Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 4
4 15. júní 2018FRÉTTIR H eimsmeistaramótið í knattspyrnu er skollið á af fullum þunga. Hvort sem þið elskið leikinn eða fyrir lítið hann þá er alveg ljóst að keppnin mun hafa margvíslega áhrif á samfélagið. Blaðamenn DV rifu upp símann og hringdu í all- ar áttir til þess að reyna að gera sér betur grein fyrir þessum áhrifum. Hér eru helstu niðurstöður. Íslendingar fyrirhyggjusamir: „Engar athafnir bókaðar á laugardaginn“ Fregnir af aflýstum brúðkaupum í Dómkirkjunni vöktu forvitni blaða- manna um hvort hópafpantan- ir hafi átt sér stað í kirkjum lands- ins. Svo virðist ekki vera samkvæmt óvísindalegri rannsókn blaðsins. Íslendingar virðast einfaldlega hafa verið fyrirhyggjusamir hvað þetta varðar. Séra Hildur Eir Bolladóttir tjáði DV að engar athafnir hafi ver- ið skipulagðar í Akureyrarkirkju á laugardaginn enda Norðlendingar framsýnir með eindæmum. Engin prestur athafnar í kirkjunni og Hildur ætlar því að sjálfsögðu að fylgjast með knattspyrnunni. „Ég bauð þeim sem voru með mér í ræktinni í morguntíma á laugardaginn ef einhverjir vildu og lofaði þeim langri og góðri predik- un. Fólk gat valið tíma og ég skyldi vera með mjög guðfræðilega og djúpa ræðu. En það var bara hleg- ið. Það er allt sett í biðstöðu og það er fallegt. Við verðum ein stór fjöl- skylda á laugardaginn.“ Sömu sögu er að segja í Laugarneskirkju þar sem séra Davíð Þór Jónsson þjónar sínum söfnuði. „Hún kom mér svolítið á óvart fréttin um að athöfnum í Dóm- kirkjunni hafi verið frestað. Hér í Laugarneskirkju voru engar athafnir bókaðar á laugardaginn. Þannig að þeir sem vildu gifta sig í Laugarneskirkju höfðu fyrirhyggju til þess að athuga hvenær leik- urinn væri. Sóknarpresturinn og félagsstarfið er komið í sumarfrí í júnímánuði en við verðum með messu sunnudaginn 17. júní.“ „Pípurnar munu halda en í hálf- leik og eftir leikinn gæti komið gott skot“ Hvað gerist þegar blásið verð- ur til hálfleiks í leikjum Íslands og spenntir íþróttaunnendur létta af sér samtímis um allt land. „Pípurnar munu halda en í hálf- leik og eftir leikinn gæti komið gott skot,“ segir Ólöf Snæhólm hjá Veit- um ohf., sem sér um fráveitukerfi fyrir um helming landsmanna, í samtali við DV. „Við munum auðvitað fylgjast vel með notkuninni þennan dag og skoða hvort og hvernig hún er öðruvísi en á venjulegum laugar- dögum. Við búumst við misjöfnu rennsli og ekki miklu á meðan leiknum sjálfum stendur.“ Mikið hefur verið rætt um álag á fráveitukerfi þegar á stór- um íþróttaviðburðum stendur, til dæmis í Bandaríkjunum meðan á Super Bowl-leiknum stendur. Ólíkt amerískum ruðningi þá eru hins vegar engin auglýsingahlé meðan á knattspyrnuleik stendur og því algengt að þeir sem geta ekki slitið sig frá skjánum vegna spennu þurfi að bíða þangað til í hálfleik eða eftir leik til að sinna grunnþörfunum. „Þetta hefur ekki skapað vandamál hingað til og kerfið okk- ar mun ráða við þetta. Við mæld- um rennslið þegar Evrópumótið stóð yfir fyrir tveimur árum. Þá var hægt að lesa vel hegðun þeirra sem búa á veitusvæði Veitna út úr tölunum, spennustigið í leikjun- um og annað slíkt. Við munum ábyggilega senda frá okkur ein- hver gögn á sunnudaginn, línurit og fleira, sem sýnir rennslið.“ Nýbakaðir foreldrar hafa annað að gera Blaðamenn DV voru sammála um að ef þeir væru nýbakaðir feð- ur eða mæður þá hefði fæðingar- orlofið verið skipulagt með HM til hliðsjónar. Fáir virðast hafa verið á þeim buxum. „Nei, við höfum ekki orðið vör við neina aukningu,“ segir starfs- maður Fæðingarorlofssjóðs í sam- tali við DV. Vitað er að margir hafa skipulagt sumarfríin sín í takt við HM en það á greinilega ekki við um íslenska foreldra. Á skrifstofu Fæðingarorlofs- sjóðs á Hvammstanga hafði spurningin um HM þegar verið viðruð þegar DV hafði samband en þar hafði enginn tekið eftir því að foreldrar væru frekar að fara í fæðingarorlof í kringum HM en í venjulegum júnímánuði. Nýbak- aðir foreldrar hafa líklegast nóg annað að gera en að fylgjast með boltanum. Notar tækifærið til að leyfa sér Færri komust til Rússlands en vildu og það virðist hafa þau áhrif að margir nota tækifærið og kaupa sér gott sjónvarp. „Tilfinning okkar er að fólk sé að koma sér upp góð- um græjum og góðu sæti heima í stofu,“ segir Auður Jónsdóttir, markaðsfulltrúi Elko, í samtali við DV. Er þá sérstaklega um að ræða stór sjónvörp, 55 til 65 tomma tæki. Elko býður einnig upp á afslátt á heimabíóum þegar sjónvörp eru keypt og er verslunin með sérstakt horn þar sem farið er yfir stillingar á tækjunum til að láta fótboltann njóta sín sem best, þjónusta sem sjónvarpseigendur eru duglegir að nýta sér. „Við höfum alltaf fund- ið fyrir svona toppum í kringum stóra viðburði. Þetta hefur alltaf verið í kringum Eurovision og auð- vitað EM. Þetta er það sem tíðkast, fólk notar tækifærið til að leyfa sér. Það kaupir kannski ekki miða á HM en splæsir í nýtt sjónvarp.“ n Kim Larsen Kim Kardashian Kim Jong-Un Kim Basinger Hitta alla fræga sem heita Kim „Ég sá þetta allt fyrir“ Ó hætt er að segja að erlend- ir knattspyrnuunnend- ur trúi ekki eigin augum þegar kemur að afrekum íslenska karlalandsliðsins í fót- bolta. Það sama gildir ekki um ítalska háskólakennarann Gi- anguglielmo Lozato sem hef- ur verið í miklum samskiptum við blaðamann DV undanfarna viku. Tilefni þessara samskipta er myndband frá árinu 2013 þar sem Lozato lýsir því yfir að íslenska landsliðið sé ógnar- sterkt og eigi sér bjarta framtíð. Fullyrðingar Lozato hafa vak- ið athygli annarra miðla og þar á meðal hafa tyrkneskir miðlar fjallað um Lozato í kjölfarið af slælegu gengi tyrkneska lands- liðsins gegn okkar mönnum. Lozato er hógværðin upp- máluð í spjalli við blaðamann DV en þess má geta að hann kom upplýsingum sjálfur á framfæri við blaðið. „Ég sá þetta allt fyrir árið 2013,“ segir hann og vísar í áðurnefnda umfjöll- un. Hann segir að 4-4 jafntefli Íslands við Sviss hafi sannfært hann um gæði íslensku leik- mannanna og bjarta framtíð liðsins. Árangurinn hingað til komi honum því ekki óvart. Sýn Lozatos er skýr varð- andi riðlakeppnina sem er fram undan hjá íslenska liðinu í Rússlandi. „Staðan verður 0-0 í hálfleik gegn Argentínu en svo munu Messi og félagar hans vinna leikinn,“ segir Lozato. Hann segir að íslenska þjóð- in þurfi þó ekki að örvænta því sigrar gætu orðið staðreynd í hinum tveimur leikjunum. „[Al- freð] Finnbogason gæti skorað tvö mörk gegn Nígeríu og [Gylfi] Sigurðsson skorar gegn Króat- íu,“ segir Lozato. Eftirlætisleik- maður hans er þó með sterk tengsl við Ítalíu. „Það er [Emil] Hallfreðsson. Hann er stórkost- legur en vanmetinn leikmaður,“ segir okkar maður. Höfundur: Konráð Jónsson Teiknari: Guðfinna Berg MARKMIÐ BANDARÍKJAFORSETA FYRIR KJÖRTÍMABILIÐ: Skólplagnir ættu að halda Kristinn Haukur Guðnason Ari Brynjólfsson kristinn@dv.is / ari@dv.is Áhrif HM á samfélagið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.