Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Side 21
21Ljósmæðrablaðið - júlí 2010
Á næsta ári, 2011 verður ljósmóðurnám
á Íslandi 250 ára, en skipuleg ljósmæðra-
kennsla hófst árið 1761. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar á þessum tíma. Ekki er
ætlunin að rekja þá þróun í þessum pistli
heldur er tilgangur okkar fyrst og fremst
að veita upplýsingar um þá möguleika sem
ljósmæðrum standa til boða í dag vilji þær
auka við menntun sína, jafnframt því að gefa
innsýn í þær breytingar sem eru á döfinni í
námi ljósmæðra við Háskóla Íslands.
Ljósmæður hafa alla tíð verið vakandi
fyrir bættri menntun stéttarinnar. Hugmynda-
fræðin fyrr á tímum var að menntun ljós-
mæðra væri í samræmi við ríkjandi þarfir
samfélagsins. Þannig var t.d. lögð áhersla
á að mennta ljósmæður fyrir hinar dreifðu
byggðir landsins. Í dag er markmið mennt-
unar einnig og ekki síður að þróa þekkingu í
ljósmóðurfræði sem skilar sér í bættri þjón-
ustu og aðkomu ljósmæðra að stefnumótun
og ákvarðanatöku í heilbrigðiskerfinu. Slíkt
gerist með námi sem er í upphafi byggt upp
sem fræðilegt og klínískt nám. Ljósmóð-
urfræðina þarf að efla innan háskólans en
ekki síður á starfsvettangi þar sem stór hluti
kennslu hennar fer fram.
Það eru 14 ár frá því fyrstu ljósmæðurnar
innrituðust til náms við Háskóla Íslands og
nú hafa u.þ.b. 130 ljósmæður lokið þaðan
embættisprófi. Á síðasta ári var samþykkt
námsleið til meistaragráðu í ljósmóðurfræði.
Með því geta þær ljósmæður sem lokið
hafa embættisprófi frá Háskóla Íslands bætt
við sig eins árs námi. Jafnframt hafa ljós-
mæður með eldra próf frá Ljósmæðraskóla
Íslands nú hafið meistaranám en þær höfðu
áður lokið BS gráðu. Í dag eru ljósmæður
sem hafa lokið meistaranámi nær 20 og í
meistaranámi í ljósmóðurfræði við hjúkr-
unarfræðideild stunda 10 ljósmæður nám.
Tvær ljósmæður hafa lokið doktorsprófi og
nokkrar eru að undirbúa doktorsnám.
Á deildarfundi hjúkrunarfræðideildar
Háskóla Íslands sem haldin var 22. júní
2010 var samþykkt tillaga námsbrautar í
ljósmóðurfræði um að hefja endurskoðun
námsskrár í ljósmóðurfræði. Stefnt verður
að því að breyta inntökuskilyrðum í námið
og skipuleggja ljósmæðranám til 5 ára að
loknu stúdentsprófi. Fyrirhugað er 3 ára
nám til BS gráðu í samþættingu við grunn-
nám í hjúkrunarfræði og tveggja ára nám til
meistaragráðu, sem gefur leyfi til að stunda
ljósmóðurstörf á Íslandi. Námsnefnd grunn-
og framhaldsnáms í ljósmóðurfræði mun
leiða þróun og útfærslu nýrrar námsskár í
samráði við aðrar námsnefndir innan hjúkr-
unarfræðideildar og umsjónarkennara þeirra
námskeiða í hjúkrunarfræði sem nemendur
í ljósmóðurfræði munu taka þátt í. Áætlað
er að breytt námsleið með nýjum inntöku-
skilyrðum í ljósmóðurfræði verði lögð fram
til samþykktar eigi síðar en á deildarfundi
í byrjun árs 2012 og að námsleiðin verði í
boði frá og með haustinu 2012.
Yfirsetukvennaskóli Íslands, síðar Ljós-
mæðraskóli Íslands var stofnaður 1912.
Hjúkrunarnám og hjúkrunarleyfi hefur verið
inntökuskilyrði í námið frá árinu 1982.
Verði tekið aftur beint inn í ljósmóðurnám
árið 2012 á 100 ára afmæli ljósmæðraskóla
á Íslandi eru þetta 30 ár af menntunarsögu
ljósmæðra á Íslandi. Miðað skal þó við að
halda opnum þeim möguleika að hjúkrunar-
fræðingar geti bætt við námi til að öðlast
ljósmæðraleyfi og sama gildir munu ljós-
mæður sem hafa hug á að verða sér úti um
hjúkrunarleyfi.
Í ljósi sögunnar eiga breytingar á fyrir-
komulagi náms í ljósmóðurfræði sér langan
aðdraganda. Í okkar huga markar þessi
samþykkt deildarfundar tímamót sem skapa
tækifæri. Við teljum að breytt og hnitmiðaðra
nám í ljósmóðurfræðum til meistaragráðu
sem tekur 5 ár í stað 7-8 ár sé til þess fallið
að styrkja uppbyggingu þekkingargrunns
fræðigreinarinnar sem er forsenda þess að
ljósmóðurþjónusta eflist í samfélaginu og
greinin þróist innan háskólaumhverfisins.
Það er einnig ljóst að ljósmæður geta haldið
upp á tvö stórafmæli á næstu tveimur árum
Ólöf Ásta Ólafsdóttir
og Helga Gottfreðsdóttir
Fréttir frá námsbraut í
ljósmóðurfræði
Tímamót í menntunarmálum ljósmæðra
www.mp.is • 540 3200 • Ármúla 13a • Borgartúni 26
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og örugg
vinnubrögð skipta öllu máli fyrir fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Netgreiðsluþjónusta
Gjaldeyrisreikningar
Sparnaðarreikningar
Yfirdráttur
Debetkort
Launareikningur
Kreditkort
Netbanki
Yfir 70% viðskiptavina okkar mæla
með MP banka við ættingja sína
og vini. Það eru ánægjuleg meðmæli.
Svanhvít Sverrisdóttir
viðskiptastjóri Ármúla
*skv. þjónustukönnun MP banka febrúar 2010
*