Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 16
16 BLEIKT - KYNLÍF 15. júní 2018 eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði Boltinn í beinni á castello Hjólbörurnar Lágmarksfjöldi lima: 1 Áreynslustuðull: 2 fyrir aðila 1, 6 fyrir aðila 2 Aðferð: Aðili 1 kemur sér vel fyrir í sófa, með liminn til reiðu. Aðili 2 sest klofvega á hann og rennir getnaðar­ limi aðila 1 inn í leggöng eða endaþarm. Aðili 2 hallar sér svo fram þannig að báðir sjái vel á skjáinn. Hér getur verið hentugt að nota pullu eða skammel fyrir aðila 2 að halla sér fram á. Hafi aðili 2 ekki áhuga á knattspyrnu má allt eins nota tímann til að lesa áhugaverða bók, skoða kisumyndir á Instagram, eða svara helstu skilaboðum á samfélagsmiðlum. Skeiðar í skúffu Lágmarksfjöldi lima: 1 Áreynslustuðull: 2 Sérstakir kostir: Aftari aðili getur notað hendur til að gæla við þann fremri á ýmsa lund (geirvörtur, kviður, læri, snípur eða limur). Hin klassíska skeiðastelling kemur sér einstaklega vel ef sófinn er með djúpri setu. Sé hann það ekki má ef til vill fjar­ lægja bakpúða til að hann verði hent­ ugri. Það frábæra við þessa stellingu er að hún gefur möguleika á djúpum og ró­ legum samförum – svona er jafnvel hægt að liggja heilan hálfleik. Stellingin hentar síður ef aftari aðilinn er með stuttan getn­ aðarlim, þó má vinna með aðfallshorn mjaðma og stellingu fótleggja fremri að­ ilans til að bæta það upp og ná fullnægj­ andi dýpt. Tvíhöfða lótusblómið Lágmarksfjöldi lima: 1 Áreynslustuðull: 5,7 Aðilinn með liminn sem nota á til inn­ setningar sest í sófa eða hægindastól af góðri breidd og hallar sér makindalega aftur á bak. Notið gjarnan púða til stuðn­ ings og aukinna þæginda. Nú er hægt að koma sér klofvega fyrir ofan á þeim sem situr og renna limnum inn þangað sem óskað er. Hendur beggja eru lausar til at­ lota og hægt að taka öllu með ró eða ham­ ast að vild. Gallinn er þó augljós því ekki er hægt að gera ráð fyrir að báðir aðilar njóti leiksins nema annar hafi augu í hnakkanum. Spegill af sæmilegri stærð gæti leyst málið, eða margskjáa upplegg líkt og sjá má á sportbörum bæjarins. Áfram Ísland Lágmarksfjöldi lima: 1 Áreynslustuðull: 4,2 Þessari stellingu má sérstaklega mæla með fyrir þau skipti sem Ísland sést á skjánum á komandi dögum. Hér snúa báðir aðilar að skjánum, sá fremri klofvega á þeim aftari og limur í leggöngum eða enda­ þarmi. Ef fremri aðilinn er með sníp má nota tækifærið hér til að leika við snípinn með fingrum eða titrara. Einnig er aðgengi að kynfærum þess aftari nokkuð gott milli fóta. Meginkosturinn við þessa stellingu er að æsing vegna leiksins má auðveld­ lega fá útrás fyrir með sam­ farahreyfingum. Ímyndið ykkur bara að fagna marki á þennan skemmtilega hátt! N ú þegar heimsmeist­ aramót karla í knattspyrnu er nýhafið og fjöldageðrofið að hell­ ast yfir þjóðina er ekki úr vegi að líta á hvernig má með bestum hætti nýta tímann í sófanum, jafnvel rækta sambönd, og jafnvel stórbæta sambúðina. Ráðin hér miðast sum við einbúa, en önnur við sambýlinga, eða í það minnsta góða vini. Einhverrar nektar kann að vera krafist svo sumt athæfið gangi upp. Við hverja stell­ ingu er tilgreindur lágmarksfjöldi lima, limir geta verið getnaðarlimir af holdi og blóði eða ballarbelti (e. strap­on). HM í ástarleikjum og boltasparki „Þessari stellingu má sérstaklega mæla með fyrir þau skipti sem Ísland sést á skjánum á komandi dögum. HÚH! Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi. raggaeiriks.com raggaeiriks@gmail.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.