Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 16
16 BLEIKT - KYNLÍF 15. júní 2018
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Boltinn í beinni
á castello
Hjólbörurnar
Lágmarksfjöldi lima: 1
Áreynslustuðull: 2 fyrir aðila 1, 6 fyrir aðila 2
Aðferð: Aðili 1 kemur sér vel fyrir í
sófa, með liminn til reiðu. Aðili 2 sest
klofvega á hann og rennir getnaðar
limi aðila 1 inn í leggöng eða endaþarm.
Aðili 2 hallar sér svo fram þannig að báðir
sjái vel á skjáinn. Hér getur verið hentugt
að nota pullu eða skammel fyrir aðila 2 að
halla sér fram á. Hafi aðili 2 ekki áhuga á
knattspyrnu má allt eins nota tímann til
að lesa áhugaverða bók, skoða kisumyndir
á Instagram, eða svara helstu skilaboðum
á samfélagsmiðlum.
Skeiðar í skúffu
Lágmarksfjöldi lima: 1
Áreynslustuðull: 2
Sérstakir kostir: Aftari aðili getur notað
hendur til að gæla við þann fremri á ýmsa lund
(geirvörtur, kviður, læri, snípur eða limur).
Hin klassíska skeiðastelling kemur sér
einstaklega vel ef sófinn er með djúpri
setu. Sé hann það ekki má ef til vill fjar
lægja bakpúða til að hann verði hent
ugri. Það frábæra við þessa stellingu er
að hún gefur möguleika á djúpum og ró
legum samförum – svona er jafnvel hægt
að liggja heilan hálfleik. Stellingin hentar
síður ef aftari aðilinn er með stuttan getn
aðarlim, þó má vinna með aðfallshorn
mjaðma og stellingu fótleggja fremri að
ilans til að bæta það upp og ná fullnægj
andi dýpt.
Tvíhöfða lótusblómið
Lágmarksfjöldi lima: 1
Áreynslustuðull: 5,7
Aðilinn með liminn sem nota á til inn
setningar sest í sófa eða hægindastól af
góðri breidd og hallar sér makindalega
aftur á bak. Notið gjarnan púða til stuðn
ings og aukinna þæginda. Nú er hægt að
koma sér klofvega fyrir ofan á þeim sem
situr og renna limnum inn þangað sem
óskað er. Hendur beggja eru lausar til at
lota og hægt að taka öllu með ró eða ham
ast að vild. Gallinn er þó augljós því ekki
er hægt að gera ráð fyrir að báðir aðilar
njóti leiksins nema annar hafi augu í
hnakkanum. Spegill af sæmilegri stærð
gæti leyst málið, eða margskjáa upplegg
líkt og sjá má á sportbörum bæjarins.
Áfram Ísland
Lágmarksfjöldi lima: 1
Áreynslustuðull: 4,2
Þessari stellingu má sérstaklega mæla
með fyrir þau skipti sem Ísland sést
á skjánum á komandi dögum. Hér
snúa báðir aðilar að skjánum, sá
fremri klofvega á þeim aftari og
limur í leggöngum eða enda
þarmi. Ef fremri aðilinn er með
sníp má nota tækifærið hér til að
leika við snípinn með fingrum
eða titrara. Einnig er aðgengi að
kynfærum þess aftari nokkuð
gott milli fóta. Meginkosturinn
við þessa stellingu er að æsing
vegna leiksins má auðveld
lega fá útrás fyrir með sam
farahreyfingum. Ímyndið
ykkur bara að fagna marki á
þennan skemmtilega hátt!
N
ú þegar heimsmeist
aramót karla í
knattspyrnu er nýhafið
og fjöldageðrofið að hell
ast yfir þjóðina er ekki úr vegi að líta
á hvernig má með bestum hætti nýta tímann í
sófanum, jafnvel rækta sambönd, og jafnvel
stórbæta sambúðina. Ráðin hér miðast sum
við einbúa, en önnur við sambýlinga, eða
í það minnsta góða vini. Einhverrar
nektar kann að vera krafist svo sumt
athæfið gangi upp. Við hverja stell
ingu er tilgreindur lágmarksfjöldi
lima, limir geta verið getnaðarlimir af holdi og
blóði eða ballarbelti (e. strapon).
HM í ástarleikjum
og boltasparki „Þessari stellingu má sérstaklega mæla
með fyrir þau
skipti sem Ísland
sést á skjánum á
komandi dögum.
HÚH!
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjafi.
raggaeiriks.com
raggaeiriks@gmail.com