Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Side 35
TÍMAVÉLIN 3510. águst 2018 Gísli var einn stofnandi og formaður Þjóðernis­hreyfingar Íslendinga árið 1933 og eftir það var hann gjarnan kallaður Gitler af póli­ tískum fjendum sínum enda hafði Gísli Adolf Hitler í miklum metum. Árið 1928 hélt hann til Dresden til náms og hreyfst þar af öllu þýsku og sér í lagi nasisman­ um. Foreldrar hans stofnuðu dvalarheimilið Grund og átti hann síðar eftir að taka þar við sem for­ stjóri en á þessum árum var hann frímerkjasali, sá fyrsti á Íslandi. Ekkert hataði Gísli meira en kommúnisma sem hann kallaði „dulbúna drepsótt“ en hann átti eftir að heyja ýmsar rimmur við þá sem formaður þjóðernis­ sinna, sér í lagi ein slagsmál á kolabing við Reykjavíkurtjörn í apríl 1933. Þar reyndu þjóð­ ernissinnar að hleypa upp sam­ stöðufundi kommúnista en Ein­ ar Olgeirsson og fleiri veittust að þeim. Gísli reyndi að stilla til friðar en var þá sleginn í rot og færður til læknis. Seinna var Gísla steypt úr formannssætinu fyrir linkind við kommúnista. Gísli kom víða við, var for­ maður íþróttafélagsins Víkings og stofnaði Krabbameinsfélag Íslands. Árið 1987 hlaut hann ís­ lensku fálkaorðuna. n Gísli „Gitler“ Sigurbjörnsson rotaður á kolabingnum HINIR NÝJU ÞJÓÐERNISSINNARklofnaði aðeins ári eftir að hann var stofnaður. Árið 1934 var því stofn­ aður nýr Flokkur þjóðernissinna. Sá flokkur reyndist mun skipulagðari en forveri sinn og bauð fram til kosninga árið 1934, bæði til Alþing­ is og bæjarstjórnar Reykjavíkur, en hafði ekki erindi sem erfiði. Hinn nýi flokkur var að miklu leyti sprott­ inn upp úr ungliðahreyfingu Þjóð­ ernishreyfingarinnar, Fánaliðunum sem marseruðu um með íslenska fána og sungu ættjarðarlög. Í bæjarstjórnarkosningunum hlaut flokkurinn tæplega 400 at­ kvæði og 2,79 prósent atkvæða sem var langt frá því að duga fyr­ ir fulltrúa. Í alþingiskosningunum fékk flokkurinn færri atkvæði og samanlagt 0,7 prósent. Ekki var ár­ angurinn betri í næstu kosningum á eftir. Eitt af vandamálum þessara hreyfinga var að margir stuðnings­ mennirnir voru óharðnaðir ung­ lingar sem höfðu ekki aldur til að kjósa. Þjóðernissinnar náðu eyr­ um margra nema, bæði í Mennta­ skólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands. Áttu þeir þar bæði inspect­ or scolae og fulltrúa nemendaráðs um tíma. Jarðvegurinn til staðar Bræðurnir Illugi og Hrafn Jökuls­ synir skrifuðu bókina Íslenskir nas­ istar árið 1988 sem rokseldist en þar ráku þeir þessa merkilegu sögu sem fæstir Íslendingar þekkja mjög vel. Illugi segir: „Okkur fannst vanta umfjöllun um íslensku nasistana. Að það hafi yfir höfuð verið til nasistaflokkur á Íslandi hafði verið mikið feimn­ ismál í langan tíma. Ásgeir Guð­ mundsson sagnfræðingur hafði skrifað nokkuð um þetta í tímarits­ greinum en það vantaði bók. Því gengum við í þetta.“ Illugi segir að margir sem þeir ræddu við hafi ekki haft neinn áhuga á að rifja þennan tíma upp og skelltu þeir miskurteisislega á þá í símanum. Af hverju gekk þjóðernisflokkun­ um svona illa að ná fylgi á Íslandi? „Við fundum aldrei nein góð svör við því en við Íslendingar getum verið ánægðir með að þeir hafi ekki náð neinni fótfestu. Það hefði alveg eins verið hægt að búast við góðu gengi því að þær þjóðernishug­ myndir sem hér voru ríkjandi voru ekkert mjög langt frá því sem flokk­ arnir boðuðu. Efnahagslegur jarð­ vegur var einnig til staðar þar sem Ísland fór illa út úr kreppunni. En við höfðum vit á því að stíga skref­ ið ekki lengra en til hefðbundinnar þjóðrækni og fáir sem leiddust út í þessa vitleysu. Sjálfsagt hefðu sterk­ ari leiðtogar skipt einhverju máli en það er ekki gott að segja. Í sumum Evrópulöndum náðu nasista­ og fasistahreyfingar fylgi en í öðrum ekki.“ Vildu þeir afnema lýðræðið? „Já, ábyggilega. Þeir fylgdu þeim fasísku straumum sem bárust frá Evrópu og fyrirlitningu á lýðræðinu en sem betur fer var fylgi þeirra aldrei það mikið að þeir stæðu frammi þeirri spurningu að ræða um framtíðarskipulagið.“ Þurftu aldrei að gjalda Íslenskir þjóðernissinnar voru fá­ mennur en vel sýnilegur hóp­ ur með sína einkennisbúninga og fánahyllingar og sólunduðu aldrei tækifæri til að sýnast stærri en þeir voru í raun. Þannig gekk það allan fjórða áratuginn á meðan fasism­ inn óx í Evrópu og óveðursskýin hrönnuðust upp. En þegar Bretar hernámu landið þann 10. maí árið 1940 lækkaði hratt á þeim risið. „Þeir létu lítið fyrir sér fara eftir það. Áhuginn var lítill að ganga til liðs við Þjóðverja fyrir hernámið en eftir það hurfu þjóðernissinnarn­ ir undir yfirborðið. Það komu upp einstök tilvik þar sem íslenskir þjóðernissinnar grýttu hermenn á götum úti en ekkert stóralvar­ legt. Margir af þeim gengu þá í Sjálfstæðisflokkinn og sumir urðu áhrifamenn þar. Sumir af þeim áttu að stunda njósnir hér á landi og þeir sem voru erlendis voru jafn­ vel sendir hingað með kafbátum til þess en sú starfsemi var í skötulíki þegar allt kom til alls. Sumir fóru og börðust á austurvígstöðvunum og sú saga hefur ekki verið sögð nema að litlu leyti enda höfðu þeir ekki hátt um það þegar þeir sneru aftur.“ Hvernig tóku Íslendingar á sín- um nasistum eftir stríðið? „Þeir reyndu að þegja það í hel og þrýstu á að fá handtekna nasista heim til að þeir slyppu við refs­ ingu. Eftir stríðið vegnaði mörg­ um af þessum mönnum prýðilega í íslensku þjóðfélagi og komust til áhrifa, bæði í stjórnmálum og í við­ skiptum. Sjálfsagt fóru einhverjir í hundana eins og gerist en enginn af þeim þurfti að gjalda þess á nokkurn hátt að hafa verið nasisti. Það var þagað um þetta í marga ára­ tugi eftir stríð.“ Hvað varð um þessi öfgafullu viðhorf, frá stríðslokum þar til nýju þjóðernisflokkarnir voru stofnaðir? „Það var ákveðin þjóðernisbylgja í gangi eftir sjálfstæðið og tiltölu­ lega eðlilegur þjóðernisbelgingur fékk útrás samfélaginu og þótti al­ mennt viðurkennt. En þessi viðhorf hurfu aldrei og lágu alltaf undir yfir­ borðinu. Þetta sást til dæmis þegar Íslendingar vildu ekki að svart­ ir hermenn kæmu til Íslands til að starfa á herstöðinni í Keflavík.“ n Illugi og Hrafn með tímamótabók. Morgunblaðið 30. nóvember 1988 U m áratuga skeið vogaði enginn íslenskur stjórn­ málaflokkur sér að nota þjóðernishyggju eða útlendingamál til þess að afla sér fylgis. Það var þegjandi samkomu­ lag að fara ekki inn á þá braut. Á þessari öld fóru flokkar hins vegar að daðra við þjóðernishyggjuna enn á ný líkt og smáflokkarnir á fjórða áratugnum, en nú í hálf­ gerðri örvæntingu. Fyrst þing­ menn Frjálslynda flokksins þegar fylgi hans fór að dala og síðan Framsóknarflokkurinn í borgar­ stjórnarkosningunum árið 2014. Þetta var hins vegar ekki nóg að margra mati og var því stofnaður sérstakur flokkur sem hafði það á stefnuskránni að hampa íslenskri þjóðmenningu og beita sér gegn innflutningi fólks til Íslands, Ís­ lenska þjóðfylkingin. Litið var til flokka í Evrópu á borð við Þjóð­ fylkinguna í Frakklandi, Sví­ þjóðardemókratana og Danska þjóðarflokkinn sem allir hafa beitt sér sérstaklega gegn innflutningi múslima og moskubyggingum. Flokkurinn bauð fram í al­ þingiskosningunum árið 2016 en fékk aðeins 303 atkvæði, eða 0,2 prósent og framboðið varð helst þekkt fyrir að tveir oddvitar hafi klofið það á lokametrunum. Ann­ ar klofningsmannanna, Gunn­ laugur Ingvarsson, stofnaði síðar nýjan þjóðernisflokk Frelsisflokk­ inn og minnir það óneitanlega á klofninginn árið 1934. Báðir flokk­ arnir buðu fram til borgarstjórnar Reykjavíkur í vor og varð Frelsis­ flokkurinn hlutskarpari með 147 atkvæði gegn 125 atkvæðum Ís­ lensku þjóðfylkingarinnar. n Gunnlaugur Ingvarsson Formaður Frelsisflokksins og fyrrverandi oddviti Íslensku þjóðfylkingarinnar Guðmundur Þorleifsson Formaður Íslensku þjóðfylkingar- innar Gústaf Níelsson Fyrrverandi odd- viti Íslensku þjóðfylkingarinnar Jón Valur Jensson Frambjóðandi Íslensku þjóðfylkingarinnar Sveinbjörg Birna Sveinbjörns- dóttir Fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins Jón Magnússon Fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins Er fyrirtækið þitt tilbúið fyrir nýju persónuverndarlögin? Hafðu samband við okkur í gegnum DattacaLabs.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.