Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 36
36 Ljósmæðrablaðið - júlí 2010
að okkar erindi, en því miður virðast sjón-
armið okkar ekki hafa skilað sér sem skyldi
og við höldum baráttunni áfram. Í haust fer
af stað vinna á vegum ráðuneytisins við nýja
heilbrigðisáætlun og hefur Ljósmæðrafélag-
inu verið lofuð aðkoma þar að.
Fundir með ljósmæðrum
Í haust heimsótti stjórn Ljósmæðrafélagsins
allar stærstu stofnanir (LSH, HH, FSA, SHA,
HSS og HSU) og átti gott spjall við ljós-
mæður. Í einni af þeim heimsóknum vaknaði
hugmynd um að halda málstofur fyrir ljós-
mæður á þessum stofnunum og tók fagráð
ljósmæðra á LSH af skarið og hélt málstofur
í samvinnu við Ljósmæðrafélagið og náms-
brautina á þessum stofnunum í vetur. Síðasti
liðurinn í þessari samvinnu var ráðstefna
sem haldin var á alþjóðadegi ljósmæðra
þann 5. maí undir þemanu samskipti og tókst
framúrskarandi vel. Tæplega sextíu ljós-
mæður mættu til að hlusta á erindi sex ljós-
mæðra, auk þess sem Ólöf Ásta Ólafsdóttir
og undirrituð tóku saman efni málstofa vetr-
arins. Fundinum var einnig streymt um fjar-
fundabúnað á netið og enn geta ljósmæður
séð erindin á slóðinni www.straumur.bhm.is
og notað notendanafnið 0505 og lykilorðið
2010 (sem var dagsetning fundarins).
Viðbragðsvaktakerfið
Eitt af þeim málum sem Ljósmæðrafélagið
hefur unnið hörðum höndum að síðasta
árið er samkomulag við LSH varðandi
svokallað viðbragðsvaktakerfi. Viðbragðs-
vaktakerfið var til reynslu í 7 mánuði og
báru báðir samkomulagsaðilar kerfinu
góðan vitnisburð en bentu á það af feng-
inni reynslu, hvernig mætti bæta það. Því
miður var ekki hlustað á tillögur ljósmæðra
að úrbótum á kerfinu, en kannanir félagsins
leiddu í ljós að tæpur helmingur ljósmæðra
á LSH var viðbragðsvaktakerfinu andsnúinn.
Vegna jafnskiptra skoðana, með og á móti
viðbragðsvaktakerfinu, var félaginu vandi á
höndum því ekki var um samning að ræða
sem ljósmæður voru bundnar að, heldur
tilraun. Því var nauðsynlegt að fá afdrátt-
arlausari svör frá félagsmönnum á LSH um
hvernig þeir óskuðu að framganga félagsins
væri gagnvart viðbragðsvaktakerfinu. Þá var
samið um þriggja mánaða tilraunatímabil til
viðbótar og samdi félagið við Landspítalann
um akstursgreiðslur eins og aðrar stéttir
innan stofnunarinnar bjuggu við. Þegar til
framkvæmdar kom í byrjun febrúar, stóð
LSH ekki við gerðan samning; bæði hafði
mönnunarmódeli verið breytt, sem gat haft
bein áhrif á útkallstíðni og neitað var að
greiða akstur umfram ákvæði í miðlægum
kjarasamningum. Ljósmæðrafélagið hélt þá
aðra atkvæðagreiðslu meðal hlutaðeigandi
félagsmanna sem fór fram þann 24. febrúar.
Niðurstaðan var afdráttarlaus, félagsmenn
höfnuðu tilraunaverkefni um viðbragðs-
vaktakerfi. LSH var þegar í stað gert viðvart
um afstöðu félagsins, og litið svo á að LSH
hefði rift samkomulaginu og félagið því laust
allra mála af því.
Kjarabarátta
Nú hafa samningar verið lausir í 14 mánuði,
þ.e. frá marslokum 2009. Starfsemi stétt-
arfélaga hefur einkennst af hagsmunavörslu
og gerir það enn. BHM stóð fyrir kjarakönnun
og kjararáðstefnu í maí þar sem aðildarfélög
bandalagsins stilltu saman strengi sína,
enda þykir það hyggilegast að hafa nána
samvinnu í þessum kjarasamningum. Hart
er sótt að lífeyriskjörum ríkisstarfsmanna
sem um langt skeið hafa verið hluti af launa-
kjörum opinberra starfsmanna. Þannig hafa
lægri laun jafnan verið réttlætt og bætt upp
að nokkru með betri lífeyrisréttindum og er
lífeyrisskuldbinding ríkisins því launaskuld,
eins og segir í samþykkt af aðalfundi BHM
sem haldinn var þann 30. apríl s.l..
Atvinnuleysi ljósmæðra
Enn stöndum við ljósmæður frammi fyrir
atvinnuleysi og eru nú fimm ljósmæður á
atvinnuleysiskrá. Ljósmæðrafélagið er enn
að fóta sig gagnvart þessum nýja vágesti
og miða öll viðbrögð þess að því að styðja
þessar ljósmæður, tryggja réttindi þeirra
og viðhalda klínískri færni, svo halda megi
þessum ljósmæðrum innan ljósmæðrastétt-
arinnar. Forvarnir og önnur viðbrögð á borð
við sérúrræði m.t.t. frekara náms eru enn á
byrjunarreit og hefur stjórn félagsins kallað
eftir samvinnu og samráði með fulltrúum
námsbrautar í Ljósmóðurfræði og LSH varð-
andi vaxandi atvinnuleysi ljósmæðra.
Þær ljósmæður sem verið hafa atvinnu-
lausar í vetur, hafa þó ekki setið auðum
höndum heldur stofnuðu þær fljótlega fyrir-
tækið Björkina sem Ljósmæðrafélagið hefur
m.a. styrkt, bæði í orði og á borði.
Sameining sjóða
Á aðalfundinum 2. maí s.l. voru samþykktar
tillögur sjóðanefndar um sameiningu þriggja
sjóða Ljósmæðrafélagsins (Vísindasjóður,
Minningasjóður og Rannsóknasjóður) í
einn sjóð, Rannsókna- og þróunarsjóð
Ljósmæðrafélags Íslands. Einnig voru
samþykktar úthlutunarreglur fyrir sjóðinn og
stofnskrá hans.
Ný fagdeild
Í haust var ný deild stofnuð innan Ljós-
mæðrafélagsins, fagdeild um heimaþjónustu
ljósmæðra. Heimaþjónusta ljósmæðra er
orðin það viðamikil að þörf var á að tryggja
faglega umræðu um hana innan félags-
ins með formlegri hætti og því var deildin
stofnuð. Fagdeildin hefur í vetur unnið að