Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Page 16
16 LÍFSSTÍLL 10. ágúst 2018 S. 565 2217 - pappir@pappir.is - Kaplahraun 20 - 220 Hanarfjörður STAFRÆN PRENTUN Á AUGABRAGÐI NAFNSPJÖLD BRÉFSEFNI UMSLÖG BÆKLINGAR PLAKÖT TÆKIFÆRISKORT MATSEÐLAR O.FL O.FL. gera fyrirlestur fyrir foreldra líka og þá hugsaði ég hann út frá því sem ég hefði viljað vita, ég er með myndir af augum, hvernig þau líta út þegar barnið er í neyslu. Einnig nefni ég atriði eins og það að mat- skeiðar fóru að hverfa, ég taldi að þær hefðu bara týnst, en þá var Alma að nota þær í neyslunni. Vinir Ölmu hafa sumir hætt í neyslu, nokkrir eru látnir og aðr- ir eru enn í bullandi neyslu. Ég er stundum hrædd á hverjum ein- asta degi um að einhver vinur hennar sé farinn.“ Lyfin hefðu sigrað hefði hann ekki svipt sig lífi „Það er sorglegt að eins mikill fík- ill og bróðir minn var að hann var mjög góð manneskja. Hann stal aldrei frá fjölskyldu eða vinum og það eru margir sem lifa góðu lífi í dag, sem voru fíklar en hann náði að aðstoða úr neyslu. Hann vissi hvernig átti að gera þetta, en þráhyggjan var svo mikil að hann náði ekki að bjarga sjálfum sér, þótt hann hafi bjargað mörgum öðrum,“ segir Daníel Örn Sig- urðsson, bróðir Steindórs Smára Sveinssonar, sem svipti sig lífi í júní eftir langvarandi neyslu, þar á meðal á lyfseðilsskyldum lyfjum. Steindór Smári byrjaði í neyslu 14 ára gamall, var kominn í harða sprautuneyslu tvítugur og náði sér aldrei úr neyslunni. „Hann var edrú af og til í einhverja mánuði, en það dugði aldrei. Þetta stóð og féll með honum og því miður féll þetta með honum á endan- um,“ en eftir að hafa neytt mikils magns fíkniefna fór Steindór Smári og hengdi sig í bílakjallara. „Hengingin var afleiðingin, en lyf- in voru orsökin. Hann sprautaði sig með öllu sem hann komst í. Lyfin hefðu sigrað hefði hann ekki svipt sig lífi.“ Daníel Örn gerði myndband í tilefni þess að Steindór Smári átti afmæli og tengdi það forvarnar- átaki fjölskyldu Einars Darra Óskars sonar, Ég á bara eitt líf. „Ég veit að þetta er eitthvað sem Steindór Smári hefði viljað, að hans dauði yrði ekki til einskis. Að hann myndi hafa einhver áhrif á aðra. Mér finnst dauði hans ekkert tabú. Það til dæmis kemur aldrei fram í dánartilkynningum ef ein- hver deyr vegna baráttu við fíkni- efni eða vegna sjálfsvígs. Það þarf að tala um þessi mál opinberlega. Það eykur skilning fólks og er auk- in forvörn og fræðsla.“ Kom alls staðar að lokuðum dyrum þegar hann leitaði sér hjálpar Kristján Steinþórsson barðist við þunglyndi og önnur andleg vandamál frá barnæsku. Hann fannst látinn í herbergi sínu í júní síðastliðnum, en hann svipti sig lífi eftir að hafa ítrekað mætt lok- uðum dyrum þegar hann leitaði sér hjálpar. „Það virðast ekki vera til úr- ræði fyrir þetta fólk. Það þarf að vera hægt að grípa fólk sem lend- ir í andlegri krísu áður en það fer að reyna að lækna sig sjálft með því að reykja gras og prófa hin og þessi efni til þess að deyfa sársauk- ann,“ sögðu Dagbjört Þráinsdóttir, móðir Kristjáns, og systir hennar, Andrea, í viðtali við DV í lok júní. Á sínum yngri árum var Krist- ján afburða nemandi, sá besti í skólanum, og hafði allt til brunns að bera til að eiga gæfuríkt og gott líf en kerfið brást honum á öllum stigum. Hann átti fjölskyldu sem studdi hann og var vinsæll meðal allra sem kynntust honum. Kristján hafði glímt við þung- lyndi, kvíða og félagsfælni um langt skeið og sautján ára fór hann að leita í fíkniefni til að deyfa sárs- aukann. Í kringum jólin árið 2017 var hann farinn að leita í harðari efni og sökk hratt niður í dýpi þunglyndis og fíkniefnaneyslu. Þegar hann grátbað um aðstoð á sinni myrkustu stund mætti hon- um sinnuleysi og hroðvirknisleg vinnubrögð. Afleiðingin er sár, bæði fyrir fjölskyldu hans og vini og samfélagið allt. „Við vorum alltaf mjög náin og töluðum opinskátt um allt og þar voru veikindi hans ekki undanskil- in. Það voru gerð endalaus mistök á geðdeildinni. Kristján átti að fara á biðlista en hann var búinn að mæta þrisvar sinnum þegar í ljós kom að hann hafði aldrei verið settur á biðlista og hann var alltaf sendur heim eftir það. Þennan dag áttu þeir að hafa samband við hann en þeir hringdu ekki þannig að hann hringdi sjálfur. Þá fékk hann þær fréttir að hann þyrfti að bíða í einhverja daga til viðbótar. Þá var hann búinn að gefast upp og missa alla von. Hann vildi komast inn núna og sagði konunni sem hann talaði við að hann gæti ekki beðið lengur.“ Kristján komst loksins inn á geðdeild Landspítalans og var þar í eina viku. Eftir þá dvöl átti hann að komast í fíknimeðferð á Teigi og var bjartsýnn á að komast þar inn. Taka átti einn hóp inn á Teig áður en sumarfríin hefðust og meðferðarheimilinu yrði lokað Alma Maureen Vinson 07.10.1998–03.10.2014 „Aldrei í lífinu hélt ég að ég ætti eftir að gera þetta, að sitja heima með tárin í augunum að skrifa minningargrein um dóttur mína. Elsku litli fallegi engill, það eru engin orð sem fá því lýst hversu mikið við söknum þín. Núna er allt svo hljótt, enginn söngur úr herberginu þínu, enginn gítarleikur, og ekkert verið að kalla á mömmu sína til að biðja hana um að koma með eitthvað. Að koma að barninu sínu látnu í rúminu sínu er ekki það sem nokkur getur hugsað sér að eiga von á, við stóðum hérna agndofa, ég og bróðir hennar, skelfingin var svakaleg. Af hverju þú sofnaðir svefninum langa fáum við ekki að vita strax en sjálfsagt er ekki hægt að kveðja þetta líf á fallegri máta. Lífið hafði ekki alltaf verið dans á rósum en þú gerðir allt sem þú gast til að halda þínu striki. Framtíðarplönin voru alveg á hreinu, að klára skólann með sálfræði og félagsfræði sem aðalfög, stofna svo meðferðarheimili fyrir börn sem hafa lent í vandræðum, því þú vildir ekki að neinn þyrfti að ganga í gegnum það sem þú varst búin að gera.“ Úr minningargrein Hildar móður og Stefáns bróðir Ölmu. Steindór Smári Sveinsson 03.08.1986–13.06.2018 „Þá er síðasta kafla í lífi bróður míns lokið. Hann var jarðsunginn í dag umkringdur fjölskyldu og vinum. Athöfnin var afburða falleg rétt eins og drengurinn sem við kvöddum í hinsta sinn. Þakkir til allra sem sáu sér fært að kveðja hann með okkur.“ Daníel Örn Sigurðsson, bróðir Steindórs Smára. Kristján Steinþórsson 28.01.1992–09.06.2018 „Ég á erfitt með að trúa þessu en ætla mér að læra að lifa með sorginni. Þið sem þekktu hann vissuð að þar var á ferð einstakur drengur, ljúfur og góður, afburða greindur og skemmtilegur. Við höfum ákveðið að tala opinskátt um hann og hans líf. Mögulega er hægt að opna augu einhverra með því. Hvíldu í friði elsku drengurinn minn. Ég mun alltaf elska þig af öllu hjarta,“ segir Dagbjört Þórunn Þráinsdóttir, móðir Kristjáns. Guðrún Andrésdóttir 07.09.1989–10.11.2017 „Guðrún var ung kona sem átti allt lífið framundan, hún lést af völdum lyfjaeitrunar lyfseðilsskyldra lyfja, aðeins 28 ára gömul. Andlát hennar kom okkur algjörlega í opna skjöldu. Guðrún var róleg og yfirveguð ung móðir í námi, hún átti sitt heimili og sína framtíðardrauma. Hún var heimakær og var lítið fyrir skemmtanalífið. Áhugamálin hennar voru að vera úti í náttúrunni eða að vera heima og horfa á góðar myndir í rólegheitum. Hún var með smitandi hlátur og mikill húmoristi, hafði hlýja og góða nærveru og var tilfinningarík og trygglynd. Hún var góður vinur vina sinna og góð systir sem hafði alltaf tíma til að hlusta. Hún var á þeim stað þegar hún lést, Þetta var svo stuttur aðdragandi. Í dag eigum við kærleiksríkar minningar um Guðrúnu sem fór allt of fljótt, fór í blóma lífsins og skildi eftir sig þriggja ára yndislegan son,“ segir Fanney Halldóra Kristjánsdóttir, móðir Guðrúnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.