Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 44
Skagafjörður 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ ÍSLENSKI HESTURINN Í ÖNDVEGI Á LÝTINGSSTÖÐUM: Hestaleiga og hlaðið torfhesthús til sýnis Á Lýtingsstöðum er hlaðið torfhesthús í gömlum stíl, eins og tíðkuðust hér á landi fyrir meira en 100 árum, og þar inni má finna hnakka og reiðtygi frá sama tíma. Leiðsögn um hesthúsið og sögu íslenska hestsins er í boði, bæði hljóð- leiðsögn á bandi og fyrirlestur leið- sögumanns. Það er mikil upplifun að skoða torfhesthúsið á Lýtingsstöðum og komast þannig í beina snertingu við fortíðina, en hvernig kom þetta til? „Ég er lærður leiðsögumaður og það kviknaði hjá mér áhugi á að koma íslenska hestinum meira á framfæri. Ég bjó til prógramm sem meðal annars felur í sér dagsferð frá Akureyri, undir heitinu Horses and Heritage. Þessa dagskrá hef ég nýtt bæði fyrir dags- ferðirnar sem ég býð upp á og líka fyrir hópa sem stoppa hér á Lýtingsstöðum. Mér fannst vanta einhverja meiri upplifun í þetta prógramm og þess vegna réðst ég í að láta hlaða torfhesthúsið,“ segir Evelyn Ýr, konan á bak við þetta framtak. Á Lýtingsstöðum rekur Evelyn, ásamt eiginmanni sínum, hestatengda ferðaþjónustu og gistingu, auk þess að bjóða upp á leiðsögn um torfhest- húsið. „Venjan er sú að hópar fá persónuleiðsögn hjá mér en einstak- lingar sem hingað koma óbókaðir geta fengið hljóðleiðsögn sem er á fjórum tungumálum, meðal annars íslensku,“ segir Evelyn. Evelyn Ýr er frá Þýskalandi en er gift íslensk- um manni og eiga þau einn son. Hún hefur búið á Íslandi í 23 ár, eða rúmlega helming ævi sinnar, og talar mjög góða íslensku. Auk þess að vera menntaður leiðsögumaður er hún menningarfræðingur. „Mig langaði til að blanda þessari þekkingu saman til að veita öðruvísi þjónustu,“ segir hún, en ljóst er að torfhesthúsið gefur Lýtings- stöðum algjöra sérstöðu. Í Skagafirði má sjá marga torfbæi en það er einstakt að útihús í upp- runalegri mynd sé til sýnis eins og hér er raunin. Góð fjölskylduskemmtun Öflug hestaleiga er rekin á Lýtings- stöðum og hentar hún meðal annars fjölskyldum. Boðið er upp á hesta sem henta börnum og að teymt sé undir yngstu börnin. Evelyn bendir á að börnin séu ekki síður hrifin af leiðsögninni um torfhesthúsið en hinir fullorðnu. „Ég hef verið með börn hérna niður í sex ára gömul og þeim finnst þetta mjög spennandi.“ Það er hægt að koma hvenær sem er milli kl. 9 og 19 að Lýtingsstöðum og skoða torfhesthúsið gegn vægu gjaldi. Til að fara í stutta hestaferð er betra að hringja áður í síma 453- 8064. Allar upplýsingar um gistingu er að finna á vefsíðunni lythorse.com.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.