdýra- garðinn. Stundum fáum við Maggi foreldra mína til að hafa Elsu yfir nótt og förum aðeins út á lífið, en annars erum við frekar róleg og eyðum helginni í notalegheit. Hvernig er draumahelgin? Ég upplifði hana um síðustu helgi. Í ullarsokkum við arineld í bústað á Þingvöllum með kærast- anum mínum og hundinum hans. Ég væri til í aðra svoleiðis drauma- helgi nema með Elsu dóttur minni líka. Hún mætti líka endast lengur og mín vegna vara í fjóra og jafnvel fimm daga. Hvað færðu þér í morgunmat um helgar? Það er mjög misjafnt. Stundum er ég rosalega öflug mamma og baka amerískar pönnukökur, sker niður ávexti og steiki beikon. Mér finnst líka æðislegt að búa til bygggraut með kanil, rúsínum og eplum. Þá bý ég til stóran skammt sem dugar í nokkra daga. Ég er líka með algjört æði fyrir vegan ost- sneiðunum, sem fást meðal annars í Krónunni en osturinn er fullkom- inn með tómötum á maískökur. Ég er pínulítið að missa mig yfir þeirri samsetningu núna. Sefur þú út? Já, en aðeins ef Elsa er hjá pabba sínum. Annars erum við vaknaðar upp úr átta. Vakir þú lengi fram eftir? Nei, ég reyni að gera það ekki. Finnst ég vera orðin of fullorðin í svoleiðis kæruleysi. Ég er hægt og rólega að reyna að breyta mér í A- manneskju en það gengur misvel og ég tek það í skorpum. Salvör vinnur í Systrasamlaginu sem hún segir falda perlu á Óðins- götu. „Þetta er lífrænt kaffihús og verslun með öllu mögulegu tengdu heilsu, jóga og sjálfsrækt.“ Hún er sömuleiðis annar eigandi Smástundar, fjölskyldukaffihúss sem hún og vinkona hennar Kol- brún Tara Friðriksdóttir eru með á teikniborðinu. „Hugmyndin kviknaði þegar við vorum báðar í fæðingarorlofi en þá fannst okkur vanta fjölskylduvænt kaffihús í sívaxandi kaffihúsaflóru borgar- innar. Markmiðið er að opna kaffihús sem er hugsað fyrir jafnt Vera Einarsdóttir vera@frettabladid.is Á fjölskyldukaffihúsinu sem Salvör og vinkona hennar Kolbrún Tara eru með á teikniborðinu verða kubbar með mismunandi lögun og tengingum frá “Imagina- tion playground” en þá er hægt að setja saman að vild og gefa börnum frá tveggja ára aldri tækifæri á að sleppa ímyndunaraflinu lausu. nordIcphoToS/geTTy Salvör leggur mikið upp úr góðri fjölskyldusamveru um helgar. hér er hún með dóttur sinni elsu Árna- dóttur. Árlegur og sívinsæll haust-basar Kvenfélags Langholts-sóknar verður haldinn á morgun, sunnudaginn 11. nóvem- ber, í Langholtskirkju. „Af mörgu verður að taka, líkt og endranær, og verða glæsilegir munir á boðstólum sem kvenfélag- inu hafa hlotnast frá fyrirtækjum í hverfinu, bæði nytjavörur, jóladót og ýmislegt fleira. Þá er ótalin hlutaveltan vinsæla en á henni er fjöldi góðra vinninga og engin núll!“ segir Anna Birgis, formaður kvenfélagsins. Freistandi kökuhlaðborð kvenfélagsins lokkar og laðar en gómsætt bakkelsið baka kven- félagskonurnar ásamt fleiri konum í hverfinu. „Við höfum fengið þjóðþekkta einstaklinga til liðs við okkur í baksturinn og gefa þeir kökurnar sínar á basarinn. Hver veit svo nema prinsessukakan og Pavlova verði á kökusölunni, og hægt verður að kaupa kaffi og meðlæti á basarnum enda þykir mörgum notalegt að tylla sér með vini yfir góðum kaffibolla og tertusneið,“ segir Anna sem á heiðurinn af víð- frægri prinsessukökunni. Allir sem koma að haust- basarnum gefa vinnu sína og fer ágóðinn að hluta til í að klára að yfirdekkja sæti kirkjunnar en einnig til líknarmála. „Við hvetjum hverfisbúa ásamt gestum og gangandi til að koma og gera góð kaup í aðdraganda jóla og styrkja um leið gott málefni,“ segir Anna, full tilhlökkunar. Haustbasarinn verður haldinn í safnaðarheimili Langholtskirkju, strax eftir messu, frá kl. 11.50 til 16. Prinsessukaka í Langholtskirkju Anna Birgis er for- maður Kvenfélags Langholtskirkju. Mynd/STeFÁn Við erum að leita að húsnæði sem hentar undir starfsemina. Við erum með allskyns forkröfur viljum m.a. bjóða upp á vel hannað rými með hentugri setuaðstöðu fyrir fólk með lítil börn, Salvör Thorlacius fullorðna og börn á öllum aldri, þannig að allir fái tækifæri til að njóta sín,“ segir Salvör. Hún segir kaffihús yfirleitt aðeins taka mið af þörfum fullorðinna. „Stund á slíku kaffihúsi er ekki alltaf jafn ánægjuleg fyrir börn og hún er fyrir foreldrana. Við vitum líka að flestir foreldrar hafa mörgum hnöppum að hneppa og með því að bjóða upp á aukna þjónustu fyrir lítil börn á kaffihúsi fá þeir svigrúm til að sinna sínum verkefnum á meðan börnin þeirra leika sér.“ En hvernig standa þessi áform? Við erum að leita að húsnæði sem hentar undir starfsemina. Við erum með allskyns forkröfur og viljum bjóða upp á vel hannað rými með hentugri setuaðstöðu fyrir fólk með lítil börn. Við viljum hafa praktíska og vel búna skiptiaðstöðu, spennandi og snyrtilega leikaðstöðu og nóg af barnastólum. Þá viljum við að hægt sé að leggja ungbörn frá sér á auðveldan og öruggan hátt, að auð- velt sé að fylgjast með börnum og að gott aðgengi sé fyrir kerrur svo eitthvað sé nefnt. Við viljum síður vera í miðbænum og erum heldur að horfa á Laugardalinn eða annað álíka fjölskylduvænt hverfi og tökum fegnar á móti ábendingum og vangaveltum. Meðal þess sem þær Salvör og Kolbrún Tara hyggjast bjóða upp á er leikvöllur frá bandaríska fyrir- tækinu Imagination Playground en hann samanstendur af hreyfan- legum kubbum með mismunandi lögun ásamt tengingum, tann- hjólum, bugðum, kúlum og sívaln- ingum. Kubbarnir, sem eru ætlaðir börnum frá tveggja ára aldri, eru búnir til úr umhverfisvænum og eiturefnalausum svampi sem þolir vatn, sól og hita og myglar ekki. „Þeir eru fisléttir og því auðvelt að stafla þeim upp og hreyfa þá til. Börnin fá því tækifæri til að sleppa ímyndunaraflinu lausu og skapa sína eigin veröld sem getur verið allt frá sjóræningjaskipi yfir í vélmenni hús eða höll.“ Að sögn Salvarar er von á kubbunum til landsins í febrúar á næsta ári. „Við erum með endalausar hugmyndir í tengslum við þá og hlökkum til að kynna þá fyrir fólki.“ 2 KynnIngArBLAÐ FÓLK 1 0 . n Óv e M B e r 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 5 A -E A 1 8 2 1 5 A -E 8 D C 2 1 5 A -E 7 A 0 2 1 5 A -E 6 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.