Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Qupperneq 40
Skagafjörður 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
SAMGÖNGUMINJASAFNIÐ Í STÓRAGERÐI:
Minjar um samgöngusögu
Íslendinga varðveittar
Hjónin Gunnar Kr. Þórðarson bifvélavirkjameistari og Sólveig Jónasdóttir grunnskólakennari
eiga og reka Samgönguminjasafnið
í Stóragerði við Hófsós. Safnið var
opnað formlega þann 26. júní 2004
þegar opnuð var 600 fermetra
skemma með lítilli gestamóttöku.
„Þetta er fjórtánda sumarið okk-
ar og safnið hefur verið í stöðugri
uppbyggingu alla tíð,“ segir Sigríður
I. Garðarsdóttir, tengdadóttir þeirra
hjóna.
Gunnar byrjaði að safna sam-
gönguminjum mjög ungur og henti
aldrei neinu. Hann byrjaði að gera
upp bíla um 1980 og er búinn að gera
upp nokkra bíla af þeim sem eru á
safninu. „Þeir vekja eftirtekt bílarnir
sem hann hefur gert upp.“
Safnið var fyrst aðeins einka-
safn, en þáverandi sveitarstjóri
Skagafjarðar hvatti Gunnar til að
opna safnið fyrir almenningi. Á þeim
fjórtán árum sem safnið hefur verið
opið hefur það stækkað að umfangi
og byrjað var á því árið 2010 að
stækka salinn, um 800 fermetra, og
var því lokið að fullu árið 2013.
Í dag eru um 100 tæki til sýnis
í salnum og um 200 bílar og tæki
fyrir utan safnið. „Við erum með bíla,
vélsleða, mótokrosshjól, dráttarvélar,
flugþyt, rútur, strætó og í raun alls
konar,“ segir Sigríður.
„Síðastliðin ár höfum við verið ótrú-
lega heppin með það að fólk gefur
okkur tæki í toppstandi sem það vill
að við varðveitum áfram.“
Safnið er opið yfir sumartímann
fyrir almenning. „Því miður er ekki
hægt að hafa opið allt árið því við
eigum svo mikið af tækjum að sum
standa úti á sumrin, því þurfum við
að pakka öllu inn yfir veturinn,“ segir
Sigríður.
Formlegur opnunartími Sam-
gönguminjasafnsins er 1. júní til 30.
september og er opið alla daga frá kl.
11–18. Nokkrum sinnum yfir sumarið
er veglegt kaffihlaðborð sem er vel
sótt af heimamönnum, sem og gest-
um. „Næst er það 1. júlí næstkomandi
og á sama tíma er bæjarhátíð á
Hofsósi sem er aðeins 12 kílómetrum
frá safninu.“
Samgönguminjasafn Skagafjarðar
er að Stóragerði við Hófsós, síminn er
845-7400.
Opnunartími er 1. júní til 30. sept-
ember, alla daga frá kl. 13–18.
Utan þess tíma er opið fyrir hópa
samkvæmt samkomulagi.
Heimasíða: storagerdi.is og Face-
book-síða: Samgönguminjasafnið í
Stóragerði.
BREKKUKOT:
Heimili að heiman í
sveitasælu Skagafjarðar
Brekkukot er sannkallaður sælureitur í sveit, gististaður með mikla sérstöðu. Húsið er
staðsett skammt frá þjóðvegi eitt, í
Akrahreppi í Skagafirði. Stórkostlegt
útsýni er yfir nálægar sveitir, fjöll,
Drangey og söguslóðir í héraðinu.
Brekkukot er heimili Auðar Herdís-
ar Sigurðardóttur og leigist út í heild
sinni. Hefur hún hugsað þennan kost
sem eins konar heimili að heiman,
athvarf fyrir fólk til að komast burtu,
dvelja í kyrrð og náttúrufegurð, en við
mjög heimilislegar aðstæður.
Þetta er fullbúið og afar smekklegt
133 fermetra einbýlishús með þremur
svefnherbergjum. Það tekur því allt
að tíu manns í gistingu og hentar sér-
lega vel fyrir um 6 til 8 manna hópa,
til dæmis vinahópa eða fjölskyldur.
Innifalið í verði er grunnur að
morgunmat fyrsta daginn og auk
þess ásett lín á rúm (ekki dýnur)
handklæði, hreinlætisvörur á baði, í
eldhúsi og þvottahúsi ásamt þrifum á
húsnæði á brottfarardegi.
Ýmis þægindi fylgja húsinu, til
dæmis þvottavél og þurrkari ásamt
aukasturtu og aukasalerni. Þráðlaust
net er á staðnum, sjónvarp og Blue
Ray-spilari.
Brekkukot er kjörinn staður fyrir þá
sem vilja slaka á og njóta lífsins. Heiti
potturinn fyrir utan húsið er svo rúm-
góður að hann er í rauninni laug og
þar er dásamlegt að slaka á í skag-
firskri kvöldkyrrð.
Frábærar gönguleiðir eru allt í
kringt og stutt í alls konar afþreyingu
og áhugaverðar stuttar ferðir, til
dæmis að Hólum í Hjaltadal, til Hofs-
óss eða Sauðárkróks.
Nánari upplýsingar er að finna
á vefsíðunni brekkukot561.is og á
Facebook-síðunni Brekkukot. Fyrir
bókanir eða fyrirspurnir er gott að
senda skilaboð á netfangið herdis@
brekkukot561.is eða hringja í síma
699-6102. Einnig er hægt að bóka
beint á síðunni brekkukot561.is.