Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 52
52 BLEIKT 15. júní 2018
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýstingi og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
„EINELTI ER LJÓTT“
R
agga Nagli
er klínískur
heilsusálfræðing-
ur og einkaþjálf-
ari. Á Facebook heldur
hún úti vinsælli síðu þar
sem hún birtir reglulega pistla
um hreyfingu, mataræði og fleira.
Fyrr á árinu gaf hún út Haframjöls
uppskriftahefti, sem kennir okkur
að nota haframjög á splunkunýjan
hátt og hugsa út fyrir gamla graut-
inn. Enginn sykur, engin aukaefni,
ekkert vesen. Tilvalið hefti fyrir
matarperra sem vilja safna góðum
og girnilegum hollustuhugmynd-
um í gagnabankann.
Bananabrauð Röggu Nagla
Uppskrift:
Þykk sneið af þessu brauði er
guðsgjöf til mannkyns og með
þykkri slummu af MONKI grófu
möndlusmjöri eða gamla góða
skólaostinum getur það dimmu í
dagsljós breytt á örfáum sekúndum.
n 550 g vel lífsreyndur banani
n 225 g Himnesk hollusta fínvalsað haframjöl
n ½ tsk. kanill
n ½ tsk. negull
n klípa salt
n ½ tsk. matarsódi
n 100 ml Good Good sykurlaust síróp
Aðferð: Hita ofn í 180°C. Smyrja brauð-
form 20×11 cm. með fljótandi kókosolíu
(Himnesk hollusta) Hræra öllu saman með
töfrasprota eða í blandara þar til þykkt deig
hefur myndast. Baka í 35–40 mínútur.
G
uðný María Arnþórsdóttir
er ljón, og hún verður 63
ára í byrjun ágúst. Guðný
María var komin vel á aldur
eins og sagt er þegar hún ákvað að
láta drauma sína rætast, semja lög
og gefa út, en hún hefur gefið út 11
lög frá því í desember í fyrra.
Vinsælasta lag hennar til þessa
á YouTube-rás hennar er lagið
Okkar okkar páska, en þegar þetta
er skrifað hafa um 66 þúsund
horft á myndbandið. Velgengnin
staðfestir þá hugmynd Guðnýjar
að páskarnir hafi orðið útundan
þegar kemur að íslenskum laga-
og textasmíðum.
En útgáfa laganna og velgengni
og gleði Guðnýjar virðist ekki falla
í kramið hjá öllum og segir Guðný
í viðtali við DV að hún hafi orðið
fyrir einelti, hæðni og fengið mið-
ur leiðinlegar athugasemdir, sér-
staklega eftir að nýjasta lag henn-
ar, Sumarhiti, kom út fyrir rúmri
viku.
„Þetta er eiginlega orðið ein-
elti, það er verið að hæðast að mér
og reyna að rakka mig niður,“ seg-
ir Guðný. „Lögin og myndböndin
virðast ögra ímynd fólks, sérstak-
lega eldri kvenna. Það er undarlegt
hvernig konur láta oft.“
Í myndbandinu við lagið
Sumar hiti dansar Guðný léttklædd
við ungan mann, aukaleikara sem
er um tvítugt. „Það var kona á
aldur við mig sem skrifaði grófa
athugasemd hjá mér þegar ég
deildi myndbandinu á Facebook
hjá mér. Kallaði hún mig barnaníð-
ing. Ef ég væri karl þá þætti öllum
þetta sjálfsagt og þá væri bara sagt
um aukaleikarann að hann væri að
vinna vinnuna sína.“
Segist ekki fá gigg sökum
eineltis á netinu
Guðný segist vera fædd með
hæfileika í tónlist, en hún hafi ekki
mátt sinna þeim þegar hún var
barn af því að hún var ekki dreng-
ur. Í seinni tíð fór hún hins vegar
að læra tónlist og koma fram.
„Stebbi Hilmars sagði við mig að
ég væri að ryðja brautina og ungar
stúlkur hafa hrósað mér fyrir að
koma fram. Þetta virðast aðallega
vera konur á mínum aldri sem eru
harðastar í eineltinu.
Það er fjöldi fólks að senda
myndbandið áfram og hæðast
og hlæja að mér, og ég er
ekki beðin um „gigg“ af
þeim sökum,“ segir Guð-
ný. „Ég reyni að vera alltaf
jákvæð í textunum mín-
um af því að tónlist á að
vera skemmtileg. Ég vil að
þetta einelti hætti.“ n
n Hæðst að Guðnýju Maríu á netinu n „Það er undarlegt hvernig konur láta oft“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is „Það er
verið
að hæðast
að mér og
reyna að
rakka mig
niður