Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 44
44 10. ágúst 2018FRÉTTIR - ERLENT GIMLI FASTEIGNASALA Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík s. 570 4800 / gimli@gimli.is Næsti kafli hefst HJÁ OKKUR hafðu samband Kennari missti vinnuna því hann vildi ekki heilsa konum með handabandi M úslimskur afleysinga- kennari við Ekeberg- skólann í Noregi vildi ekki heilsa konum með handabandi og því missti hann vinnuna. Í stað þess að heilsa konum með handabandi leggur hann hægri hönd sína á hjarta- stað og kinkar kolli. Rektor skólans telur þetta algjörlega óásættan legt og endurnýjaði því ekki samning við kennarann. Þetta kemur fram í Dagsavisen. „Fólk heldur að þetta sé vegna þess að ég líti niður á konur en ég er ekki að reyna að gera grín að neinum. Hugmyndin á bak við þetta er að fækka freisting- um. Ég skil íslam þannig að spá- maðurinn, megi friður vera með honum, hafi bannað þetta og því fylgi ég þessu,“ sagði umræddur kennari í samtali við Dagsavisen. Bente Alfheim, fyrrverandi rektor skólans, segir að stjórn- endur skólans hafi vitað að þetta væri vandamál þegar maðurinn var ráðinn til starfa og þeir hafi frá upphafi sagt að þeir gætu ekki samþykkt þetta. Samt sem áður hafi verið ákveðið að ráða mann- inn tímabundið til að hann gæti öðlast reynslu á norskum vinnu- markaði. „Ég sé ekki hvernig við eigum að verja fyrir starfsfólki, foreldr- um og nemendum að hann heils- ar ekki með handabandi,“ sagði hún. Maðurinn segir að skólinn sé einfaldlega að nota málið sem yfir varp til að losna við hann í stað þess að taka á þeim vanda- málum sem eru í skólanum, en hann segist hafa þurft að þola kynþáttafordóma og ofbeldi af hálfu nemenda. Deilur Donalds Trump og Koch-bræðra eru átök um stefnu Repúblikanaflokksins N ú eru tæplega 100 dagar í að kosið verði til þings í Bandaríkjunum. Repúblikanar leggja allt í sölurnar til að verja meirihluta sinn í báðum deildum þings- ins og að sama skapi leggja demókratar allt í sölurnar til að komast í meirihluta. Þetta er því ekki heppilegur tími fyrir innan- flokksátök hjá repúblikönum en nú deila hinir valdamiklu Koch- bræður við Donald Trump um stefnu hans. Deilurnar eru átök um stefnu flokksins og hversu langt til hægri hann á að vera. Bræðurnir eiga stærsta einka- fyrirtæki Bandaríkjanna og eru milljarðamæringar. Þeir hafa styrkt Repúblikanaflokk- inn rausnarlega í gegnum tíðina og reikna með að eyða um 400 milljónum dollara í kosningarn- ar í haust. Þeir eru í forsvari fyr- ir samtök fjárhagslegra stuðn- ingsmanna flokksins en þau heita Americans for Prosperity. Þeir hafa árum saman reynt að ýta flokknum lengra til hægri og hafa stutt dyggilega við Teboðs- hreyfinguna svokölluðu og þá sem hafna kenningum um að loftslagsbreytingar séu af manna- völdum. Þeir eru á móti öll- um tegundum ríkisstyrkja, óháð hvort þeir geti ýtt undir hagvöxt, og hafa fjármagnað hugveitur sem styðja málstað þeirra. Þeir styðja einnig ötullega við frjálsa verslun á heimsvísu en það er einmitt ástæðan fyrir árekstrunum við Trump. Bræð- urnir eru algjörlega mótfallnir refsitollum hans og tollastríðum en Trump telur að tollarnir muni gagnast bandarísku efnahagslífi. Bræðurnir hafa því hrundið af stað herferð fyrir frjálsri verslun og hafa viðrað hugmyndir um að þeir muni styðja frambjóðendur demókrata. Þetta hefur að vonum farið illa í Trump. Hann hefur að vanda farið mikinn á Twitter og kallað bræðurna „alþjóðasinna“ en það er mikið níðyrði í huga for- setans. Hann hefur einnig sagt að bræðurnir „séu algjör brandari í hópi réttra repúblikana“ og hefur sagt þá vera hræsnara sem fagni skattalækkunum hans í Banda- ríkjunum en vilji vernda fyrirtæki sín utan Bandaríkjanna. Bræðurnir hafa aldrei verið miklir aðdáendur Trumps og studdu hann ekki í kosningun- um 2016. En deilur þeirra nú, skömmu fyrir kosningar, sýna hversu grunnt er á því góða í Repúblikanaflokknum og einnig deilur vegna popúlistastefnu Trumps og gamallar hugmynda- fræði repúblikana um frjálsa verslun. Þessar deilur koma sér illa fyrir þingmenn flokksins sem eru nú að berjast fyrir sætum sínum en margir þeirra treysta á fjár- framlög frá bræðrunum til að geta rekið kosningabaráttu. Verstu þurrkar í hálfa öld í Ástralíu – Bændur mega nú skjóta kengúrur Þ að sem voru græn engi fyrir ári er nú brúnar eyðimerk- ur, eða því sem næst. Svona er staðan í Nýju Suður– Wales í Ástralíu en þar hefur vetur- inn, nú er vetur þar, verið sá þurr- asti í 50 ár. Ástandið er svo slæmt að yfirvöld hafa veitt bændum heimild til að skjóta kengúrur til að draga úr samkeppni húsdýra og kengúra um mat. Ef ekki fer að draga úr þurrk- unum neyðast margir bændur til að fella bústofn sinn. Júní, júlí og ágúst eru yfirleitt rigningar- mánuðir í Ástralíu en þennan vet- urinn er staðan allt önnur. Vatns- ból hafa þornað upp og sífellt verður lengra á milli polla. Þetta hefur að sjálfsögðu áhrif á dýrarík- ið og í júlí streymdu kengúrur inn í miðborg Canberra til að finna mat og vatn. Þar komu þær sér síðan fyrir í görðum, á knattspyrnuvöll- um og öðrum stöðum. Tæplega 10 millimetra úrkoma hefur mælst í stórum hlutum Nýju Suður-Wales undanfarin mánuð að sögn Sky. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.