Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Qupperneq 20
20 SKRÝTIÐ 17. ágúst 2018
M
ikil spenna ríkir þessi
misserin í samskiptum
Vesturlanda og Rússlands.
Þá er algjörlega óútreikn
anlegur forseti við völd í Bandaríkj
unum og erfitt að spá fyrir um hvað
hann geri í ýmsum málum. En er
hætta á að þriðja heimsstyrjöldin
brjótist út? Sumir telja það en aðr
ir eru rólegri og treysta á skynsemi
fólks. En hvað sagði spámaðurinn
Nostradamus um málið?
Michele de Nostredame, betur
þekktur sem Nostradamus, var
apótekari sem var uppi á sextándu
öld. En auk þess að stunda lyf
sölu dundaði hann sér við skriftir
og skrifaði meðal annars Les Pro
pheties, sem er safn 942 ferskeytla,
sem margir telja vera spádóma um
framtíðina.
En getur verið að í þessu mikla
safni ferskeytla leynist spádómur
um þriðju heimsstyrjöldina? Það
telja sumir. Samsæriskenninga
smiðir hafa grandskoðað skrif hans
áratugum saman og margir telja
hann ótvírætt hafa spáð rétt fyrir
um marga atburði. Hann er með
al annars sagður hafa spáð fyrir um
brunann mikla í Lundúnum 1666 og
valdatöku Adolfs Hitler í Þýskalandi.
Margir þeirra sem hafa trú á
spádómum Nostradamusar telja
að hann hafi spáð fyrir um þriðju
heimsstyrjöldina og að hún muni
standa yfir í 27 ár. Þessi spá er sögð
vera falin í einni ferskeytlu hans.
Miðað við túlkanir á ferskeytl
unni mun stríð brjótast út í hjarta
Evrópu, Frakklandi, á milli tveggja
stórvelda.
„Stóra stríðið mun hefjast í
Frakklandi og ráðist verður á alla
Evrópu. Þetta verður langt og hrylli
legt stríð en að lokum verður frið
ur en aðeins fáir munu njóta hans.
Stríð á milli tveggja stórvelda mun
hefjast og það mun standa í 27 ár.“
Í annarri ferskeytlu er
Nostradamus sagður spá fyrir um
stríð í Asíu á milli NorðurKóreu og
Bandaríkjanna.
En er einhver ástæða til að taka
þetta alvarlega? Eigum við að trúa
því að maður sem var uppi á sext
ándu öld hafi getað spáð rétt fyrir um
atburði í framtíðinni? Það verður víst
hver og einn að gera upp við sig.
Hafa spádómar hans ræst?
Þeir sem telja sig geta túlkað fer
skeytlur Nostradamusar og tengt
við samtímann hverju sinni eru
sannfærðir um að margir spádóma
hans hafi ræst. Hann er sagður hafa
spáð fyrir um frönsku stjórnar
byltinguna, kjarnorkuárásirnar á
Japan, morðið á Olof Palme, upp
gang nasisma í Þýskalandi og er
sagður hafa nefnt Hitler með nafni.
Hann er einnig sagður hafa spáð
fyrir um hrun Sovétríkjanna, báð
ar heimsstyrjaldirnar, árásirnar á
Tvíburaturnana í New York 2001,
stríðið í Írak og fangabúðir Banda
ríkjamanna í Guantanamo á Kúbu.
Nostradamus er sagður hafa
spáð fyrir um kreppuna sem skall
svo harkalega á okkur 2008 og hafa
verið skýrmæltur um hættu sem
Vesturlandabúum muni stafa af
ofsatrúarmönnum frá Arabaríkj
um.
Margir sérfræðingar stigu fram
eftir að kreppan skall á 2008 og
sögðust hafa séð hana fyrir en
miðað við það sem aðdáendur
Nostradamusar segja þá spáði
hann fyrir um hana um miðbik
sextándu aldar.
Endalok neyslusamfélagsins,
Nauðungaruppboð og vaxandi van
trú á getu stjórnmálamanna, Hrun
verðbréfamarkaðarins, Verðbólga
og gerræði, eru fyrirsagnir í bók
Guðmundar Sigurfreys Jónassonar
um spádóma Nostradamusar sem
kom út 1987, löngu áður en krepp
an skall á svo hér er ekki um eftir
átúlkun spádómanna að ræða. All
ar þessar fyrirsagnir eiga við um
það sem gerðist í tengslum við
kreppuna nema hvað vandséð er
að neyslusamfélagið hafi liðið und
ir lok, kannski stendur það bara
styrkari fótum en nokkru sinni
áður?
Hinn mikli leiðtogi frá Íslandi
Þá spáði hann fyrir um að al
heimsleiðtogi kæmi frá Íslandi á
þessari öld. Sú spá hefur ekki enn
ræst en það er nú ansi mikið eftir af
öldinni þannig að ekki er öll von úti
um að þessi spá rætist og kyndi þar
með undir þjóðarstolti okkar Ís
lendinga. Þessi nýi leiðtogi er sagð
ur verða boðberi nýrrar og gjör
breyttrar heimsmyndar og nefnir
Nostradamus hann Herakles Selin.
„Þar sem þrjú höf (Atlants
haf, Grænlandshaf og Íslandshaf)
liggja að landi fæðist sá sem ger
ir fimmtudag (Þórsdag) að hátíð
isdegi. Frægð hans, völd og vegs
auki mun vaxa þegar Asía riðlast
vegna styrjaldar á sjó og landi.“
Hvað bíður okkar?
Hann spáði einnig fyrir um innrás
Kínverja í Evrópu en sú spá hefur
nú ekki enn ræst. Meðal fyrir
sagna í kafla bókarinnar Spádóm
ar Nostradamusar um herskáa Kín
verja má nefna: Innrás Kínverja
í Evrópu, Þriðja heimsstyrjöldin,
Bandalag Kínverja og múslima,
Herför að Rín og Dóná.
Þetta hefur ekki enn ræst eins og
fyrr segir en hver veit hvað framtíð
in ber í skauti sér?
En Nostradamus hefur að
sögn einnig spáð fyrir um innrás
múslima í Evrópu í kjölfar árásar á
múslimaríki og þess að mikilfeng
legur leiðtogi múslima komi fram
á sjónarsviðið. Nostradamus er
sagður hafa spáð fyrir um að Írak,
Íran, Alsír, Túnis og Líbía ráðist á
Evrópu en Tyrkir og Egyptar standi
fyrir utan þetta bandalag og verði
sjálfir fyrir barðinu á því. Það verða
að sögn Tyrkland, Grikkland, Ítalía,
Frakkland og Spánn sem verða fyrir
barðinu á innrásarhernum.
Nostradamus er einnig sagður
gefa í skyn að tvö voldugustu ríki
Asíu og Afríku muni fara með
hernaði alla leið að Rín og Dóná.
En meðal fyrirsagna á spádóm
um Nostradamusar um stríðsátök
má nefna:
Styrjöld við Ísrael breiðist út
til VesturEvrópu, Þjóðverjar og
Spánverjar í styrjöld við múslima,
Kafbátaárásir á Bretlandseyjar,
Múslimar herja á Evrópu, Írak gerir
skyndiárás á NATOríki.
Nostradamus er sagður hafa
spáð fyrir um að hans eigin spá
dómar hljóti viðurkenningu árið
2066 og því ættum við að geta varp
að öndinni léttar þangað til þar
sem heimsendir verður varla fyrir
þann tíma.
En rétt er að hafa í huga að
allt eru þetta síðari tíma túlkanir
manna á skrifum Nostradamusar
en ferskeytlur hans þykja oft og tíð
um torræðar og erfiðar í túlkun. n
Er stutt í þriðju
heimsstyrjöldina?
n Hvað sagði Nostradamus? n Hvaða spár hans hafa ræst?
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Spáði fyrir um kjarnorku-
árásirnar á Japan.
Samkvæmt spám Nostradamusar leika Kínverjar stórt hlutverk.
RÁIN
Hafnargata 19a
Keflavík
S. 421 4601
FERSK OG FALLEG
ÞJÓNUSTAR
ÞIG Í MAT OG
DRYKK