Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 40
Skagafjörður 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ SAMGÖNGUMINJASAFNIÐ Í STÓRAGERÐI: Minjar um samgöngusögu Íslendinga varðveittar Hjónin Gunnar Kr. Þórðarson bifvélavirkjameistari og Sólveig Jónasdóttir grunnskólakennari eiga og reka Samgönguminjasafnið í Stóragerði við Hófsós. Safnið var opnað formlega þann 26. júní 2004 þegar opnuð var 600 fermetra skemma með lítilli gestamóttöku. „Þetta er fjórtánda sumarið okk- ar og safnið hefur verið í stöðugri uppbyggingu alla tíð,“ segir Sigríður I. Garðarsdóttir, tengdadóttir þeirra hjóna. Gunnar byrjaði að safna sam- gönguminjum mjög ungur og henti aldrei neinu. Hann byrjaði að gera upp bíla um 1980 og er búinn að gera upp nokkra bíla af þeim sem eru á safninu. „Þeir vekja eftirtekt bílarnir sem hann hefur gert upp.“ Safnið var fyrst aðeins einka- safn, en þáverandi sveitarstjóri Skagafjarðar hvatti Gunnar til að opna safnið fyrir almenningi. Á þeim fjórtán árum sem safnið hefur verið opið hefur það stækkað að umfangi og byrjað var á því árið 2010 að stækka salinn, um 800 fermetra, og var því lokið að fullu árið 2013. Í dag eru um 100 tæki til sýnis í salnum og um 200 bílar og tæki fyrir utan safnið. „Við erum með bíla, vélsleða, mótokrosshjól, dráttarvélar, flugþyt, rútur, strætó og í raun alls konar,“ segir Sigríður. „Síðastliðin ár höfum við verið ótrú- lega heppin með það að fólk gefur okkur tæki í toppstandi sem það vill að við varðveitum áfram.“ Safnið er opið yfir sumartímann fyrir almenning. „Því miður er ekki hægt að hafa opið allt árið því við eigum svo mikið af tækjum að sum standa úti á sumrin, því þurfum við að pakka öllu inn yfir veturinn,“ segir Sigríður. Formlegur opnunartími Sam- gönguminjasafnsins er 1. júní til 30. september og er opið alla daga frá kl. 11–18. Nokkrum sinnum yfir sumarið er veglegt kaffihlaðborð sem er vel sótt af heimamönnum, sem og gest- um. „Næst er það 1. júlí næstkomandi og á sama tíma er bæjarhátíð á Hofsósi sem er aðeins 12 kílómetrum frá safninu.“ Samgönguminjasafn Skagafjarðar er að Stóragerði við Hófsós, síminn er 845-7400. Opnunartími er 1. júní til 30. sept- ember, alla daga frá kl. 13–18. Utan þess tíma er opið fyrir hópa samkvæmt samkomulagi. Heimasíða: storagerdi.is og Face- book-síða: Samgönguminjasafnið í Stóragerði. BREKKUKOT: Heimili að heiman í sveitasælu Skagafjarðar Brekkukot er sannkallaður sælureitur í sveit, gististaður með mikla sérstöðu. Húsið er staðsett skammt frá þjóðvegi eitt, í Akrahreppi í Skagafirði. Stórkostlegt útsýni er yfir nálægar sveitir, fjöll, Drangey og söguslóðir í héraðinu. Brekkukot er heimili Auðar Herdís- ar Sigurðardóttur og leigist út í heild sinni. Hefur hún hugsað þennan kost sem eins konar heimili að heiman, athvarf fyrir fólk til að komast burtu, dvelja í kyrrð og náttúrufegurð, en við mjög heimilislegar aðstæður. Þetta er fullbúið og afar smekklegt 133 fermetra einbýlishús með þremur svefnherbergjum. Það tekur því allt að tíu manns í gistingu og hentar sér- lega vel fyrir um 6 til 8 manna hópa, til dæmis vinahópa eða fjölskyldur. Innifalið í verði er grunnur að morgunmat fyrsta daginn og auk þess ásett lín á rúm (ekki dýnur) handklæði, hreinlætisvörur á baði, í eldhúsi og þvottahúsi ásamt þrifum á húsnæði á brottfarardegi. Ýmis þægindi fylgja húsinu, til dæmis þvottavél og þurrkari ásamt aukasturtu og aukasalerni. Þráðlaust net er á staðnum, sjónvarp og Blue Ray-spilari. Brekkukot er kjörinn staður fyrir þá sem vilja slaka á og njóta lífsins. Heiti potturinn fyrir utan húsið er svo rúm- góður að hann er í rauninni laug og þar er dásamlegt að slaka á í skag- firskri kvöldkyrrð. Frábærar gönguleiðir eru allt í kringt og stutt í alls konar afþreyingu og áhugaverðar stuttar ferðir, til dæmis að Hólum í Hjaltadal, til Hofs- óss eða Sauðárkróks. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni brekkukot561.is og á Facebook-síðunni Brekkukot. Fyrir bókanir eða fyrirspurnir er gott að senda skilaboð á netfangið herdis@ brekkukot561.is eða hringja í síma 699-6102. Einnig er hægt að bóka beint á síðunni brekkukot561.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.