Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 62
62 FÓLK 17. ágúst 2018 Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN S. 587 6688 / fanntofell@fanntofell.is / fanntofell.is OPNUM 14. ÁGÚST Í NÝJU OG GLÆSILEGU HÚSNÆÐI AÐ GYLFAFLÖT 6 - 8 Æ var Austfjörð er mikill áhugamaður um nær- ingu. Í ágúst á síðasta ári rakst hann á lækni á netinu sem var að leita sér að sjálf- boðaliðum til að taka þátt í rann- sókn sem fólst í því að borða bara kjöt og drekka vatn í 90 daga. Nú rúmu ári síðar hefur Ævar borð- að rúmlega hálft tonn af kjöti og aldrei liðið betur. „Þetta hefur gert mér gríðar- lega gott. Ég losnaði við liðverki, léttist um nokkur kíló, hef betri einbeitingu og mun betri starfs- orku. Ég hef verið að bæta mig í ræktinni og er farinn að geta gert hluti þar sem ég gerði síðast þegar ég var 25 ára. Þetta er bara allt annað líf,“ segir Ævar sem borðar nær eingöngu rautt kjöt. Mælir með meira kjötáti Ævar mælir hiklaust með því að landsmenn borði meira kjöt. „Mér dettur ekki til hugar að halda því fram að allir eigi að borða eingöngu kjöt. En miðað við það sem ég hef séð gerast hjá fólki sem prófar þá held ég að fólk ætti allavega að borða meira kjöt almennt. Að sjálfsögðu fisk, egg og osta líka ef fólk vill. Þessi matur er auðmeltur og mannslíkaminn getur nýtt nánast allt sem borð- að er. Með plönturnar hins vegar þá er stór hluti af þeim sem gerir ekkert annað en að fara út hinum megin,“ segir hann. Þrátt fyrir bætta heilsu og betri líðan hafa margir lýst yfir efasemdum vegna mataræðis- ins sem Ævar hefur tileinkað sér. „Margir halda sennilega að ég sé algjör bjáni sem geri þetta til þess eins að fá athygli. Umræðan á Facebook-hópnum Vegan Ís- land var á þann veg að ég og fleiri á þessari línu værum að monta okkur af því að borða mikið kjöt til að finnast við vera meiri menn. Það lýsir náttúrlega bara hugar- ástandi þeirra sem þetta segja,“ segir Ævar en honum hefur verið meinaður aðgangur að hópnum. Alveg sama um grænkera Aðspurður um þá sem borða einungis plöntuafurðir segist Ævar alls ekkert hafa á móti þeim hópi fólks. „Mér er alveg sama um þá sem eru vegan. Ég vona bara að enginn af mínum nánustu feti þá braut,“ segir hann og bætir við: „Ég held hins vegar að það muni á endanum koma niður á heils- unni því líkaminn þarf bæði dýra- prótein og dýrafitu. Þetta er nær- ingarsnautt fæði sem þarf að hafa töluvert fyrir að láta ganga upp.“ Hann furðar sig á skoðunum þeirra sem neita sér um dýra- afurðir af mannúðarástæðum. „Mér finnst þeir sem gera þetta samviskunnar vegna gera þetta á röngum forsendum. Þeir sem gera þetta til að vernda dýrin ættu frekar að einbeita sér að því að velja afurðir dýra sem vitað er með vissu að fá mannúðlegt og gott eldi. Að gera þetta fyrir dýrin er svona eins og að ætla að vera sjálfboðaliði Rauða krossins á víg- velli að ævistarfi. Þú gætir hugs- anlega komið heill út úr því en líkurnar eru afar litlar,“ segir Ævar. Er hvergi nærri hættur Ævar hyggst halda ótrauður áfram og hvetur þá sem hafa áhuga á sama lífsstíl að bæta sér í hópinn Iceland Carnivore Tribe á Face- book en þar eru yfir 2.000 manns. „Ég sé enga ástæðu til að breyta til. Er gáfulegt að fara að borða aftur eitthvað sem augljóslega var ekki að gera mér gott? Það þykir mér ekki. Konan mín vill ekki að ég breyti út af. Hún kann betur við mig svona. En hvort ég á aldrei eftir að smakka plöntuafurðir er ekki gott að segja, ef ég til dæm- is fer í mat til mömmu. Mér þykir samt líklegra að ég fái mér köku- sneið eða ís frekar en að troða í mig einhverju grænmeti sem ekkert gefur af sér,“ segir Ævar að lokum og hlær. n „Alveg sama um þá sem eru vegan“ Ævar Austfjörð hefur í heilt ár nær eingöngu borðað rautt kjöt Óðinn Svan Óðinsson odinn@dv.is „Líklegra að ég fái mér kökusneið eða ís frekar en að troða í mig einhverju grænmeti Venjuleg máltíð hjá Ævari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.