Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 86
Á tíu ára afmæli Single‘s Day ætlar Jack Ma, stofnandi Alibaba, sér enn meiri veltu
en nokkru sinni fyrr. Býst þessi
stærsti netkaupmaður heimsins
við að fá yfir einn milljarð pantana
á langstærsta netverslunardegi
ársins, nær og fjær. Til þess að gera
enn betur mun Alibaba tvöfalda 24
tíma útsölusólarhringinn Single‘s
Day yfir í 48 tíma útsölutíð í net-
verslunum sínum og bjóða tilboð
og afslætti af fleiri en 180 þúsund
kínverskum og alþjóðlegum vöru-
merkjum frá yfir 75 löndum víðs-
vegar um heiminn.
Milljarður
pantana
Yfir milljarður pakka gæti borist frá
Alibaba eftir Single’s Day-verslunina.
30%
AF ÖLLUM VÖRUM
11.11.2018
www.lindesign.is
KÓÐI í VEFVERSLUN “1111”
DAGUR
VEFVERSLUNAR
SENDUM FRÍTT
Á NÆSTA PÓSTHÚS
LINDESIGN.IS
8 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . N óv e m B e R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RNetSöLuDAGuRINN
Singles’ Day er stærsti einstaki verslunarviðburður heims. Á um áratug hefur kínverska
risanum Alibaba Group Holding
Ltd. tekist að breyta hálfgerðri
hátíð piparsveina meðal háskóla-
nema í Kína í risavaxið alþjóðlegt
verslunarbrjálæði.
Þennan mikla vöxt má fyrst
og fremst þakka Jack Ma, einum
stofnanda Alibaba, sem vildi
tengja risastóran verslunardag við
einhvers konar hátíð, svipað og
Bandaríkjamenn gera með svarta
föstudegi (e. Black Friday) kringum
þakkargjörðarhátíðina þar í landi.
Ferill Jack Ma er sannarlega
ævintýralegur. Hann starfaði lengi
sem enskukennari og túlkur en
netinu kynntist hann fyrst þegar
hann heimsótti Bandaríkin árið
2005. Hann sá tækifæri þar til að
kynna kínverskar vörur og fyrir-
tæki fyrir umheiminum og setti á
fót vefinn Chinapage. Sú tilraun
tókst þó ekki og Ma hóf störf aftur
hjá hinu opinbera. Þar kynntist
hann Jerry Yang, öðrum stofnanda
Yahoo, sem átti síðar eftir að fjár-
festa í 40 prósenta hlut í Alibaba á
upphafsárum fyrirtækisins.
Alibaba var var stofnað árið
1999 og síðan þá hefur vöxturinn
verið samfelldur. Í dag er hinn 54
ára Jack Ma annar ríkasti maður
Kína og 20. ríkasti maður heims.
Ævintýralegur
ferill
Jack ma er maðurinn á bak við
Singles’ Day. NORDICPHOtOS/GettY
Það verður æ vinsælla að versla á netinu, enda hefur það marga frá-
bæra kosti. Sem dæmi þarf
ekki að bíða eftir að búðin sé
opnuð á morgnana heldur er
hægt að versla hvenær sem er
sólarhringsins, jafnvel á nátt-
fötunum ef manni sýnist svo.
Netverslunin sparar bensín-
kostnað því ekki þarf að keyra
á milli búða í leit að réttu
vörunni. Enginn slagur er
um bestu bílastæðin og ekki
þarf að borga í stöðumæli.
Það er hvorki röð né troðn-
ingur við afgreiðslukassann
heldur eruð þið alltaf fremst
í röðinni. Hægt er að skrifa
strax umsögn um þjónustuna
og koma þannig ánægju
eða gremju á framfæri. Svo
er hægt að leita uppi bestu
tilboðin og gera virkilega
góð kaup með aðeins einum
smelli.
Nokkrir smellir fyrir góð kaup
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
A
-B
D
A
8
2
1
5
A
-B
C
6
C
2
1
5
A
-B
B
3
0
2
1
5
A
-B
9
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K