Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 8
8 SPORT 10. ágúst 2018 Þ að verður áhugavert að fylgjast með Cardiff City á leiktíðinni sem er að hefj- ast í ensku úrvalsdeildinni. Með liðinu leikur landsliðsfyrir- liðinn Aron Einar Gunnarsson og hefur gert undanfarin sjö ár eftir að hann var keyptur frá Coventry. Cardiff hafnaði í öðru sæti Champ- ionship-deildarinnar á síðustu leiktíð og tryggði sér því beint sæti í úrvalsdeildinni og slapp við um- spil. Liðið komst síðast í úrvals- deildina árið 2013 en féll ári síðar eftir afar slæmt gengi. Cardiff á síðustu leiktíð: Sæti: 2 Mörk skoruð: 69 Mörk fengin á sig: 39 Skot að meðaltali í leik: 14 Gul spjöld: 82 Rauð spjöld: 1 Vel heppnaðar sendingar: 59,4% Það er ljóst að Cardiff-menn eiga erfitt verkefni fyrir höndum í vetur og verður liðið að varast að gera ekki það sama og fyrir fjórum árum. Á fyrri hluta deildarkeppn- innar tókst liðinu aðeins að vinna þrjá leiki sem kostaði félagið á endanum sætið í deildinni. Neil Warnock er stjóri Cardiff en hann er kannski þekktastur fyrir það að starfa í neðri deildun- um. Warnock vill að sínir menn geri allt til þess að ná í stig þó að það sé aðeins eitt. Honum er alveg sama hvernig liðið fer að því, sem getur verið jákvætt. Lykillinn: Mikið þarf að ganga upp hjá Cardiff ef liðið ætlar að halda sér í deild þeirra bestu. Á síðustu leik- tíð fengu leikmenn liðsins dæmd á sig 82 gul spjöld sem er áhyggju- efni fyrir þá. Leikmenn komast ekki upp með eins mikið í úrvals- deildinni og í neðri deildunum. Warnock þarf því að hafa betri stjórn á sínum mönnum. Vörnin mun eiga stóran þátt í gengi liðsins á leiktíðinni. Þeir Sean Morrison og Sol Bamba voru frábærir aftast þegar liðið tryggði sér sæti í efstu deild. Óvíst er hver mun skora mörk- in fyrir Cardiff en liðið mun vænt- anlega treysta á Kenneth Zohore. Hann skoraði þó aðeins níu deildarmörk á síðustu leiktíð og tólf tímabilið áður. Leikmenn Cardiff þurfa að spila sem ein liðsheild enda lítið um stjörnur hjá félaginu og ekki hægt að treysta á að einstaka leikmenn vinni leiki upp á sitt einsdæmi með heimsklassa frammistöðu. Fyrst og fremst þarf varnarleik- urinn að vera traustur og svo þarf að nýta föstu leikatriðin. Aron Einar Gunnarsson: Aron er ekki með fyrirliðabandið hjá Cardiff en hann er samt fyrir- liði. Hljómar furðulega en er engu að síður staðreynd. Hann hefur verið hjá liðinu í sjö ár og á að baki 258 leiki fyrir liðið og hefur skorað 24 mörk. Fáir láta jafn mikið í sér heyra og þessi litríki miðjumað- ur sem er að sjálfsögðu fyrirliði ís- lenska landsliðsins. Cardiff-menn verða að treysta á að okkar maður haldist heill og hann mun þá væntanlega leika stórt hlutverk þegar liðið berst fyrir því að halda sér í efstu deild. Liðið þarf einmitt á leikmönnum eins og Aroni að halda. Það er aldrei neitt eftir á vellinum þegar flautað er til loka leiks. Hægt er að fullyrða og hóta Car- diff því að ef Aron spilar ekki mik- ið í vetur þá muni liðið falla rak- leiðis niður um deild. En Warnock er mikill aðdáandi Arons og veit hversu mikilvægur hann er. Aron hefur sýnt það með landsliðinu að hann kann vel við að kljást við stærstu stjörnur heims sem Car- diff ætti að nýta sér og vonandi helst hann meiðslalaus í vetur. Tölfræði Arons á síðustu leiktíð: Leikir: 20 Mörk: 1 Stoðsendingar: 1 Aron er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum og leikmönn- um Cardiff og var hann valinn besti leikmaður liðsins fyrir árið 2017 af báðum þessum hópum. Það segir mikið um framlag hans og mikilvægi. Aron hefur einnig reynslu úr úrvalsdeildinni. Hann lék alls 23 deildarleiki þegar Cardiff var þar fyrir fjórum árum. Staðan á leikmannahópnum: Cardiff hefur ekki keypt mikið í sumar en liðið hefur þó fengið til sín fjóra leikmenn sem eiga að styrkja hópinn. Josh Murphy var keyptur frá Norwich, Greg Cunningham frá Preston, Bobby Reid frá Bristol City og markvörðurinn Alex Smit- hes frá Queens Park Rangers. Þetta eru engar stórstjörnur og hafa hin- ir nýliðarnir, Fulham og Wolves, styrkt sig mun meira og eytt háum fjárhæðum í leikmenn. Erfitt að sjá hvaðan mörkin eiga að koma. Markahæsti leik- maður liðsins á síðustu leiktíð var hinn fyrrnefndi Zohore sem gerði aðeins níu mörk. Það hefði einnig verið betra fyrir liðið að kaupa fleiri leikmenn með reynslu úr efstu deild og eins og er eru horfurnar ekki góðar. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að aðeins þrír leikmenn hafa yfirgefið félagið og það er oft sagt að of margar breytingar skapi vandræði. Leikmenn inn: Josh Murphy (Norwich) – Keyptur Greg Cunningham (Preston) – Keyptur Alex Smithies (QPR) – Keyptur Bobby Reid (Bristol City) – Keyptur Leikmenn út: Greg Halford – Samningslaus Omar Bogle (Birmingham City) – Lán Lee Camp (Birmingham City) – Lán Spá fyrir tímabilið 2018/2019: Því miður fyrir Aron þá er líklegt að Cardiff fari beint niður í Champ- ionship. Liðið er einfaldlega ekki með nógu góða leikmenn til þess að halda sæti sínu í efstu deild og margt þarf að ganga upp til að fall verði ekki raunin. Möguleiki Cardiff liggur í jafn- teflunum. Ef liðinu tekst að sækja nokkur dýr stig hér og þar er aldrei að vita hvernig taflan lítur út á næsta ári. Á blaði er liðið hins vegar á leið beint niður og spáum við því að Cardiff endi tímabilið á botni deildarinnar, í 20. sæti. Íslendingaliðin í ensku úrvalsdeildinni: 433 spáir í spilin Enska úrvalsdeildin hefst um helgina og knattspyrnudeild DV, 433, mun fylgj- ast grannt með gangi mála. Þrír Íslendingar leika með úrvalsdeildarliðum; Aron Einar Gunnarsson hjá Cardiff, Gylfi Sigurðsson hjá Everton og Jóhann Berg Guð- mundsson hjá Burnley. 433 greinir stöðu liðanna þriggja, mikilvægi Íslending- anna innan þeirra og spáir fyrir um lokasæti. J óhann Berg Guðmundsson mun líklega koma reglulega við sögu hjá liði Burnley á tímabilinu í ensku úrvals- deildinni. Jóhann hefur fest sig í sessi undir stjórn Sean Dyche hjá Burnley eftir að hann kom til félagsins frá Charlton Athletic árið 2016. Fróðlegt verður að fylgjast með Jóa Berg og félögum hans á leiktíðinni en liðið hafnaði í sjö- unda sæti deildarinnar á síðasta tímabili. Burnley á síðustu leiktíð: Sæti: 7 Mörk skoruð: 36 Mörk fengin á sig: 39 Skot að meðaltali í leik: 9,9 Gul spjöld: 65 Rauð spjöld: 0 Vel heppnaðar sendingar: 70,5 % Burnley hefur leikið vonum framar undanfarin tvö tímabil undir leiðsögn Dyche sem tók við liðinu árið 2012. Knattspyrn- an sem hinir fjólubláu spila er ekki mikið fyrir augað en liðið nær árangri og sannaði það á síðustu leiktíð. Ef líkja ætti íslenska lands- liðinu við lið í ensku úrvals- deildinni þá yrði það Burnley. Liðið er með stóra stráka innan- borðs sem eru tilbúnir að „deyja fyrir klúbbinn.“ Lykillinn: Burnley hóf síðustu leiktíð af krafti og liðið virkaði ósigrandi á köflum. Þetta sýndu þeir með því að vinna ótrúlegan 3-2 sigur á þáverandi Englandsmeistur- um Chelsea í fyrsta leiknum. Eftir tap gegn West Bromwich Albion í annarri umferð spilaði liðið sex leiki án þess að tapa en nokkrir þannig kaflar komu upp á leiktíðinni þar sem liðið var alltaf líklegt til þess að ná í stig. Lykillinn að góðu gengi Burnley í vetur er skipulag og agaður varnarleikur. Liðið fékk aðeins á sig 39 mörk á síðustu leiktíð og til samanburðar fékk stórlið Arsenal á sig 51 mark og Everton, sem endaði sæti neðar en Burnley, fékk á sig 58. Dyche fær leikmenn sína til þess að leggja allt í sölurnar. Jóhann Berg Guðmundsson: Jóhann hentar leikstíl Burnley fullkomlega og mun hann leika stórt hlutverk á leiktíðinni. Ís- lenski landsliðsmaðurinn er ekki þekktur fyrir að skora mörg mörk en hann gerði alls tvö í deildinni á síðasta tímabili. Hann lagði hins vegar upp átta mörk fyrir liðið og átti alls 213 fyrirgjafir í 35 leikjum. Það sem hentar Jóhanni hvað best er einfaldleikinn í leikstíl Burnley. Hann er kantmaður sem gerir einfalda hluti mjög vel og er með eitraðan vinstri fót, hvort sem hann er notaður til þess að skjóta að marki eða gefa á samherja. Tölfræði Jóhanns á síðustu leiktíð: Leikir: 35 Mörk: 2 Stoðsendingar: 8 Sendingar: 805 Fyrirgjafir: 213 Vel heppnaðar fyrirgjafir: 30% Skot: 54 Skot á mark: 18 CARDIFF CITY Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is BURNLEY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.