Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 38
Skagafjörður 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
Við byrjuðum hér í aflögðu útihúsi í Skagafirði árið 2011. Vorum fyrst með tvær tegundir í flösku en síðan fjölgaði tegundum mikið.
Við vorum svo sem ekki að finna upp hjólið því tvö
önnur kraftbrugghús, Kaldi og Ölvisholt, voru fyrir á
markaðnum. Við fórum sömu leið og þeir, við sótt-
um inn á markaðinn ekki undir þeim formerkjum að
við værum að höfða til sem flestra heldur að við
værum að bjóða upp á eitthvað öðruvísi – viðbót
við markaðinn. Þetta einkennist af dálitlum nörda-
skap og nýjum stílum,“ segir Árni Halldórsson Haf-
stað, stofnandi og eigandi brugghússins Gæðings.
Gæðingur er með bruggverksmiðju í Útvík, rétt
fyrir utan Sauðárkrók, en síðar í sumar verður
opnuð ný verksmiðja í Kópavogi. Mun Gæðingur
eftir það starfa á báðum stöðunum en meiri þungi
verður í starfseminni í Kópavogi og því ekkert nema
léttleikinn fyrir norðan.
En hvað er eiginlega kraftbjór? „Skilgreiningin
á kraftbjór er snúin og margbrotin en það er í
sjálfu sér ekki eðlismunur á kraftbjór og öðrum
bjór. Kraftbjór er hins vegar framleiddur í miklu
minna magni, hann er meira handgerður; minna
staðlaður (og hann er ekki alltaf eins á bragðið).
Hann er yfirleitt bragðmeiri og með ríkari karakter
en hefðbundinn bjór. Kraftbjór er fyrir þá sem vilja
fá dálitla ögrun. Vel gerður kraftbjór er besti bjór
sem þú getur bragðað en að sama skapi er ekkert
verra enn illa gerður kraftbjór,“ segir Árni.
Gæðingur selur afurðir sínar bæði á kútum og
dósum. Árni segist hafa fundið fyrir því á sínum
tíma að erfitt var að komast með kútana að á
börum höfuðborgarinnar sem flestir voru skuld-
bundnir stóru framleiðendunum. Þess vegna opn-
aði hann MicroBar sem er athvarf fyrir íslenskan
kraftbjór og fyrir þá sem hans vilja njóta. MicroBar
er núna til húsa að Vesturgötu 2, í kjallaranum
undir Restaurant Reykjavík.
Samhliða brugghúsinu á Nýbýlavegi í Kópavogi
verður opnaður þar annar MicroBar, sem mun
tengjast Gæðingi óslítanlegum taumum. Þá verður
nú gott að búa í Kópavogi.
„Íslenskum kraftbjórframleiðendum hefur fjölg-
að mjög mikið og við reynum að vera með afurðir
frá þeim öllum á MicroBar,“ segir Árni.
Sjá nánar á vefsíðunni gaedingur-ol.is og Face-
book-síðunni Microbar.
Ölbrugghús sem býður upp á
spennandi bjór með karakter
GÆÐINGUR: