Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 37
Skagafjörður 15. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is SÓLGARÐAR Í FLJÓTUM: Fjölskylduvæn paradís í fallegri sveit Að Sólgörðum í Fljótum reka hjónin Kristín Sigur rós Einarsdóttir og Alfreð Gestur Símonar son ferðaþjónustu annað sumarið í röð og er opið til 1. september næstkomandi. „Ég er svæðisleiðsögumaður og Alfreð er alinn hér upp á næsta bæ, þannig að við erum tengd staðnum,“ segir Kristín, aðspurð af hverju þau völdu að fara í ferðaþjónustuna. „Við vorum laus við þegar þetta tækifæri gafst í fyrra og það var frábært að fá tækifæri að dvelja í þessari sveit sem okkur hefur alltaf dreymt um að flytja aftur í.“ Gisting er í boði fyrir 19 manns í einu í uppbúnum rúmum, hægt er að taka á móti fleirum á dýnum þegar hópar dvelja í húsinu og einnig geta hópar fengið að tjalda eða gista í ferðavögnum. Á Sólgörð- um eru oft haldin lítil ættarmót eða afmæli og þar dvelja gjarnan hestamanna- og gönguhópar, svo eitthvað sé nefnt. „Við sjáum einnig um sundlaug sem er hér á staðn- um. Hún er opin fyrir almenning sex daga vikunnar, þetta er ekta gömul sveitasundlaug, heit og notaleg,“ segir Kristín. „Við rekum einnig Kaffihús Guðrúnar frá Lundi og það hefur verið mjög vinsælt. Í fyrra buðum við upp á vöfflur en við vildum gera meira úr kaffihúsinu núna í sumar. Nú erum við búin að innrétta það í gömlum stíl og bjóðum upp á súpu, vöfflur, kaffi, ís, kalda drykki og sælgæti. Svo er aldrei að vita nema eitthvað bætist við úrvalið þegar líður á sumarið.“ Kristín býður upp á ferðir með leiðsögn, bæði göngu- og rútuferðir. „Þá hef ég meðal annars farið á slóðir Guðrúnar frá Lundi. Í fyrra opnuðum við Marín Guðrún Hrafnsdóttir, langömmubarn Guðrúnar, sýn- ingu um hana á Sauðárkróki. Farið hefur verið með sýninguna um landið og verður hún á Amtsbókasafn- inu á Akureyri í júní og júlí og síðan á Egilsstöðum og í Keflavík,“ segir Kristín. Eins og alþekkt er þá hafa bæk- ur Guðrúnar notið mikilla vinsælda undanfarið og fást þær á kaffihúsinu, bæði nýjar og notaðar. Einnig fást þar svuntur og taupokar með tilvitnunum úr bókum Guðrúnar. „Í sumar er stefnan að bjóða upp á litla viðburði, tónleika og fjölskyldudag, Fjölskyldufjör í Fljótum, og er stefnt að því að það verði sunnudaginn 23. júlí. Þá verðum við með hoppukastala, andlitsmálningu, grill, leiki og fleira. Við prófuðum þetta í fyrra og það mæltist mjög vel fyrir. Einnig er hægt að horfa á bolt- ann hjá okkur, meðal annars leikina á HM.“ Sólgarður er friðsæll og fjölskylduvænn staður, þar er mjög skjólsælt og stutt milli fjalls og fjöru. Fljótin eru þekkt fyrir fallegt landslag og eru tilvalinn áningar- staður fyrir náttúruunnendur. Góð aðstaða er fyrir börn á Sölgörðum, afgirtur leikvöllur, hægt að grilla og borða nesti og mikið af leikföngum á staðnum. Um 30 kílómetrar eru bæði til Hofsóss og Siglufjarðar, en Sólgarðar eru þar mitt á milli á Tröllaskagahringn- um svokallaða, sem er orðinn mjög vinsæll hjá bæði íslenskum og erlendum ferðamönnum. Sólgarðar eru við veg nr. 787, Flókadalsveg í Fljót- um, síminn er 867-3164, netfangið er gagnvegur@ gmail.com. Facebook: Sólgarðar í Fljótum. Opið alla virka daga, nema þriðjudaga, kl. 15–21. Um helgar er opið kl. 12–17.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.