Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 8
8 SPORT 10. ágúst 2018
Þ
að verður áhugavert að
fylgjast með Cardiff City á
leiktíðinni sem er að hefj-
ast í ensku úrvalsdeildinni.
Með liðinu leikur landsliðsfyrir-
liðinn Aron Einar Gunnarsson og
hefur gert undanfarin sjö ár eftir
að hann var keyptur frá Coventry.
Cardiff hafnaði í öðru sæti Champ-
ionship-deildarinnar á síðustu
leiktíð og tryggði sér því beint sæti
í úrvalsdeildinni og slapp við um-
spil. Liðið komst síðast í úrvals-
deildina árið 2013 en féll ári síðar
eftir afar slæmt gengi.
Cardiff á síðustu leiktíð:
Sæti: 2
Mörk skoruð: 69
Mörk fengin á sig: 39
Skot að meðaltali í leik: 14
Gul spjöld: 82
Rauð spjöld: 1
Vel heppnaðar sendingar: 59,4%
Það er ljóst að Cardiff-menn
eiga erfitt verkefni fyrir höndum í
vetur og verður liðið að varast að
gera ekki það sama og fyrir fjórum
árum. Á fyrri hluta deildarkeppn-
innar tókst liðinu aðeins að vinna
þrjá leiki sem kostaði félagið á
endanum sætið í deildinni.
Neil Warnock er stjóri Cardiff
en hann er kannski þekktastur
fyrir það að starfa í neðri deildun-
um. Warnock vill að sínir menn
geri allt til þess að ná í stig þó að
það sé aðeins eitt. Honum er alveg
sama hvernig liðið fer að því, sem
getur verið jákvætt.
Lykillinn:
Mikið þarf að ganga upp hjá
Cardiff ef liðið ætlar að halda sér í
deild þeirra bestu. Á síðustu leik-
tíð fengu leikmenn liðsins dæmd
á sig 82 gul spjöld sem er áhyggju-
efni fyrir þá. Leikmenn komast
ekki upp með eins mikið í úrvals-
deildinni og í neðri deildunum.
Warnock þarf því að hafa betri
stjórn á sínum mönnum.
Vörnin mun eiga stóran þátt
í gengi liðsins á leiktíðinni. Þeir
Sean Morrison og Sol Bamba voru
frábærir aftast þegar liðið tryggði
sér sæti í efstu deild.
Óvíst er hver mun skora mörk-
in fyrir Cardiff en liðið mun vænt-
anlega treysta á Kenneth Zohore.
Hann skoraði þó aðeins níu
deildarmörk á síðustu leiktíð og
tólf tímabilið áður.
Leikmenn Cardiff þurfa að spila
sem ein liðsheild enda lítið um
stjörnur hjá félaginu og ekki hægt
að treysta á að einstaka leikmenn
vinni leiki upp á sitt einsdæmi
með heimsklassa frammistöðu.
Fyrst og fremst þarf varnarleik-
urinn að vera traustur og svo þarf
að nýta föstu leikatriðin.
Aron Einar Gunnarsson:
Aron er ekki með fyrirliðabandið
hjá Cardiff en hann er samt fyrir-
liði. Hljómar furðulega en er engu
að síður staðreynd. Hann hefur
verið hjá liðinu í sjö ár og á að baki
258 leiki fyrir liðið og hefur skorað
24 mörk. Fáir láta jafn mikið í sér
heyra og þessi litríki miðjumað-
ur sem er að sjálfsögðu fyrirliði ís-
lenska landsliðsins.
Cardiff-menn verða að treysta
á að okkar maður haldist heill og
hann mun þá væntanlega leika
stórt hlutverk þegar liðið berst fyrir
því að halda sér í efstu deild. Liðið
þarf einmitt á leikmönnum eins og
Aroni að halda. Það er aldrei neitt
eftir á vellinum þegar flautað er til
loka leiks.
Hægt er að fullyrða og hóta Car-
diff því að ef Aron spilar ekki mik-
ið í vetur þá muni liðið falla rak-
leiðis niður um deild. En Warnock
er mikill aðdáandi Arons og veit
hversu mikilvægur hann er. Aron
hefur sýnt það með landsliðinu
að hann kann vel við að kljást við
stærstu stjörnur heims sem Car-
diff ætti að nýta sér og vonandi
helst hann meiðslalaus í vetur.
Tölfræði Arons á síðustu leiktíð:
Leikir: 20
Mörk: 1
Stoðsendingar: 1
Aron er í miklu uppáhaldi hjá
stuðningsmönnum og leikmönn-
um Cardiff og var hann valinn
besti leikmaður liðsins fyrir árið
2017 af báðum þessum hópum.
Það segir mikið um framlag hans
og mikilvægi.
Aron hefur einnig reynslu úr
úrvalsdeildinni. Hann lék alls 23
deildarleiki þegar Cardiff var þar
fyrir fjórum árum.
Staðan á leikmannahópnum:
Cardiff hefur ekki keypt mikið í
sumar en liðið hefur þó fengið til
sín fjóra leikmenn sem eiga að
styrkja hópinn.
Josh Murphy var keyptur frá
Norwich, Greg Cunningham frá
Preston, Bobby Reid frá Bristol
City og markvörðurinn Alex Smit-
hes frá Queens Park Rangers. Þetta
eru engar stórstjörnur og hafa hin-
ir nýliðarnir, Fulham og Wolves,
styrkt sig mun meira og eytt háum
fjárhæðum í leikmenn.
Erfitt að sjá hvaðan mörkin
eiga að koma. Markahæsti leik-
maður liðsins á síðustu leiktíð
var hinn fyrrnefndi Zohore sem
gerði aðeins níu mörk. Það hefði
einnig verið betra fyrir liðið að
kaupa fleiri leikmenn með reynslu
úr efstu deild og eins og er eru
horfurnar ekki góðar.
Góðu fréttirnar eru hins vegar
þær að aðeins þrír leikmenn hafa
yfirgefið félagið og það er oft sagt
að of margar breytingar skapi
vandræði.
Leikmenn inn:
Josh Murphy (Norwich)
– Keyptur
Greg Cunningham (Preston)
– Keyptur
Alex Smithies (QPR) – Keyptur
Bobby Reid (Bristol City)
– Keyptur
Leikmenn út:
Greg Halford – Samningslaus
Omar Bogle (Birmingham City)
– Lán
Lee Camp (Birmingham City)
– Lán
Spá fyrir tímabilið 2018/2019:
Því miður fyrir Aron þá er líklegt að
Cardiff fari beint niður í Champ-
ionship. Liðið er einfaldlega ekki
með nógu góða leikmenn til þess
að halda sæti sínu í efstu deild og
margt þarf að ganga upp til að fall
verði ekki raunin.
Möguleiki Cardiff liggur í jafn-
teflunum. Ef liðinu tekst að sækja
nokkur dýr stig hér og þar er
aldrei að vita hvernig taflan lítur
út á næsta ári. Á blaði er liðið hins
vegar á leið beint niður og spáum
við því að Cardiff endi tímabilið á
botni deildarinnar, í 20. sæti.
Íslendingaliðin í ensku úrvalsdeildinni: 433 spáir í spilin
Enska úrvalsdeildin hefst um helgina og knattspyrnudeild DV, 433, mun fylgj-
ast grannt með gangi mála. Þrír Íslendingar leika með úrvalsdeildarliðum; Aron
Einar Gunnarsson hjá Cardiff, Gylfi Sigurðsson hjá Everton og Jóhann Berg Guð-
mundsson hjá Burnley. 433 greinir stöðu liðanna þriggja, mikilvægi Íslending-
anna innan þeirra og spáir fyrir um lokasæti.
J
óhann Berg Guðmundsson
mun líklega koma reglulega
við sögu hjá liði Burnley á
tímabilinu í ensku úrvals-
deildinni. Jóhann hefur fest sig
í sessi undir stjórn Sean Dyche
hjá Burnley eftir að hann kom
til félagsins frá Charlton Athletic
árið 2016.
Fróðlegt verður að fylgjast
með Jóa Berg og félögum hans á
leiktíðinni en liðið hafnaði í sjö-
unda sæti deildarinnar á síðasta
tímabili.
Burnley á síðustu leiktíð:
Sæti: 7
Mörk skoruð: 36
Mörk fengin á sig: 39
Skot að meðaltali í leik: 9,9
Gul spjöld: 65
Rauð spjöld: 0
Vel heppnaðar sendingar:
70,5 %
Burnley hefur leikið vonum
framar undanfarin tvö tímabil
undir leiðsögn Dyche sem tók
við liðinu árið 2012. Knattspyrn-
an sem hinir fjólubláu spila er
ekki mikið fyrir augað en liðið
nær árangri og sannaði það á
síðustu leiktíð.
Ef líkja ætti íslenska lands-
liðinu við lið í ensku úrvals-
deildinni þá yrði það Burnley.
Liðið er með stóra stráka innan-
borðs sem eru tilbúnir að „deyja
fyrir klúbbinn.“
Lykillinn:
Burnley hóf síðustu leiktíð af
krafti og liðið virkaði ósigrandi
á köflum. Þetta sýndu þeir með
því að vinna ótrúlegan 3-2 sigur
á þáverandi Englandsmeistur-
um Chelsea í fyrsta leiknum.
Eftir tap gegn West Bromwich
Albion í annarri umferð spilaði
liðið sex leiki án þess að tapa en
nokkrir þannig kaflar komu upp
á leiktíðinni þar sem liðið var
alltaf líklegt til þess að ná í stig.
Lykillinn að góðu gengi
Burnley í vetur er skipulag og
agaður varnarleikur. Liðið fékk
aðeins á sig 39 mörk á síðustu
leiktíð og til samanburðar fékk
stórlið Arsenal á sig 51 mark og
Everton, sem endaði sæti neðar
en Burnley, fékk á sig 58. Dyche
fær leikmenn sína til þess að
leggja allt í sölurnar.
Jóhann Berg Guðmundsson:
Jóhann hentar leikstíl Burnley
fullkomlega og mun hann leika
stórt hlutverk á leiktíðinni. Ís-
lenski landsliðsmaðurinn er ekki
þekktur fyrir að skora mörg mörk
en hann gerði alls tvö í deildinni
á síðasta tímabili. Hann lagði
hins vegar upp átta mörk fyrir
liðið og átti alls 213 fyrirgjafir í 35
leikjum.
Það sem hentar Jóhanni hvað
best er einfaldleikinn í leikstíl
Burnley. Hann er kantmaður
sem gerir einfalda hluti mjög vel
og er með eitraðan vinstri fót,
hvort sem hann er notaður til
þess að skjóta að marki eða gefa
á samherja.
Tölfræði Jóhanns á síðustu
leiktíð:
Leikir: 35
Mörk: 2
Stoðsendingar: 8
Sendingar: 805
Fyrirgjafir: 213
Vel heppnaðar fyrirgjafir: 30%
Skot: 54
Skot á mark: 18
CARDIFF CITY
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
BURNLEY