Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Page 32
32 FÓLK - VIÐTAL 10. ágúst 2018
Gefur þetta
EXTRA
Frábært á kjötið, í
sósuna og ídýfuna
n Tekst á við fordæmalausan skala í íslensku barnaefni
E
kki er nóg með að bókafjöldi
hans verði kominn langt yfir
fyrsta tuginn fyrir lok ársins,
heldur vinnur hann hörðum
höndum við metnaðarfulla leik
sýningu og sjónvarpsþáttaröð af
stærðargráðu sem á sér ekkert for
dæmi á klakanum, en þess á milli
tekst hann á við sitt mikilvægasta
hlutverk, sem skákar öllum öðr
um: hlutverk hins nýbakaða for
eldris.
Ævar var ekki lengi að fanga
athygli almennings þegar hann
landaði stóru aukahlutverki í
sjónvarpsþáttaröðinni Dagvakt
inni fyrir tíu árum. Þar lék hann
hinn feimna en hjartahlýja Óðin,
ástmann Georgs Bjarnfreðar
sonar, en hlutverkið barst honum
í hendur eins og þruma úr heið
skíru lofti á þeim tíma. Þá var
Ævar á þriðja ári í leiklistarnámi
LHÍ og bjóst seint við því að fá
stórt hlutverk vegna framkomu
banns í skólanum. Þótti honum
það vera besti tíminn til þess að fá
sér spangir, en hann hafði ýtt því á
undan sér í mörg ár.
„Það fyrsta sem ég heyrði þegar
ég var nýkominn með spangirnar
var að framkomubanninu hefði
verið aflétt og við mættum taka
við hverju sem okkur byðist. Eft
ir að hafa hugsað smástund að
enginn myndi vilja ráða mig, þá
fékk ég þetta hlutverk og þá kom
einnig í ljós að karakterinn hent
aði mjög vel,“ segir Ævar. „Ég er
mjög ánægður að þetta tímabil í
mínu lífi hafi verið skrásett jafn
vel og raun ber vitni.“
Ástin kviknaði við fjarveru
Stebba Hilmars
Nokkrum árum eftir sýningu og
velgengni Dagvaktarinnar kynnt
ist Ævar sinni heittelskuðu, Védísi
Kjartansdóttur, sem hann trúlof
aðist í fyrra. Þau hafa verið saman
í átta ár og voru örvar Amors farn
ar að hitta mark þegar Ævar, ný
útskrifaður úr leiklistardeild
Listaháskólans, lék í sýningu sem
Védís stóð að ásamt vinkonum
sínum, þeim Berglindi Festival,
Ásrúnu Magnúsdóttur og Rósu
Ómarsdóttur en saman skipuðu
þær sviðslistahópinn Hnoð. „Vé
dís bjó úti í Brussel á þessum tíma
og var að læra dans í P.A.R.T.S
dansskólanum en kom heim yfir
sumarið. Þær vinkonurnar í Hnoð
settu upp mjög súra og skemmti
lega sýningu sem hét Snoð,“ segir
Ævar.
„Þær vildu reyndar fá Stebba
Hilmars í sýninguna til að koma
og syngja lagið Ekkert breytir því.
Hann var upptekinn, þannig að
þær hringdu í mig og báðu mig
um að koma og leika Stebba.
Í miðju lagsins var svo hestur
teymdur inn á sviðið, ég kom mér
á bak og kláraði að sjálfsögðu
númerið áður en við hrossið vor
um teymd út af sviðinu.“
Tilfinningin að fara á hest
baki út af sviðinu í miðjum söng
reyndist Ævari blendin, enda var
hljómsveitin, sem spilaði lagið, á
sviðinu og lætin því mikil. „Ég er
alinn upp í sveit í kringum hesta
og ég veit að ef það er trommu
sett einhvers staðar nálægt, þá
getur brugðið til beggja vona. En
þetta gekk vel, enda bæði fólk og
hross hokin af reynslu, og þannig
kynntumst við Védís,“ segir Ævar
og tekur undir orð blaðamanns
um að þetta hafi verið fínasta inn
koma að kynnum þeirra skötu
hjúa og bætir Ævar við að galdur
inn sé auðvitað að fylgja henni
eftir. Þó má segja að það sé alfar
ið fjarveru Stefáns Hilmarssonar
að þakka að parið hafi komið sér
saman og erfinginn í kjölfarið.
Á þeim nótum leynir Ævar ekki
spenningi sínum um foreldrarull
una og hlakkar hann gríðarlega til
þess að taka meiri þátt, hjálpa til í
fjölskyldulífinu og ekki síður leyfa
unnustunni að hvíla sig eftir því
sem aðstæður bjóða upp á. „Mað
ur reynir að standa sig eins vel og
maður getur,“ segir Ævar. „Enginn
Frá sex ára aldri átti Ævar Þór Benediktsson
þann draum að gerast leikari. Þann draum fékk hann
uppfylltan með meiru og er, ásamt mörgum heitum,
orðinn einn vinsælasti höfundur Íslands. Eins og
lengi hefur tíðkast eru mörg járn í eldinum hjá Ævari
og á næstunni bíða hans stærri verkefni en hann
hefur áður fengist við.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Stærsta hlutverkið blasir við Ævari Þór
„Þegar mistökin
eiga sér stað
verður maður
bara að læra
af þeim“