Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Page 35

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Page 35
35Ljósmæðrablaðið - júlí 2010 Fréttir úr félagsstarfi Afmælisárið í blíðu og stríðu Á þessu nítugasta og fyrsta afmælisári Ljós- mæðrafélags Íslands hafa ljósmæður haldið upp á tímamótin með margvíslegum hætti; ráðstefnu- og veisluhöldum, bókarútgáfu, heiðrun ljósmæðra svo fátt eitt sé nefnt. Þá voru framleiddir afar skemmtilegir munir, könnur, kaffibrúsar og bolir sem eru í sölu hjá félaginu á viðráðanlegu verði. Rétt er að taka fram að um takmarkað upplag er að ræða en vörurnar eru í sölu hjá félaginu. En sem sagt raritet til framtíðar! Að öðru leyti hefur þetta afmælisár einkennst af hagsmunavörslu. Ljósmæðrafélagið, eins og önnur stéttarfélög, eiga nú fullt í fangi með að verja hagsmuni félagsmanna og skjólstæðinga þeirra, í þeim samdrætti sem allt þjóðfélagið stendur frammi fyrir þessi misserin. Hvað ljósmæður varðar fer þessi hagsmunavarsla bæði fram kjaralega og faglega og því miður blæs ekki byrlega. Ljósmæður hafa á mörgum stofn- unum þurft að gefa eftir af kjörum sínum hvað varðar yfirvinnu. Yfirvinnubann hefur verið í gildi og óunnin yfirvinna og akst- ursgreiðslur afnumdar. Á fjórum stofnunum (SHA, LSH, FSA og Landlæknisembættið) hafa sumar ljósmæður minnkað vinnuhlut- fall sitt tímabundið í þeirri von að komist verði hjá uppsögnum. Þrjár stofnanir til viðbótar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis, Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og Heil- brigðisstofnunin Sauðárkróki) hafa sagt upp vinnuhlutfalli eða stöðum ljósmæðra. Á Sauðárkróki hefur ljósmóður verið sagt upp eftir áratuga þjónustu við stofnunina og bakvaktir hinnar verið lagðar niður. Sem stendur er því engin ljósmóðurþjón- usta fyrir hendi utan skrifstofutíma á svæð- inu frá Akureyri, norður til Ísafjarðar og vestur til Akraness. Ljósmæðrafélagið reynir nú að gera allt sem í þess valdi stendur til þess að tryggja sólarhrings ljósmóðurþjón- ustu á Sauðárkróki og vekja athygli á hversu misskilinn sparnaður það er að leggja niður bakvaktir ljósmæðra á landsbyggðinni. Á Kragasjúkrahúsunum svo kölluðu ríkir enn óvissa um framtíðarfyrirkomulag þjónust- unnar og er hringlandahætti heilbrigðisyf- irvalda engan veginn lokið á því svæði. Á Selfossi var skurðstofuvakt lögð niður um áramótin og nú um mánaðamótin apríl/maí gerðist hið sama í Keflavík. Undir þessum kringumstæðum er mjög mikilvægt að byggja upp og þétta trúnaðar- mannakerfi félagsins. Trúnaðarmenn eru tengiliðir félagsins inn á stofnunum og því miður er það svo að þess eru dæmi að ljós- mæður láti hjá líða að leita aðstoðar eða upplýsingar hjá Ljósmæðrafélaginu. Fái félagið ekki upplýsingar um þær aðgerðir sem framkvæmdar eru á stofnunum, getur það lítið aðhafst. Fátt er þó með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Vegna niðurlagningar skurðstofuvaktar á Selfossi, er þar nú rekin ljósmæðraleidd fæðingardeild með góðum árangri. Leiða má líkum að því að áframhaldandi rekstur hennar, með þeim góða árangri sem þar hefur náðst, verði prófsteinn á samstöðu og sjálfs- traust íslensku ljósmæðrastéttarinnar. Ljós- mæður í Keflavík eru heldur hvergi bangnar og eru staðráðnar í að halda uppi þjónustu í heimabyggð. Hér er auðvitað ekki um nein ofurvísindi að ræða eða algjöra nýjung, því við vitum að ljósmæður hérlendis hafa staðið sig vel í því að velja þær konur sem geta fætt á ljósmæðraleiddum einingum. Fyrir- myndirnar eru til staðar, bæði á Sauðárkróki og á Höfn í Hornafirði. Við þekkjum líka af spurn, vinnuumhverfi formæðra okkar í ljós- mæðrastétt sem þó gátu ekki valið þær konur sem þær treystu til að fæða heima í héraði, enda ekki um aðra þjónustu að velja. Fundir með yfirljósmæðrum Í haust boðaði stjórn Ljósmæðrafélags- ins yfirljósmæður Kragasjúkrahúsanna til umræðna um viðbrögð ljósmæðra og framtíð barneignarþjónustu á þessum stofnunum. Fulltrúi námsbrautar í Ljósmóðurfræði var einnig með á fundunum. Tilgangur þessara funda, sem urðu samtals þrír, var að skapa umræðu, einingu og stuðning milli ljós- mæðra þessara stofnana í þeirri óvissu sem ríkti (og ríkir enn) um framtíð þjónustunnar á þessu svæði. Fundir með heilbrigðisyfirvöldum Ljósmæðrafélagið hefur átt fjölda funda með mismunandi heilbrigðisráðherrum vegna þessa og hefur ítrekað bent á hættuna á brota- kenndum sparnaðartilraunum sé heildar- myndin ekki skoðuð, sem auðveldlega geta leitt til lakari en jafnframt kostnaðarsamari heilbrigðisþjónustu. Gerður var góður rómur Ögmundur Jónasson þiggur góð frá Guðlaugu Einarsdóttur, formanni LMFÍ.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.