Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 89

Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 89
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Ör- yrkjabandalags Íslands, segir að öryrkjar mæti tregðu og skiln- ingsleysi hjá stjórnvöldum, sem virðast ekki hafa neinn áhuga á að bæta kjör þeirra verst settu í samfélag- inu. MYND/ANTON BRINK Það er rosalega margt algjörlega óhemju vont í þessu kerfi sem við búum við í dag og margt sem þarf að bæta til að fatlað fólk njóti sömu réttinda og aðrir. Markmið Öryrkjabanda-lags Íslands er að íslenskt þjóðfélag verði samfélag jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar, óháð líkamlegu og andlegu atgervi, njóti mannsæm- andi lífskjara og jafnra möguleika til sjálfstæðs lífs og virkrar sam- félagslegrar þátttöku. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir að til að ná þessum markmiðum þurfi að bæta kjör og auka réttindi öryrkja á ýmsan hátt, meðal annars með því að hækka örorkulífeyri og afnema krónu á móti krónu-skerðinguna, sem virkar þannig að fyrir hverja krónu sem lífeyrisþegi aflar sér eru bætur skertar á móti um krónu fyrir krónu, þannig að lítill hvati er til atvinnuþátttöku þess hóps. Hún segir líka að það verði að tryggja fötluðu fólki sjálfsögð rétt- indi með því að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Margt sem er óhemju vont „Við höfum barist fyrir því að fá kjör örorkulífeyrisþega leiðrétt í mörg ár, en á undanförnum 20 árum hefur orðið kjaragliðnun um 51% hjá örorkulífeyrisþegum. Í dag er örorkulífeyrir aðeins rúmar 238 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt og fólk fær þá 204 þúsund krónur útborgaðar, en atvinnuleysisbætur eru komnar upp í 270 þúsund krónur. Hingað til hefur þetta fylgst að,“ segir Þuríður. „Þetta er í boði ríkisstjórnar sem kennir sig við vel- ferð og maður trúði að myndi gera eitthvað til að bæta kjör þessa hóps. Það hefur bara verið farið fram á algjöra lágmarkshækkun. Ég held að við fáum 3,6% hækkun á meðan hinn almenni launþegi fær allavega 6%, sem hækkar svo þegar kjara- samningarnir fara í gang. Við viljum líka að króna á móti krónu-skerðingin verði tekin út. Ef fólk sem verður að reiða sig á örorkulífeyri og ekkert annað fær kannski smávegis lífeyri eða aðrar tekjur, þá lækka greiðslur TR um sömu upphæð, þannig að þú færð ekkert meira sama hvað. Síðasta vetur fengum við alla þingflokka til okkar til að gera þessa ríkisstjórn meðvitaða um málefni fatlaðs fólks,“ segir Þuríður. „Þá voru allir flokkar sammála um að þessi skerðing væri algjör hörmung, en ríkisstjórnin segir samt að það verði engar leiðréttingar gerðar fyrr en nýtt almannatrygginga- kerfi er tilbúið. Við eigum ekki að þurfa að bíða árum saman eftir því að það séu stigin skref í átt að því að leiðrétta kjörin. Mér finnst þetta máttlaust af ríkisstjórninni og ómannúðlegt. Það er rosalega margt algjörlega óhemju vont í þessu kerfi sem við búum við í dag og margt sem þarf að bæta til að fatlað fólk njóti sömu réttinda og aðrir. En það hefði hugs- anlega vakið einhverja jákvæðni í garð þessarar ríkisstjórnar ef hún hefði ákveðið að byrja að afnema skerðingar eitthvað,“ segir Þuríður. „Okkur fannst að það væri allavega hægt að koma til móts við okkur, en þau ákváðu að gera það ekki og ég hef engan skilning á því.“ Réttindi fatlaðs fólks vanvirt „Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var full- giltur haustið 2016 eftir mikla vinnu en það þarf enn að lögfesta hann og við vonum að stjórnvöld geri það sem fyrst, því á meðan hann er ekki lögfestur hefur hann ekki gildi fyrir dómstólum,“ segir Erum að dæma fólk í fátækt Formaður ÖBÍ segir að kerfið refsi fólki fyrir veikindi og fötlun og það verði að bæta kjör öryrkja með hærri lífeyri, minni tekjuskerðingu og lögfestingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Þuríður. „Við höfum tapað málum vegna þess að réttur okkar er ekki skýr í lögum, þótt hann eigi að vera það samkvæmt stjórnarskrá. Manni finnst þetta alveg sjálfsagt mál í landi sem vill kenna sig við mannréttindi. Við vitum ekki hvers vegna það er svo erfitt að tryggja fötluðu fólki sjálfsögð réttindi, en við höfum gert því skóna að það séu fordómar í samfélaginu og það sé litið svo á að fatlað fólk hafi minni rétt og sé minna virði,“ segir Þur- íður. „Við sjáum til dæmis hvernig viðhorf til fatlaðs fólks hafa birst í umræðunni um Klaustursmálið. Það er kannski ekki skrítið að við mætum tómlæti. Stjórnmálamönnum finnst mikið mál að lögfesta samninginn. Lög hér á landi eru ekki fyllilega í samræmi við samninginn og það verður mikil vinna að uppfæra þau. Samningur- inn tryggir fötluðu fólki að það geti notið réttinda sinna til jafns við aðra í samfélaginu, sem getur leitt til aukinna útgjalda,“ segir Þuríður. „En þá er ekki hugsað til lengri tíma né hugað að mannréttindum fatlaðs fólks. Stjórnvöld verða bara að átta sig á því að það fylgir því skylda að fullgilda svona samning og það þarf að lögfesta hann og hugsa í takt við hann.“ Tregða og áhugaleysi „Við mætum mikilli tregðu hjá stjórnvöldum og þetta er alltaf spurning um peninga. En alls staðar þar sem fátækt viðgengst verða til fleiri vandamál fyrir samfélagið,“ segir Þuríður. „Það er verið að dæma fatlað fólk til fátæktar og þegar fólk hefur ekki efni á að vera til búum við til samfélagslegt mein og jaðarsetjum bæði fatlað fólk og börn þess. Þess vegna finnst mér lítil skynsemi í að draga ekki úr skerðingunni á lífeyri. Það var búið að lofa fjórum milljörðum króna sem hefðu getað farið beint inn í grunnlífeyrinn og hækkað hann um 22 þúsund krónur hjá hverjum og einum,“ segir Þuríður. „Fram- færsluuppbótin, sem skerðir krónu fyrir krónu, hefði þá líka lækkað um 22 þúsund krónur og þannig hefðum við byrjað að minnka þessa skerðingu. En þó þetta hefði verið gert hefði strípaður örorkulífeyrir ekki náð sömu upphæð og atvinnuleysisbæt- ur. Atvinnuleysisbætur eru fyrir fólk í tímabundnu hraki, en fólk þarf oft að lifa á lífeyri alla ævi,“ segir Þuríður. „Af hverju í ósköpunum er fólki refsað fyrir að verða veikt eða fatlað? Stærsti hluti fólks sem lendir á örorku er kominn yfir fimmtugt. Maður skilur ekki það viðhorf að ef fólk verður veikt eða slasast þá eigi það bara að lifa í fátækt. Það finnst mér mjög harkalegt. Nú eru tvö ár síðan ellilífeyris- þegar, sem eru talsvert stærri hópur en öryrkjar, fengu sína krónu á móti krónu-skerðingu fellda niður á einu bretti og það var hægt að hækka atvinnuleysisbætur, en öryrkjar fá aldrei neinar hækkanir,“ segir Þuríður. „Stjórnvöld virðast bara ekki hafa neinn áhuga á þessu.“ Búum til fleiri vandamál „Það er hræðilegt að upplifa stöðugar fjárhagsáhyggjur og það verður enn erfiðara fyrir fólk sem glímir við geðrænan vanda og önnur alvarleg veikindi að ná bata þegar slíkar áhyggjur bætast við,“ segir Þuríður. „Það fyrsta sem þarf að gera er að hækka örorkulífeyrinn þannig að hann sé ekki lægri en lægstu laun, því fatlað og langveikt fólk þarf að lifa eins og aðrir og ber oft aukinn kostnað vegna áskorana sinna. Við eigum líka að vera miklu duglegri við að efla einstaklinginn, þannig að við náum að nýta mannauðinn sem býr í öryrkjum. Þessi hópur getur skapað mikil verðmæti,“ segir Þuríður. „Stjórn- völd verða að hafa mannúðleg sjónarmið að leiðarljósi. Ef þau ætla að tala um velferð eiga þau að byrja á þeim hóp sem hefur það verst. Sem stendur erum við bara að búa til fleiri vandamál.“ FÓLK KYNNINGARBLAÐ 13 L AU G A R DAG U R 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 1 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 4 4 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 C F -3 E A 0 2 1 C F -3 D 6 4 2 1 C F -3 C 2 8 2 1 C F -3 A E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 4 4 s _ 1 4 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.