Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Qupperneq 6

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Qupperneq 6
6 Ljósmæðrablaðið - júlí 2010 Útdráttur Rannsóknir hafa sýnt að ofbeldi hefur mjög mikil, víðtæk og langvinn áhrif á konur og börn þeirra. Tilgangur þessarar rannsóknar var að dýpka þekkingu og auka skilning á líðan íslenskra kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi á meðgöngu. Rannsóknaraðferðin var Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði sem hentar vel til að rannsaka mannleg fyrirbæri í þeim tilgangi að bæta mannlega þjónustu eins og heilbrigðisþjónustuna. Tekin voru 15 viðtöl við 12 konur á aldrinum 18 - 72 ára, meðalaldur þeirra var 37½ ár. Niður- stöður lýsa mikilli streitu hjá konunum og börnum þeirra. Andlegt ofbeldi byrjaði strax í samböndum þeirra, oft án þess að þær áttuðu sig á því. Í kjölfarið sættu konurnar ýmist líkamlegu, kynferðislegu eða fjárhags- legu ofbeldi. Þegar konurnar urðu barns- hafandi versnaði ástandið enn frekar því þær festust í sambandinu og upplifðu mikið tillitsleysi og jafnvel ofbeldisfullt kynlíf. Þær höfðu lítið sjálfsálit og voru hræddar um sig og börn sín, fædd og ófædd. Allar konurnar bjuggu við mikla lítilsvirðingu af hálfu maka en upplifðu mikla skömm tengda ofbeld- inu. Konurnar fá enn þungbært endurlit og martraðir jafnvel mörgum árum eftir að ofbeldissambandinu er lokið. Börn þeirra urðu öll vitni að ofbeldinu og báru þess merki. Fagfólk verður að þekkja einkenni og úrræði heimilisofbeldis til að geta aðstoðað konur sem eru í slíkum aðstæðum og minnka þar með hættu á langvarandi áhrifum á móður og barn. ENGLISH SUMMARY Constant stress, fear and anxiety: The experience of Icelandic women who have lived in domestic violence during pregnancy and at other times. Abstract Studies indicate that domestic abuse serio- usly impacts well-being and general health of women and their children. The purpose of this study was to increase the knowledge and deepen the understand- ing of domestic abuse during pregnancy and at other times. The research method is a qualitative, phenomenological method, known as the Vancouver School of doing Phenomenology. Twelve Icelandic women, aged 19 -72, mean age 37 ½, with a history of domestic abuse participated in the study and were interviewed once or twice, in all 15 interviews. Results of this study show that living in an abusive relationship involves a great deal of stress and does have serious consequences. The abuse started as soon as the relationship began, first emotionally then physically, sexually or financially. All the women felt they didn’t have any respect in their homes but felt ashamed because of the abuse. When they got pregnant the situation worsened and they felt that they were stuck in the relationship. They experienced lack of consideration sexually and even violent sex. The women still have traumatic flas- hbacks and nightmares even many years after the abusive relationship has ended and they have suffered from anxiety and depress- ion as well as lack of self-confidence. All their children witnessed the abuse and were seriously affected. Increased knowledge and understanding of domestic violence during pregnancy is important for midwives and other health professionals so they can identify the symptoms and consequences of abusive relationships and help women in time to prevent long-term consequences for mother and child. Key words: Pregnancy; Domestic violence; Spouse abuse; Abuse survivors; Children; Phenomenology; Interviews. INNGANGUR Ofbeldi í nánum samböndum er falið og mjög vandmeðfarið. Að jafnaði er talið að ein af hverjum fjórum konum hafa einhvern tímann búið við ofbeldi og að ein af hverjum fimm barnshafandi konum búi við ofbeldi (Bacchaus, Mezey og Bewley, 2001; Bradley, Smith, Long og O´Dowd, 2002; WHO 2002). Samanburður á rann- sóknum sýnir að tíðni ofbeldis gegn barns- hafandi konum er á bilinu 0,9 – 20,1 % en í langflestum tilvikum er tíðnin 3,9% til 8,9% (Ingólfur Gíslason, 2008). Þessi rann- sókn fjallar um reynslu íslenskra kvenna af ofbeldi á meðgöngu og endranær en ofbeldi á meðgöngu hefur verið vanrækt rannsókn- arsvið á Íslandi. Í grein sinni um eflandi og niðurbrjótandi samskiptahætti og samfélög vitnar Sigríður Halldórsdóttir (2003a) í rann- sókn sem hún gerði um reynslu íslenskra kvenna af ofbeldi í nánum samböndum. Þar kemur fram að það er stjórnin á eigin lífi sem konur smám saman missa þegar eiginmenn þeirra eða sambýlismenn beita þær valdi. Konan fær ekki að halda eftir neinni stjórn á eigin lífi, hvorki tíma sínum, peningum, samskiptum við aðra né nokkru öðru. Kona sem býr við stöðugt niður- brot missir smám saman stjórn á sjálfri sér og lífi sínu og finnst hún kúguð, algerlega berskjölduð og rödd hennar þagnar smám Stöðug streita, ótti og kvíði Reynsla kvenna sem hafa búið við ofbeldi á meðgöngu og endranær Sigríður Halldórsdóttir Prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri Ástþóra Kristinsdóttir Ljósmóðir og hjúkrunarstjóri, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. Fyrri grein af tveimur um reynslu kvenna af ofbeldi á meðgöngu og endranær. Í næstu grein verður fjallað um ofbeldismennina og áhrif ofbeldis á börnin. R I T R Ý N D G R E I N

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.