Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Síða 44
Skagafjörður 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
ÍSLENSKI HESTURINN Í ÖNDVEGI Á LÝTINGSSTÖÐUM:
Hestaleiga og hlaðið
torfhesthús til sýnis
Á Lýtingsstöðum er hlaðið torfhesthús í gömlum stíl, eins og tíðkuðust hér á landi fyrir
meira en 100 árum, og þar inni má
finna hnakka og reiðtygi frá sama
tíma. Leiðsögn um hesthúsið og sögu
íslenska hestsins er í boði, bæði hljóð-
leiðsögn á bandi og fyrirlestur leið-
sögumanns. Það er mikil upplifun að
skoða torfhesthúsið á Lýtingsstöðum
og komast þannig í beina snertingu
við fortíðina, en hvernig kom þetta til?
„Ég er lærður leiðsögumaður og
það kviknaði hjá mér áhugi á að koma
íslenska hestinum meira á framfæri.
Ég bjó til prógramm sem meðal
annars felur í sér dagsferð frá
Akureyri, undir heitinu Horses
and Heritage. Þessa dagskrá
hef ég nýtt bæði fyrir dags-
ferðirnar sem ég býð upp á
og líka fyrir hópa sem stoppa
hér á Lýtingsstöðum. Mér
fannst vanta einhverja meiri
upplifun í þetta prógramm og
þess vegna réðst ég í að láta
hlaða torfhesthúsið,“ segir Evelyn
Ýr, konan á bak við þetta framtak. Á
Lýtingsstöðum rekur Evelyn, ásamt
eiginmanni sínum, hestatengda
ferðaþjónustu og gistingu, auk þess
að bjóða upp á leiðsögn um torfhest-
húsið.
„Venjan er sú að hópar fá
persónuleiðsögn hjá mér en einstak-
lingar sem hingað koma óbókaðir
geta fengið hljóðleiðsögn sem er á
fjórum tungumálum, meðal annars
íslensku,“ segir
Evelyn.
Evelyn Ýr er frá
Þýskalandi en er gift íslensk-
um manni og eiga þau einn son.
Hún hefur búið á Íslandi í 23 ár, eða
rúmlega helming ævi sinnar, og talar
mjög góða íslensku. Auk þess að
vera menntaður leiðsögumaður er
hún menningarfræðingur.
„Mig langaði til að blanda
þessari þekkingu saman til
að veita öðruvísi þjónustu,“
segir hún, en ljóst er að
torfhesthúsið gefur Lýtings-
stöðum algjöra sérstöðu. Í
Skagafirði má sjá marga torfbæi
en það er einstakt að útihús í upp-
runalegri mynd sé til sýnis eins og hér
er raunin.
Góð fjölskylduskemmtun
Öflug hestaleiga er rekin á Lýtings-
stöðum og hentar hún meðal annars
fjölskyldum. Boðið er upp á hesta
sem henta börnum og að teymt sé
undir yngstu börnin. Evelyn bendir
á að börnin séu ekki síður hrifin af
leiðsögninni um torfhesthúsið en hinir
fullorðnu. „Ég hef verið með börn
hérna niður í sex ára gömul og þeim
finnst þetta mjög spennandi.“
Það er hægt að koma hvenær sem
er milli kl. 9 og 19 að Lýtingsstöðum
og skoða torfhesthúsið gegn vægu
gjaldi. Til að fara í stutta hestaferð er
betra að hringja áður í síma 453-
8064. Allar upplýsingar um gistingu
er að finna á vefsíðunni lythorse.com.