Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Page 9
SPORT 910. ágúst 2018 G ylfi Þór Sigurðsson mun klæðast treyju númer 10 hjá Everton þegar enska úrvalsdeildin hefst á föstu- dag. Gylfi er að hefja sitt annað tímabil með þeim bláklæddu en hann kom til félagsins frá Swansea síðasta sumar. Gylfi mun eflaust leika stórt hlutverk í liðinu á tímabilinu en Marco Silva er nú tekinn við stjórn liðsins og hann er aðdáandi ís- lenska landsliðsmannsins. Mikl- ar væntingar eru gerðar til Ev- erton sem hafnaði í áttunda sæti deildarinnar á síðasta tímabili. Everton á síðustu leiktíð: Sæti: 8 Mörk skoruð: 44 Mörk fengin á sig: 58 Skot að meðaltali í leik: 9,4 Gul spjöld: 51 Rauð spjöld: 3 Vel heppnaðar sendingar: 74,3% Everton spilar undir stjórn Marco Silva á leiktíðinni en hann tók við keflinu í sumar af Sam Allardyce. Gylfi hefur sjálfur stað- fest að margar breytingar eigi sér stað hjá félaginu sem hefur haft þrjá knattspyrnustjóra á einu ári. Ronald Koeman fékk Gylfa til liðsins eftir slæma byrjun í fyrra. Þegar hann var rekinn tók Allar- dyce við. Pressan er augljóslega mik- il á Silva og félögum. Liðið hefur eytt fúlgum í leikmenn undanfar- in tvö tímabil og stefnan er sett á Evrópusæti í vetur. Everton hefur allt til að geta náð góðum árangri og spilað flottan fótbolta en sumt þarf að breytast. Helst ber að nefna frammistöðu liðsins gegn stórliðum deildarinn- ar. Liðið tapaði átta af tólf leikjum gegn „hinum stóru sex“ á síðasta tímabili og oftar en ekki var tap- ið stórt. Liðið fékk til að mynda á sig tíu mörk í tveimur leikjum gegn Arsenal. Lykillinn: Til að ná góðum árangri verður Everton að ná stöðugleika. Liðið byrjaði tímabilið vel í fyrra og vann 1-0 sigur á Stoke og gerði svo 1-1 jafntefli við Manchester City. En eftir það vann Everton aðeins einn af átta leikjum sínum, 2-1 sigur á Bournemouth í sjöttu umferð. Mjög mikilvægt er fyrir Silva að slípa þetta lið saman á stutt- um tíma en hann hefur ekki fengið mikinn tíma til að vinna með þess- um leikmönnum í sumar. Ron- ald Koeman keypti marga leik- menn fyrir síðasta tímabil og það kom augljóslega niður á liðinu. Skipulagið var lítið og leikmenn þekktu hver annan ekki neitt. Gengi liðsins lagaðist töluvert eft- ir að Allardyce tók við liðinu af Koeman en fram að því var von- leysið algert. Leikmenn eins og Gylfi, Ric- harlison, Theo Walcott, Cenk Tosun, Seamus Coleman, Lucas Digne og Michael Keane verða að stíga upp í leikjum liðsins og verð- ur athyglisvert að sjá hvernig byrj- unarliðið mun líta út í fyrstu um- ferð. Gylfi Þór Sigurðsson: Óhætt er að fullyrða að Gylfi Sig- urðsson sé maðurinn sem á að koma Everton í Evrópusæti. All- ir vita hversu góður knattspyrn- umaður hann er. Gylfi getur skil- að mörkum og stoðsendingum þó að hann hafi átt ansi rólegt fyrsta tímabil hjá liðinu. Gylfi skoraði aðeins fjögur mörk í deild á sinni fyrstu leik- tíð á Goodison Park og lagði upp önnur þrjú. Stöðugleiki hefur ávallt verið lykilatriði í leik Gylfa og breytingarnar hjá Everton síð- asta sumar hjálpuðu honum ekki. Gylfi var oft notaður á vængnum eftir að Wayne Rooney kom frá Manchester United en það er ekki hans sterkasta staða. Vonandi átt- ar Silva sig á því. Gylfi þarf að fá að vera aðal- maðurinn hjá liðinu. Hann ætti að taka allar auka-, horn- og víta- spyrnur enda einn besti spyrnu- maður deildarinnar. Um leið og hann finnur fyrir tiltrú og sjálfs- traustið kemst í gang þá stöðvar hann fátt því gæðin eru til stað- ar. Spil Everton á að fara í gegnum leikmenn eins og Gylfa sem kunna að búa sér til pláss og eru með eitr- aðan skot- og sendingarfót. Tölfræði Gylfa á síðustu leiktíð: Leikir: 27 Mörk: 4 Stoðsendingar: 3 Sendingar: 700 Fyrirgjafir: 150 Vel heppnaðar fyrirgjafir: 23% Skot: 39 Skot á mark: 12 Gylfi ætti að smellpassa inn í hugmyndafræði Silva sem vill spila sókndjarfan fótbolta og skemmta áhorfendum. Ef hann breytir of miklu og skiptir um leikkerfi í hverjum leik þá gætu skapast vandræði fyrir Gylfa og aðra leikmenn. Staðan á leikmannahópnum: Everton hefur losað sig við marga leikmenn í sumar en tveir góð- ir voru keyptir á háar upphæðir. Sóknarmaðurinn Richarlison var keyptur frá Watford en hann var frábær undir stjórn Silva þegar þeir unnu saman þar. Richarlison er að- eins tvítugur og var einn allra besti leikmaður Watford á síðustu leiktíð. Everton keypti einnig bakvörð- urinn Lucas Digne frá Barcelona. Hann lék áður með Lille, Paris St. Germain og Roma og hefur því mikla reynslu þrátt fyrir að vera að- eins 25 ára. Það er góður fengur fyr- ir liðið. Fjölmargir leikmenn sem þóttu ekki standa undir væntingum á síð- asta tímabili eru farnir annað. Má þar nefna Kevin Mirallas, Ashley Williams, Ramiro Funes Mori, Way- ne Rooney og Davy Klaassen. Leikmenn inn: Richarlison (Watford) – Keyptur Lucas Digne (Barcelona) – Keyptur Joao Virginia (Arsenal) – Keyptur Leikmenn út: Joel Robles (Real Betis) – Samningslaus Jose Baxter – Samningslaus David Henen – Samningslaus Ramiro Funes Mori – Seldur Wayne Rooney – Seldur Luke Garbutt (Oxford United) – Lán Henry Onyekuru (Galatasaray) – Lán Shani Tarashaj (Grasshopper Zurich) – Lán Davy Klaassen (Werder Bremen) – Keyptur Ashley Williams (Stoke City) – Lán Antonee Robinson (Wigan) – Lán Kevin Mirallas (Fiorentina) – Lán Spá fyrir tímabilið 2018/2019: Ef Silva nær tökum á liðinu snemma og finnur sitt sterkasta byrjunarlið er útlitið afar bjart. Everton er með leikmannahóp sem á að spila í Evrópukeppni og er launakostnaður liðsins einnig mjög hár. Margir setja spurningarmerki við komu Silva en hann var rekinn frá Watford á síðustu leiktíð eft- ir að hafa misst klefann stuttu eft- ir að hann var orðaður við Everton sem leitaði þá að stjóra. Ef engin vandamál koma upp utan vallar og liðið nær að sýna stöðugleika þá er óhætt að spá liðinu sjöunda sæti deildarinnar. EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Íslendingaliðin í ensku úrvalsdeildinni: 433 spáir í spilin EVERTONJóhann er ekki aðeins fram-úrskarandi knattspyrnumaður heldur fellur hann vel að hug- myndafræði Dyche og það hef- ur sýnt sig. Jóhann hleypur mjög mikið fyrir sitt lið og gerir fá mistök í leikjum. Hann leikur stórt hlutverk bæði varnar- og sóknarlega og verður að öllum líkindum fastamaður í liðinu á komandi tímabili. Staðan á leikmannahópnum: Burnley hefur ekki styrkt leik- mannahópinn mikið í sum- ar og kannski engin ástæða til eftir frábært tímabil. Dyche veit hvað hentar honum best og leitar iðulega til enskra leik- manna. 14 leikmenn í aðalliði Burnley eru enskir og aðeins sjö leikmenn eru ekki bresk- ir. Jóhann er hluti af þeim fá- menna hópi. Liðið festi kaup á framherj- anum Matej Vydra fyrr í sum- ar en hann spilaði síðast með Derby County og var öflugur markaskorari. Fróðlegt verður að sjá hvernig Vydra stendur sig því hann er ekki jafn hávax- inn og aðrir framherjar Burnley og hann býr einnig yfir meiri hraða. Kaupin á Vydra minna þó óþægilega mikið á kaup liðsins á Nahki Wells síðasta sumar. Wells skoraði grimmt fyrir Huddersfield en kom að- eins níu sinnum við sögu hjá Burnley. Ben Gibson er leikmað- ur sem mun eflaust hjálpa til varnarlega en hann var keypt- ur frá Middlesbrough í sum- ar og á að baki 185 deildarleiki fyrir liðið. Leikmenn inn: Vinnie Steels (York City) – Á frjálsri sölu Ben Gibson (Middlesbrough) – Keyptur Joe Hart (Man City) – Keypt- ur Matej Vydra (Derby County) – Keyptur Leikmenn út: Dean Marney – Samningslaus Scott Arfield – Samningslaus Tom Anderson – Samnings- laus Chris Long – Samningslaus Josh Ginnelly – Samningslaus Conor Mitchell (St. Johnsto- ne) – Lán Aiden Stone (Lancaster City) – Lán Spá fyrir tímabilið 2018/2019: Það er erfitt að spá Burnley betra gengi en á síðustu leik- tíð er liðið kom öllum á óvart og hafnaði í sjöunda sæti og vann sér inn þáttöku í Evrópu- deildinni. Ástríðan hjá leik- mönnum Burnley er meiri en hjá flestum öðrum og er því ómögulegt að spá liðinu falli. Ef allar hliðar eru skoðaðar er líklegt að liðið endi tímabil- ið um miðja deild eða í 11. sæti deildarinnar. Önnur lið hafa styrkt sig meira en Burnley í sumarglugganum en eins og áður kom fram eru fá lið með jafn þéttan og vel skipaðan hóp og Dyche og félagar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.