Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Qupperneq 9
15. júní 2018 FRÉTTIR 9
Gefur þetta
EXTRA
Frábært á kjötið, í
sósuna og ídýfuna
Eftir að Kiana tilkynnti hið
meinta kynferðisafbrot fluttist
hún af heimili móður sinnar til
móðurömmu sinnar í Kópavogi.
Kemur fram í skýrslu frá Barna-
verndarnefnd Kópavogs að Kiana
hefði ekki stuðning móður sinn-
ar. Þar kemur einnig fram að Ki-
ana hafi óskað eftir frekari hjálp
fagaðila til að takast á við líðan
sína en móðir hennar hafi hafnað
þeirri beiðni. Óskaði Barnanefnd
Kópavogs eftir að Kiana gæti sótt
meðferð í Barnahúsi án sam-
þykkis móður sinnar, þar sem
hún hefði ekki orðið við þeirri
ósk að sækja sér frekari meðferð.
Barnavernd Mosfellsbæjar taldi
það mikilvægt að Jóhanna, móð-
ir Kiönu, og Aðalbergur fengju
sérfræðiviðtöl með tilliti til fram-
haldsins og stuðning um hvernig
ætti að sameina fjölskylduna að
nýju. Þau fóru í tvö sérfræðiviðtöl
hjá sálfræðingi en töldu sig ekki
þurfa á fleiri viðtölum að halda
að þeim loknum.
Eins og áður segir fékk Að-
albergur á sig aðra kæru vegna
meints kynferðisafbrots gegn
Helgu Elínu árið 2011. Það brot
átti að hafa átt sér stað í sumarbú-
stað í Skorradal árið 2007. Helga
Elín, sem þá var 10 ára gömul,
fékk að slást í för með Kiönu
vinkonu sinni, Jóhönnu móður
hennar og stjúpföðurnum Að-
albergi. Með í för var annað par
ásamt dætrum sínum, Páll Win-
kel fangelsismálastjóri og fyrrver-
andi kona hans.
Hið meinta kynferðisbrot Að-
albergs var tilkynnt lögreglu
þann 13. október 2011. Tveimur
dögum eftir að Helga Elín hafði
brotnað saman í skólanum sín-
um og sagt kennara sínum frá því
hvað hefði gerst þessa umræddu
helgi í sumarbústaðnum í Skorra-
dal. Teknar voru skýrslur í Barna-
húsi af Helgu Elínu, brotaþola, og
Kíönu Sif sem vitni, eins og áður
segir. Einnig var rætt við vinkonu
Helgu Elínar þar sem hún sagði
vinkonu sinni frá meintum brot-
um áður en hún sagði kennara í
skólanum sínum frá.
Taldi að um samantekin ráð
stúlknanna væri að ræða
Í viðtölunum kemur fram að
Helga Elín og Kiana Sif hafi sof-
ið á vindsæng frammi í stofu.
Helga Elín hefði vaknað við það
að „kallinn“ væri að káfa á kyn-
færum hennar. Nánar aðspurð
skýrði hún frá því að „kallinn“
hafi verið Aðalbergur, stjúpfaðir
Kiönu. Í fyrstu hefði hún fros-
ið og ekki þorað að gera neitt né
segja eitthvað, en það leið ekki á
löngu þar til hún brast í grát og
vildi fá að tala við Jóhönnu, móð-
ur Kíönu. Að sögn Helgu Elínar
fór hann með hana til Jóhönnu
en þá þorði hún ekki að segja
neitt fyrir framan hann. Við yfir-
heyrslur lögreglu kannaðist Jó-
hanna hins vegar ekki við að Að-
albergur hefði komið með hana
til sín grátandi þetta umrædda
kvöld. Einnig sögðu Páll Winkel
og kona hans við yfir heyrslur að
þau hefðu hvorugt munað eft-
ir því að Helga Elín hafi farið að
gráta þetta kvöld.
Aðalbergur var kallaður
til yfirheyrslu hjá lögreglunni
þann 13. desember 2011,
eða tveimur mánuðum eftir
að kæra Helgu Elínar barst
lögreglu. Í gögnum málsins
kemur fram að fyrst hafi ver-
ið rætt við þáverandi eigin-
konu hans fimm dögum áður
en yfirheyrslan yfir honum
fór fram. Í yfirheyrslum kem-
ur fram að þegar honum var
bent á að meint brot hans
gegn Helgu Elínu væru sams
konar og þau brot sem Ki-
ana, stjúpdóttir hans, bar á
hann árið 2009, sagðist Að-
albergur telja að þetta væru
samantekin ráð hjá stelpunum.
Hann var spurður hvort
hann og Páll hefðu verið ölv-
aðir þetta kvöld. Minntist hann
þess ekki en að þeir hefðu nú ör-
ugglega fengið sér rauðvín með
matnum og bjór um kvöldið.
Spurður hvort hann ætti við
áfengis vandamál að stríða sagði
Aðalbergur: „Nei, ekki lít ég
svo á. Enda væri mér nú erfitt
að sinna mínu starfi ef ég væri
alltaf fullur.“ Í lok yfirheyrslunn-
ar var hann spurður hvort vildi
bæta einhverju við framburð
sinn og sagði hann þá meðal
annars: „En bara svona ásak-
anir sem eru algerlega í lausu
lofti gripnar án þess að ég ætla
að saka þessa stúlku um vís-
vitandi að ljúga einhverju.
Það getur vel verið að hún hafi
orðið fyrir einhverju einhvers
staðar af hendi einhvers.“
Yfirheyrslur á skrifstofu
Fangelsismálastofnunar
Yfirheyrslur yfir vitnum fóru
síðan fram þremur mánuð-
um eftir að kæra Helgu
Elínar var lögð fram. Páll
Winkel og þáverandi kona
hans voru bæði í sumarbú-
staðnum ásamt dætrum sín-
um þegar meint brot átti sér
stað og voru því vitni í mál-
inu. Þann 12. janúar 2011 voru
Páll og þáverandi eiginkona hans
bæði yfir heyrð í húsnæði Fang-
elsismálastofnunar í Borgartúni
7, rúmlega 500 metrum frá lög-
reglustöðinni við Hverfisgötu.
Yfirheyrslurnar stóðu yfir í 10
mínútur yfir hverjum einstak-
ling. Við yfirheyrslur sagði Páll
að hann hefði þekkt og haft kynni
af Aðalbergi frá því að þeir unnu
saman í lögreglunni í Reykja-
vík. Hann tók það fram að
fjölskyldurnar hefðu haft
nokkur samskipti, en þau
hefðu minnkað síðustu
ár og væru lítil sem engin
þegar þar var komið sögu.
Páll sagðist ekki hafa mun-
að eftir hvort eiginkonur
þeirra Aðalbergs hafi farið
á undan þeim Aðalbergi að
sofa. Þegar hann var spurð-
ur út í hvort það hefði verið
fyllerí á þeim neitaði hann
því og sagði að í þessum
ferðum hefðu þeir karlarn-
ir fengið sér bjór og að rauð-
vín hefði verið drukkið með
mat. Hann tók fram að börn
hefðu verið í ferðinni og að
tillit hefði verið tekið til þess.
Samkvæmt gögnum sem
DV hefur undir höndum
virðist vera afskaplega erfitt
fyrir lögreglu að tímasetja
brotið þar sem enginn þeirra
fjögurra fullorðnu einstak-
linga sem voru í bústaðnum
þegar brotið átti sér virðist
muna nákvæmlega hvenær
þessi bústaðarferð var farin.
Móðir Helgu Elínar gaf þá
lögreglunni upplýsingar
um símanotkun sína þar
sem hún man að hafa ver-
ið í sambandi við mein-
tan geranda, Aðalberg,
rétt fyrir þessa umræddu
helgi. Samkvæmt símtals-
gögnunum var farið í bú-
staðinn helgina 16. til 18.
febrúar 2007. Einnig stað-
festi Jóhanna að það gæti
staðist að þetta hafi verið í
febrúar 2007 en minnti þó
að þessi umrædda sum-
arbústaðarferð hefði verið
farin 2006. Þó svo að þessi
gögn hafi legið fyrir lagði
lögmaður Aðalbergs fram
tímaskýrslur úr mætingar-
kerfi lögreglunnar þar sem
kom fram að Aðalberg-
ur hefði verið að vinna all-
ar helgar í febrúar, þar með
talið helgina 16. til 18. febrúar.
Þar vann hann samkvæmt skjal-
inu slétta 10 klukkutíma bæði
laugardag og sunnudag. Var það
eitt af rökum saksóknara fyrir að
gefa ekki út ákæru að ekki væri
„ERUM STERKARI SAMAN“
Kiana Sif
Lovísa Sól
Helga Elín
M
Y
N
D
IR
H
A
N
N
A