Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Page 30
30 Ljósmæðrablaðið - júlí 2010
Starfsnám til sérfræðiviður-
kenningar í hjúkrunar- og ljós-
móðurfræði á Landspítalanum
Haustið 2008 hófst starfsnám til sérfræði-
viðurkenningar í hjúkrunar- og ljósmóð-
urfræði á Landspítalanum. Starfsnámið er
fyrir ljósmæður og hjúkrunarfræðinga sem
lokið hafa meistaraprófi og hyggjast sækja
um sérfræðileyfi. Frá árinu 2003 hefur verið
í gildi reglugerð um veitingu sérfræðileyfa
í hjúkrun (nr. 124/2003) og reglugerð um
sérfræðileyfi ljósmæðra er í burðarliðnum
en hefur enn ekki verið samþykkt. Þó að
starfsnámið sé hugsað sem undirbúningur
fyrir umsókn um sérfræðileyfi þá er ekki
nauðsynlegt að fara í gegn um það til að
geta fengið sérfræðileyfi. Samkvæmt 5.
grein reglugerðar um veitingu sérfræðileyfa
í hjúkrun þarf hjúkrunarfræðingur að full-
nægja eftirtöldum kröfum til að geta átt
rétt á að öðlast sérfræðileyfi í hjúkrun;
hafa hjúkrunarleyfi hér á landi, hafa lokið
meistaraprófi, licentiatprófi eða doktors-
prófi frá viðurkenndum háskóla eða hafa
sambærilega menntun og hafa unnið við
hjúkrun að loknum fyrrnefndum prófum sem
svarar til að minnsta kosti tveimur árum í
fullu starfi við þá sérgrein eða á því sérsviði
sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur
til (Reglugerð um veitingu sérfræðileyfa
í hjúkrun nr. 124/2003). Sú reglugerð
sem unnið hefur verið að um veitingu
sérfræðileyfa fyrir ljósmæður er sambærileg
við reglugerð um sérfræðileyfi hjúkrunar-
fræðinga (Landlæknisembættið, 2009).
Sérfræðistarfsnámið sem Landspítalinn
býður upp á er tveggja ára starfsnám í
fullu starfi og eru meginþættir starfsnáms-
ins klínískt starf, fræðsla, rannsóknir og
fræðastörf. Á fyrra ári er megináhersla á
klínískt starf og öflun sérþekkingar. Einnig
vettvangsheimsóknir innan og utan LSH. Á
seinna ári er aukin áhersla á fræðimennsku,
leiðtogahlutverk, fræðslu og sérfræðiráðgjöf
innan LSH. Mennta- og starfsþróunardeild
Vísinda- mennta- og gæðasviðs Landspítala
hefur umsjón með starfsnáminu ásamt fram-
kvæmdastjóra hjúkrunar.
Gert er ráð fyrir að ljósmóðir í starfsnámi
dvelji í 2-3 vikur erlendis og starfi þá með
sérfræðiljósmæðrum á sínu sérsviði. Skipuð
er þriggja manna nefnd fyrir hvern nemanda
sem er honum til ráðgjafar og leiðsagnar um
námið. Hver nemandi setur sér markmið
í upphafi náms og leggur þau fyrir náms-
nefndina.
Samkvæmt lýsingu á starfsnáminu eru
markmiðin að þátttakandi:
• Hafi yfirgripsmikla þekkingu á viðkom-
andi sérsviði til að skipuleggja og stýra
meðferð.
• Hafi fræðilegar forsendur til að meta og
nýta stöðu þekkingar á sviðinu á þann hátt
að besta þekking sé höfð að leiðarljósi.
• Veiti samstarfsfólki, skjólstæðingum og
aðstandendum ráðgjöf um starfsaðferðir,
meðferð og leiðir til lausnar heilsufars-
vanda af fagmennsku og ábyrgð.
• Skipuleggi nám og leiðbeini þeim sem
stunda nám á viðkomandi sérsviði.
Nú stunda tvær ljósmæður starfsnám til
sérfræðiviðurkenningar á Landspítala:
Valgerður Lísa Sigurðardóttir, ljósmóðir á
göngudeild mæðraverndar LSH og Anna
Sigríður Vernharðsdóttir, ljósmóðir á fæðing-
ardeild LSH. Valgerður Lísa lauk prófi í ljós-
móðurfræðum frá Háskóla Íslands í febrúar
1998, meistaraprófi frá Háskóla Íslands í
júní 2008 og hóf starfsnám í október 2008.
Hún stefnir á að sækja um sérfræðileyfi á
sviði áhættumeðgönguverndar og eru mark-
mið hennar:
1. Að þróa og efla þjónustu við konur sem
eru eða hafa verið í neyslu vímuefna og/
eða áfengis.
2. Að þróa og efla þjónustu við konur með
geðraskanir.
3. Að þróa og efla þjónustu við konur sem
hafa erfiða upplifun af fæðingu.
4. Að efla sjálfræði og ábyrgð kvenna og
fjölskyldna þeirra í ákvarðanatöku um
umönnun í áhættumeðgöngu.
5. Að styðja við og efla gagnreynda starfs-
hætti og sjálfræði í ljósmóðurstarfinu.
Anna Sigríður lauk prófi í ljósmóð-
urfræðum frá Háskóla Íslands vorið 2003,
meistaraprófi frá University of Sheffield í
ágúst 2008 og hóf starfsnám til sérfræðivið-
urkenningar í desember 2009. Hún stefnir á
að sækja um sérfræðileyfi á sviði fæðing-
arhjálpar. Í starfsnáminu hefur hún lagt
áherslu á notkun ilmkjarnaolía hjá konum
í og eftir fæðingu og bráðatilvik fyrir, í og
eftir fæðingu en frekari áhersluþættir eru
enn í mótun.
Sérfræðingar í hjúkrun og sér–
fræðiljósmæður á Landspítala
Þátttaka í starfsnáminu felur ekki í sér
vilyrði um sérfræðistöðu að því loknu. Í
dag starfa samtals 23 sérfræðingar í hjúkrun
á Landspítala, 11 á lyflækningasviði, 6 á
skurðlækningasviði, 2 á bráðasviði og 4 á
kvenna- og barnasviði (Landspítali, 2010).
Þeir sérfræðingar í hjúkrun sem starfa á
kvenna- og barnasviði, starfa á BUGL og
Barnaspítalanum en engir sérfræðingar í
hjúkrun eða sérfræðiljósmæður starfa á
kvennadeildum Landspítalans í dag (Land-
spítali, 2010). Það er því orðið tímabært er
að setja á stofn sérfræðingstöður ljósmæðra
á Landspítalanum enda eru sérfræðiljós-
mæður vel til þess fallnar til að leiða faglega
þróun og stuðla að uppbyggingu fagsins
innan háskólasjúkrahússins.
Fyrirmyndir
Þegar ný hlutverk eru mótuð er nauðsynlegt
að hafa góðar fyrirmyndir. En hvert getum
við sótt til að finna fyrirmyndir? Þó störf
Bjartsýni, kímnigáfa og þykkur skrápur
Sérfræðistarfsnám og sérfræðiljósmæður á Íslandi
Anna Sigríður Vernharðsdóttir,
ljósmóðir fæðingadeild Landspítala og
klínískur lektor við Hjúkrunarfræðideild HÍ.
Valgerður Lísa Sigurðardóttir, ljósmóðir
göngudeild mæðraverndar Landspítala og
klínískur lektor við Hjúkrunarfræðideild HÍ