Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Síða 18
18 17. ágúst 2018FRÉTTIR - EYJAN
Sænskir kjósendur óöruggir
n Svíar kjósa í næsta mánuði n Nauðgunum og morðum fjölgar
Á
aðeins sjö árum hefur
morðum, frömdum með
skotvopnum, fjölgað um
120 prósent í Svíþjóð. Þá
hefur bílbrunum, skotárásum og
hópnauðgunum fjölgað undan-
farin misseri. Því er ekki að undra
þótt lög og regla í samfélaginu
séu eitt heitasta málið í kosn-
ingabaráttunni en Svíar kjósa til
þings þann 9. september. Í nýjustu
könnun sænska forvarnarráðsins,
BRÅ, kemur fram að 30 prósent
kvenna og 19 prósent allra íbúa
landsins finna til óöryggis þegar
þeir fara út að kvöldlagi, hlutfall-
ið hefur hækkað jafnt og þétt síðan
2013. Um 38 prósent Svía telja að
„mikil“ fjölgun hafi orðið á afbrot-
um á undanförnum þremur árum.
Um 29 prósent eru „mjög óróleg“
vegna afbrotatíðninnar.
Erfitt er að horfast ekki í augu
við staðreyndir í málaflokknum
því tölfræðin sýnir að þróunin hef-
ur verið neikvæð. Almenningur er
meðvitaður um að Svíar standa
frammi fyrir stóru samfélagslegu
vandamáli sem ekki hefur tekist
að leysa þrátt fyrir ýmsar aðgerðir.
Fleiri morð og nauðganir
Það er ekki úr lausi lofti gripið
þegar fólk segist telja að afbrotum
hafi fjölgað. Á milli áranna 2016
og 2017 fjölgaði kærum vegna
nauðgana um rúmlega átta pró-
sent þegar búið er að taka tillit til
fjölgunar landsmanna. Frá 2011
nemur fjölgunin tæplega 21 pró-
senti. Einnig hefur öðrum kyn-
ferðisbrotum fjölgað.
Fjögur prósent sænskra kvenna
segjast aðspurð hafa orðið fyrir
kynferðisofbeldi á síðasta ári,
flestar eru þær á aldrinum 16 til 24
ára. Hvað varðar skotárásir er töl-
fræðin jafnvel enn verri. Á síðasta
ári skráði lögreglan 320 slík mál,
40 létust í þessum málum þar af
aðeins ein kona. Þetta er 120 pró-
senta aukning frá 2011. Það er þó
jákvætt að það sem af er ári hef-
ur skotárásum fækkað en þær eru
enn mjög margar. Í Malmö hafa 10
verið skotnir til bana það sem af er
ári. Þar af voru þrír menn skotn-
ir til bana og þrír særðir í einni
skotárás í sumar. Almenningur er
þó ekki í skotlínunni öllum stund-
um að sögn BRÅ og líkurnar á að
vera skotinn eru ekki meiri nú en
fyrir nokkrum árum. Skotárásirnar
snúast um átök glæpagengja og
þau hafa hreyft við tölfræðinni.
Í raun hefur morðum vegna af-
brýðisemi og í hópum þeirra sem
minna mega sín fækkað en átök
glæpagengja vega þar upp á móti í
tölfræðinni og rúmlega það. Flest
fórnarlömbin eru ungir karlmenn
í stóru borgunum Malmö, Gauta-
borg og Stokkhólmi. Átökin snú-
ast að miklu leyti um yfirráð yfir
fíkniefnamarkaðinum.
Hvað varðar kynferðisbrot-
in hefur dómum ekki fjölgað en
kærðum málum hefur fjölgað.
Hjá BRÅ telja sérfræðingar líklegt
að kynferðisbrotum hafi fjölgað,
það sé ekki bara þannig að fólk sé
frekar farið að kæra þau en það
geti líka spilað inn í fjölgun kæra.
Hverjir fremja afbrotin
Ein af skýringunum á þessari
auknu glæpatíðni er að innflytj-
endur eigi hlut að máli, og nýtur sú
skýring sífellt meiri hylli. Málefni
innflytjenda og flóttamanna hafi
lengi verið einhvers konar tabú í
umræðunni í Svíþjóð en breyting
hefur orðið þar á á undanförn-
um misserum. Áður fyrr var sem
þjóðin væri nokkuð samstíga um
stefnuna í þessum málum en það
hefur verið að breytast. Svíþjóðar-
demókratarnir eru í fararbroddi
þeirra sem benda á að innflytjend-
ur eigi hér hlut að máli en flokk-
urinn vill gjörbreyta stefnunni í
innflytjendamálum. Það er erfitt
að styðja þetta með tölum því frá
2005 hefur ekki verið safnað gögn-
um um hverjir fremja afbrot, hvort
það eru innfæddir eða innflytj-
endur eða afkomendur þeirra.
Sænskir fjölmiðlar, þá helst
Dagens Nyheter, Expressen og
Aftonbladet, hafa því tekið að sér
að kafa ofan í refsidóma til að geta
skýrt frá hverjir fremja afbrotin.
Dagens Nyheter fór til dæmis
yfir mál 47 grunaðra og 53 sak-
felldra fyrir morð og morðtilraun-
ir með skotvopnum, allt mál sem
komu fyrir dómstóla. Niðurstaðan
var að annað foreldri gerendanna,
hið minnsta, var útlent. Helming-
ur þeirra fæddist utan Svíþjóð-
ar. Flestar fjölskyldurnar voru frá
Norður-Afríku eða Mið-Austur-
löndum.
Í maí birti Aftonbladet umfjöllun
um hópnauðganir. Farið var í gegn-
um 58 mál frá 2012 en 112 höfðu
verið sakfelldir í þeim. Niðurstaðan
var að gerendurnir voru yfirleitt
ungir, undir áhrifum vímuefna og
þekktu fórnarlambið. En það sem
vakti mesta athygli og umtal var
að tæplega þrír af hverjum fjórum
voru fæddir utan Evrópu.
Í kjölfar umfjöllunar Afton-
bladet í maí um gerendur í
hópnauðgunarmálum kröfðust
margir stjórnmálaflokkar þess að
BRÅ myndi aftur byrja að skrá af-
brot innflytjenda sérstaklega. BRÅ
ætlar að verða við þessu og hefja
slíkar skráningar á næsta ári. Hjá
stofnuninni eru þó skiptar skoð-
anir um þetta og sumir telja mik-
ilvægara að rannsaka hvernig
hægt sé að hjálpa ungum piltum,
sem koma til landsins, að skilja
sænskar venjur og gildi.
Er samfélaginu um að kenna?
Þessar tölur hafa haft mikil áhrif
á umræðuna en afbrotafræðingar
og félagsfræðingar höfðu fram að
þessu vísað því á bug að menning
og erlendur uppruni væri eitthvað
sem þyrfti að hafa sérstaklega í
huga við rannsóknir á afbrotum.
Einn vinsælasti viðmælandi fjöl-
miðla þegar kemur að umfjöllun
um afbrot er afbrotafræðingur-
inn Jerzy Sarnecki. Aftonbladet
hafði eftir honum að hlutfall inn-
flytjenda í afbrotatölfræðinni væri
hátt, of hátt, en það væri aðallega
vegna þeirra aðstæðna sem þeir
búa við í Svíþjóð, til dæmis vegna
stéttaskiptingar. Þá taldi hann
einnig hugsanlegt að réttarkerfið
mismuni þeim og ekki sé útilokað
að lögreglan sé viljugri til að rann-
saka mál þeirra en innfæddra Svía.
En sífellt fleiri Svíar sætta sig
ekki við skýringar sem þessar.
Það getur hugsanlega skýrt
mikla fylgisaukningu Svíþjóðar-
demókratanna þessa dagana. Sví-
ar hafa fram að þessu almennt
ekki spáð mikið í uppruna fólks,
það hefur frekar verið dæmt út
frá gerðum sínum en ekki upp-
runa eða húðlit. En þetta viðhorf
gæti verið að breytast vegna um-
ræðunnar um innflytjendur en
Svíar hafa tekið við miklum fjölda
innflytjenda og flóttamanna á
undanförnum árum. Nú er svo
komið að mörgum Svíum þykir fá-
ránlegt að tengsl afbrota og fjölg-
unar innflytjenda séu ekki rann-
sökuð. Það sé eins og yfirvöld séu
í afneitun. n
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
ORÐIÐ Á GÖTUNNI
Innbrotsþjófurinn er
líka hirðljósmyndari
Sjálfstæðisflokksins
„Þetta er hugsanlega vanhugsaðasta
og vandræðalegasta upphlaup sem ég
hef orðið vitni að á mínum átta ára ferli
í pólitík. Þau mæta með ljósmyndarann
sjálf sem bíður hér,“ sagði Kristín Soffía
borgar fulltrúi Samfylkingarinnar um
útgöngu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á
fundi skipulagsráðs í vikunni. Sagði Kristín
að Sjálfstæðismenn hefðu verið svo æstir
í að komast í fréttir að þeir hefðu komið
með eigin ljósmyndara með sér.
Ljósmyndarinn sem um ræðir er
Sigtryggur Ari Jóhannsson, fyrrverandi
ljósmyndari DV, en hann starfar í dag á
Fréttablaðinu. Kamelljónið Sigtryggur,
eða Diddi eins og hann er gjarnan kallaður,
er enn og aftur hafður fyrir rangri sök
þegar hann er við störf. Stutt er síðan að
íbúar í Vesturbænum töldu Didda vera
innbrotsþjóf að undirbúa óhæfuverk
þegar hann gaf sér góðan tíma til að taka
ljósmyndir af húsi knattspyrnukappans
Gylfa Þórs Sigurðssonar. Í grúppu íbúa
í Vesturbænum hafði fólk verulegar
áhyggjur. Nú er Diddi enn og aftur hafður
fyrir rangri sök og er nú sagður hirðljós-
myndari Eyþórs Arnalds og hans fólks.
Diddi var vitanlega á svæðinu á vegum
Fréttablaðsins og hafði haft veður af
því að mögulega væri frétt í uppsiglingu.
Orðið á götunni er að á ritstjórn Frétta-
blaðsins hafi ein okkar reyndustu og bestu
blaðakonum haft á orði að aðra eins
vitleysu hefði hún ekki heyrt á sínum ferli
og þegar Diddi var sakaður um að vera
handbendi Sjálfstæðismanna. „Þetta er
maður sem er eins lítið til fara og Sjálf-
stæðismaður og hugsast getur. Hann er
eins og Pírati!“ hrópaði
blaðakonan upp yfir
sig, eins og henni
einni er lagið.
Eftir stendur
spurningin, hvort
er verra að vera
sakaður um að
vera ósvífinn
innbrotsþjófur
eða hirðljós-
myndari
Sjálfstæð-
isflokks-
ins!
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt