Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 20
20 MENNING 10. águst 2018
„Eins smells undur“ í íslenskri tónlistarmenningu
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
H
ugtakið „one-hit
wonder“ er allnokkrum
kunnugt. Þegar farið er í
gegnum sögu íslenskrar
dægurmenningar og tónlistar er
vissulega ekki pláss fyrir alla til
þess að slá í gegn, hér eða í hin-
um stærri heimi.
Sumir listamenn fá vart
að líta dagsins ljós, þrátt fyrir
taumlausar tilraunir, á meðan
aðrir rétt komast í snertingu við
tinda frægðarinnar, en ná svo
ekki sömu hæðum í kjölfarið. En
það er alltaf þess virði að reyna,
og betra er að ná lágmarksár-
angri en engum.
Nú skulum við slá á létta
strengi og líta yfir ýmsar hljóm-
sveitir og einstaklinga sem
flokka mætti sem „eins smells
undur“ Íslands eða skammlífar
stjörnur. Upptalningin er unnin
út frá fjölda álitsgjafa.
Skítugir mellupeningar
Hljómsveitin Dr. Mister & Mr. Handsome var þungamiðja mikillar um-
ræðu árið 2006 og seldist breiðskífa hennar, Dirty Slutty Hooker Mon-
ey, eins og heitar lummur á þeim tíma. Helstu slagararnir á plötunni
voru lögin Kokaloca og Is it Love? og leit út fyrir að fjögurra manna
sveitin myndi leggja ungdóm Íslands undir sig um ókomna tíð. Því
miður varð það ekki að veruleika en slagararnir lifa enn góðu lífi. Unn-
endur hljómsveitarinnar þráðu svo sannarlega meira á þessum tíma,
en vissulega er betra að hætta á toppnum en teygja góðan lopa.
Smiðjuvegur 4C
202 Kópavogur
Sími 587 2202
hagblikk@hagblikk.is hagblikk.isHAGBLIKK
Þakrennurnar eru frá GRÖNVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Brotna ekki
Ryðga ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt,
silvurgrátt og dökkrautt
Smiðjuvegur 4C • 202 Kópavogur • Sími 587 2202 • hagblikk@hagblikk.is • hagblikk.is
Álþakrennur og niðurföll
Ryðga ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt,
silvurgrátt & dökkrautt
Brotna ekki
HAGBLIKK
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖNVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
Kemst ekki frá
Herbert Guðmundsson er einn
sinnar tegundar hvað varðar sér-
sniðinn töffarabrag. Söngvar-
inn hefur aldeilis ekki haldið sig
frá sviðsljósinu á liðnum árum
og kom sterkur inn á níunda ára-
tugnum með sítt að aftan. Á meðal
hans þekktari laga má nefna Time,
Hollywood og Svaraðu en kom-
ast þau hvergi nærri slagaranum
Can’t Walk Away hvað vinsældir
áhrærir. Segja má að afgangur fer-
i sins hafi horfið í skugga lagsins,
þrátt fyrir að söngvarinn hafi verið
í góðu stuði í gegnum árin. Hann
kemst ekki burt – eins og lagið seg-
ir – og íslensk tónlistarmenning
hefur ekki orðið verri fyrir vikið.
Jeff, hver?
Margur maðurinn kannast við stuðlagið Barfly með Jeff Who? enda
fékk það spilun víða og kom ófáum í réttan gír. Hljómsveitin gaf út
tvær plötur árið 2005 og síðan 2008 áður en meðlimir og sýnileiki
bandsins fór að fjara út. En mikið óskaplega þykir Barfly ennþá gríp-
andi í dag og þegar lagið er sett á fóninn, þá hefst annaðhvort ballið
fyrir alvöru, eða því lýkur með látum.
Trompaði Kryddpíurnar á breska vinsældalistanum
Söngkonan Alda Björk Ólafsdóttir stökk beint í 7. sæti breska vin-
sældalistans með lagið Real Good Time árið 1998. Þá skákaði hún
meðal annars Kryddpíunum góðu sem fóru þá í 8. sætið með Viva
Forever, sem er glæsilegur árangur, þótt það verði reyndar að taka
inn í myndina að Spice Girls hafi verið að sundrast á þessu tímabili
og einni manneskju færri. Engu að síður tókst Öldu að láta stóran
draum rætast, að slá í gegn úti í hinum stóra heimi. Það sem tók við
af velgengni Real Good Time er vart þess virði að það rati í sögu-
bækurnar, en öll merki benda til þess að söngkon