Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 38
Skagafjörður 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ Við byrjuðum hér í aflögðu útihúsi í Skagafirði árið 2011. Vorum fyrst með tvær tegundir í flösku en síðan fjölgaði tegundum mikið. Við vorum svo sem ekki að finna upp hjólið því tvö önnur kraftbrugghús, Kaldi og Ölvisholt, voru fyrir á markaðnum. Við fórum sömu leið og þeir, við sótt- um inn á markaðinn ekki undir þeim formerkjum að við værum að höfða til sem flestra heldur að við værum að bjóða upp á eitthvað öðruvísi – viðbót við markaðinn. Þetta einkennist af dálitlum nörda- skap og nýjum stílum,“ segir Árni Halldórsson Haf- stað, stofnandi og eigandi brugghússins Gæðings. Gæðingur er með bruggverksmiðju í Útvík, rétt fyrir utan Sauðárkrók, en síðar í sumar verður opnuð ný verksmiðja í Kópavogi. Mun Gæðingur eftir það starfa á báðum stöðunum en meiri þungi verður í starfseminni í Kópavogi og því ekkert nema léttleikinn fyrir norðan. En hvað er eiginlega kraftbjór? „Skilgreiningin á kraftbjór er snúin og margbrotin en það er í sjálfu sér ekki eðlismunur á kraftbjór og öðrum bjór. Kraftbjór er hins vegar framleiddur í miklu minna magni, hann er meira handgerður; minna staðlaður (og hann er ekki alltaf eins á bragðið). Hann er yfirleitt bragðmeiri og með ríkari karakter en hefðbundinn bjór. Kraftbjór er fyrir þá sem vilja fá dálitla ögrun. Vel gerður kraftbjór er besti bjór sem þú getur bragðað en að sama skapi er ekkert verra enn illa gerður kraftbjór,“ segir Árni. Gæðingur selur afurðir sínar bæði á kútum og dósum. Árni segist hafa fundið fyrir því á sínum tíma að erfitt var að komast með kútana að á börum höfuðborgarinnar sem flestir voru skuld- bundnir stóru framleiðendunum. Þess vegna opn- aði hann MicroBar sem er athvarf fyrir íslenskan kraftbjór og fyrir þá sem hans vilja njóta. MicroBar er núna til húsa að Vesturgötu 2, í kjallaranum undir Restaurant Reykjavík. Samhliða brugghúsinu á Nýbýlavegi í Kópavogi verður opnaður þar annar MicroBar, sem mun tengjast Gæðingi óslítanlegum taumum. Þá verður nú gott að búa í Kópavogi. „Íslenskum kraftbjórframleiðendum hefur fjölg- að mjög mikið og við reynum að vera með afurðir frá þeim öllum á MicroBar,“ segir Árni. Sjá nánar á vefsíðunni gaedingur-ol.is og Face- book-síðunni Microbar. Ölbrugghús sem býður upp á spennandi bjór með karakter GÆÐINGUR:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.