Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Side 50
50 17. ágúst 2018TÍMAVÉLIN - ERLENT Á rið 1968 var svo sannarlega ár stórra atburða í heimin- um. Miklir umbrotatímar stóðu yfir, ungt fólk reis upp og krafðist breytinga, Víetnam- stríðið var í algleymingi og menn komust í fyrsta sinn á braut um tunglið. En morð settu einnig mark sitt á árið og höfðu án efa áhrif á gang sögunnar. Hér verður sagt frá nokkrum þeirra stóru atburða sem áttu sér stað á þessu merkisári. Vendipunktur í Víetnamstríðinu Þann 30. janúar hóf her Norður- -Víetnam sókn gegn hersveitum Bandaríkjanna og Suður-Víetnam. Þetta var á ákveðinn hátt upphafið að endalokum afskipta Bandaríkj- anna af Víetnamstríðinu. Árásin, sem hefur verið nefnd Tet-árásin, kom Bandaríkjamönnum í opna skjöldu. Um 85.000 hermenn réð- ust á 36 borgir og bæi í suður- hluta Víetnam. Bandaríkjamönn- um og Suður-Víetnömum tókst á endanum að ná aftur yfirráðum yfir þessum borgum og bæjum en árásin hafði þau áhrif að stuðning- ur Bandaríkjamanna við stríðið fór mjög svo þverrandi. Tveir áhrifamenn myrtir Klukkan 18.00 þann 4. apríl stóð Martin Luther King Jr. á svölum hótelherbergis númer 306 á Lorraine Motel í Memphis í Tenn- esse. Klukkan 18.01 var hann skot- inn. Hann var fluttur á nærliggj- andi sjúkrahús en komst aldrei til meðvitundar og var úrskurðað- ur látinn klukkan 19.05. Hann var 39 ára. Í kjölfarið brutust út miklar óeirðir í rúmlega 100 borgum víða um Bandaríkin og það þrátt fyrir að baráttufélagar King fyrir mann- réttindum hafi hvatt fólk til að sýna stillingu. Tveimur mánuðum eftir morðið var James Earl Ray hand- tekinn á Heathrow-flugvellinum í Lundúnum. Fingraför tengdu hann við morðið. Hann játaði en reyndi síðar að draga játninguna til baka. Hann játaði síðan á ný til að kom- ast hjá dauðarefsingu. Hann lést í fangelsi 1968. Þann 5. júní var var Robert F. Kennedy myrtur á Ambassador- hótelinu í Los Angeles. Hann hafði nýlokið við að flytja ræðu í sam- kvæmissal hótelsins. Þegar hann gekk í gegnum anddyri eldhússins í átt að annarri byggingu skaut Sir- han Sirhan, Palestínumaður fædd- ur í Jórdaníu, á hann og hæfði hann í höfuðið og bakið. Kennedy var strax fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð á heila. Um 26 klukkustundum eftir árásina lést hann, 42 ára að aldri. Sirhan var sakfelldur fyrir morðið 1969 og dæmdur til dauða. Dómn- um var breytt í ævilangan fang- elsisdóm 1972 og situr hann enn í fangelsi. Tímamót í sjónvarpi Þann 22. nóvember urðu mikil tímamót í sjónvarpssögunni en þá var þátturinn Plato‘s Stepchildren úr Star Trek-þáttaröðinni sýndur. Í þættinum var áhöfn Enterprise geim- skipsins tekin til fanga af mann- legum Platonians sem bjuggu yfir fjarflutningsgetu sem gerði þeim kleift að neyða áhöfn Enterprise til að gera það sem þeir vildu. James Kirk (leikinn af William Shatner), stjórnandi Enterprise, var þá neyddur til að kyssa Nyota Uhura (leikin af Nichelle Nichol) liðsforingja, en hún var svört. Í ritskoðunardeild hjá NBC var þess krafist að þessu yrði breytt og önnur útgáfa tekin upp en þeir óttuðust að sjónvarpsstöðv- ar í Suðurríkjunum myndu ekki sýna þáttinn. Shatner er sagður hafa eyðilagt upptökurnar á öllum breyttu útgáfunum til að tryggja að stöðin yrði að sýna kossinn. Ein af setningum Kirks í þættinum var einmitt: „Þaðan sem ég kem skiptir stærð, lögun eða litur engu máli,“ og verður það að teljast mjög viðeigandi miðað við koss- inn fræga. Tímamót í geimferðum Á aðfangadag urðu tímamót í geimferðum en þá fór Apollo 8 geimfarið 10 hringi um tunglið. Um borð voru Jim Lovell, Bill And- ers og Frank Borman. Þeir urðu því fyrstir til að fara á braut um tunglið. Þessi geimferð var um margt sögu- leg en í henni tóku menn í fyrsta sinn mynd af Jörðinni langt utan úr geimnum, meðal annars hina frægu mynd „Earthrise“. Þetta var í fyrsta sinn sem bein útsending af yfirborði tunglsins var í sjónvarpi. Þetta var í fyrsta sinn sem menn fóru til bakhliðar tunglsins. Geim- ferðin stóð yfir í eina viku en segja má að hún hafi verið drifin áfram af geimkapphlaupinu við Sovét- ríkin og löngun og vilja banda- rísku þjóðarinnar til að uppfylla óskir Johns F. Kennedy forseta um að menn skyldu lenda á tunglinu áður en áratugurinn væri á enda. Það tókst sjö mánuðum síðar þegar Apollo 11 lenti þar og menn stigu fæti á þennan næsta nágranna okkar. Stúdentauppreisnin í París Sumir segja að ’68 kynslóðin hafi verið sú róttækasta sem sögur fara af en aðrir eru því algjörlega ósam- mála. Stúdentauppreisnin í París hófst þann 10. maí og hafði mikil áhrif um alla Evrópu. Viku áður hafði lögreglan verið kölluð að Sorbonne-háskóla og var látin taka skólann yfir. Í fram- haldinu fóru stúdentar að marsera um götur borgarinnar daglega og takast á við lögregluna. Stúd- entarnir grýttu lögregluna sem svaraði með táragasi. Þann 10. maí var talið að um 20.000 mótmæl- endur væru á götunum. Þeir voru í öllum götum sem lágu að Sor- bonne. Þegar dimma fór byrjuðu þeir að rífa upp gangstéttarsteina, náðu í efni á byggingarsvæði og veltu bílum til að búa til sínar eig- in víggirðingar gegn lögreglunni. Klukkan 2.15 um nóttina var lög- reglunni skipað að ryðja göturnar og fjarlægja víggirðingar stúd- entanna. Átökin stóðu yfir í þrjár klukkustundir og voru blóðug. Rúmlega 300 manns særðust. Þau mörkuðu upphaf mikilla breytinga á frönsku þjóðfélagi og breiddust út til annarra ríkja. Njósnaskip á villigötum Þann 23. janúar handsömuðu Norður-Kóreumenn áhöfn banda- ríska njósnaskipsins USS Pueblo og lögðu hald á skipið. Í kjölfar- ið upphófst 11 mánaða krísa sem virtist ætla að gera kalda stríðið enn verra og auka spennuna í þessum heimshluta. Um 15 ár voru liðin síðan samið var um vopnahlé á Kóreuskaga en ástandið var sem fyrr eldfimt. Skipið var að fylgjast með Norður-Kóreu frá Tsushima- sundi sem er á milli Kóreu og Jap- an. Bandaríkjamenn sögðu að skipið hefði verið á alþjóðlegri sigl- ingaleið þegar það var stöðvað en yfirvöld Norður-Kóreu sögðu að það hefði verið í norðurkóreskri lögsögu. Til átaka kom og féll einn bandarískur sjóliði í þeim. Skipið og áhöfnin voru flutt til Norður-Kóreu en 82 skipverjar voru handteknir. Þeim var haldið í fangabúðum þar sem þeir voru pyntaðir og sveltir. Eftir margra mánaða samninga- viðræður féllust Norður-Kóreu- menn á að láta áhöfnina lausa ef Bandaríkin viðurkenndu að skip- ið hefði verið við njósnir og lofuðu að hætta öllum njósnum. Á Þor- láksmessu var áhöfninni sleppt inn á suðurkóreskt yfirráðasvæði. Um leið drógu Bandaríkin viðurkenn- ingu sína á njósnum til baka. USS Pueblo var aldrei skilað aftur til Bandaríkjanna. n 1968 – ár stórra atburða: Stúdentauppreisn, geimferðir, stríð og morð Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Kossinn frægi í Star Trek. Áhöfnin á Apollo 8. Hættuástand vegna USS Pueblo.Martin Luther King skotinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.