Fréttablaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 107
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
„Sálumessa er sterkasti
ljóðabálkur sem ratað
hefur í hjarta mitt.“
V I G D Í S G R Í M S D Ó T T I R
„Ég er örmagna. Man ekki eftir
áhrifaríkari lestri árum saman.“
K A T R Í N O D D S D Ó T T I R
„Allir hugsandi menn, konur og ekki síst
við karlar þurfum að lesa bálkinn ...“
T R Y G G V I G Í S L A S O N
„... hnífskarpt ljóðmál og skýr tákn.“
S T E I N U N N I N G A Ó T T A R S D Ó T T I R
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
Löggiltur rafverktaki
Sími:
696 5600
rafsol@rafsol.is
Bækur
Nærbuxnaverksmiðjan
HHH H
Höfundur: Arndís Þórarinsdóttir
Útgefandi: Mál og menning
90 blaðsíður
Ærslasögur hafa alltaf notið mikilla
vinsælda hjá ungum lesendum og
má nefna ýmis dæmi allt frá Grími
grallara sem óknyttaðist á sjöunda
áratugnum og til Skúla skelfis og
Kafteins Ofurbrókar sem óþekktast
þannig að heilu árgangarnir hristast
af hlátri. Þá eru ógleymdar sögur
Davids Walliams þar sem húmorinn
er alltaf í fyrirrúmi.
Nærbuxnaverksmiðjan sver sig að
mörgu leyti í ætt við þessar sögur.
Hún gerist í bænum Brókarenda
þar sem nærbuxnaverksmiðjan
hefur verið upphaf og endir alls um
áratugaskeið. Göturnar í bænum
eru nefndar í samhengi við hana og
kallast Silkivegur, Bómullarbraut og
Blúndustígur og einnig eru nokkur
Babb í Brókarenda
börn nefnd eftir stofnandanum
Rasmusi. Nærbuxnaverksmiðjan
var stóriðja: eitt sinn var öll heims-
byggðin í íslenskum nærbrókum,
eins og segir í upphafi bókarinnar.
En svo er ekki lengur og þegar Gutti,
blíður, mjúkur og afskaplega með-
virkur strákur, kemst að því að
hjarta bæjarins, nærbuxnaverk-
smiðjunni sem amma hans hefur
unnið í áratugum saman, hefur
verið lokað án fyrirvara veltir hann
fyrir sér að grípa til sinna ráða. Með
fulltingi óútreiknanlega hrekkju-
svínsins Ólínu leggur hann af stað til
að kanna innviði
verksmiðjunnar
sem hefur verið
svo stór hluti af
lífi bæjarbúa án
þess að þeir veiti
henni nokkra
e f t i r t e k t o g
kemst þar að
því að ekki er
allt sem sýnist.
Næ r b ux n a -
v e r k s m i ð j a n
er afskaplega
s ke m m t i l e g a
skrifuð, full af orða-
leikjum og hnitmið-
uðum bröndurum en
einnig er nokkrum
álitamálum laumað
með eins og aðbúnaði
gamla fólksins á elli-
heimilunum, ungling-
um sem vilja ekki láta
ná í sig í síma og hvað
er hægt að gera í staðinn
fyrir að byggja bara fleiri
hótel.
Höfundurinn er hug-
myndaríkur og fyndinn
og fær lesendur á öllum aldri til að
skella upp úr enda nær grínið í Nær-
buxnaverksmiðjunni til allra aldurs-
hópa. Sagan flæðir þægilega og létt-
leikandi og gerir lestrarupplifunina
afskaplega ánægjulega. Sannarlega
bók til að mæla með bæði fyrir
lestrar hesta og þá sem ekki hafa
fundið bókina sína enn þá. Þetta gæti
alveg verið hún. Brynhildur Björnsdóttir
NIðurstaða: Nærbuxnaverk-
smiðjan er skemmtileg og fyndin
saga um ráðsnjalla krakka, úreltar
verksmiðjur og nærbuxur.
Haustsýning Grósku stendur yfir í
sýningarsal á annarri hæð á Garða-
torgi í Garðabæ. Sýningin verður
opin til sunnudags frá 12-18.
Gróska er félag myndlistarmanna
í Garðabæ sem var stofnað í þeim til-
gangi að gera listsköpun sýnilegri í
bæjarfélaginu og hefur starfsemin
borið góðan árangur. Gróska fagnar
komu vetrar jafnt sem sumars með
árstíðabundnum sýningum og
stendur einnig fyrir fleiri sýning-
um sem eru breytilegar milli ára.
Umfangsmest er Jónsmessugleðin
sem haldin er við Strandstíginn
við Sjálandshverfið í Garðabæ en
þangað streyma þúsundir gesta á
hverju ári. Fyrir utan sýningahaldið
stendur Gróska fyrir ýmsum opnum
fyrirlestrum um myndlist og menn-
ingu og haldin eru námskeið og sam-
hristingur fyrir félagsmenn.
Gróska í Garðabæ
Verk eftir Huldu Hreindal.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ðN N I N r t t a a I 55L a u g a r D a g u r 1 0 . N ó v e m B e r 2 0 1 8
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-6
E
A
8
2
1
5
A
-6
D
6
C
2
1
5
A
-6
C
3
0
2
1
5
A
-6
A
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K