Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 14
14 PRESSAN 15. feb 2019 R ússland og Kína standa í ströngu þessa dagana við að styrkja pólitíska, efna- hagslega og hernaðarlega stöðu sína í Afríku. Bandaríkin eru ekki sátt við þetta og saka Kín- verja um að halda afrískum þjóð- um sem gíslum og Rússa um að selja þeim vopn og orku í skiptum fyrir atkvæði þeirra á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þegar Simbabvemenn vöknuðu nýlega upp við að bensín verð í landinu var orðið það hæsta í heimi brutust mikil mótmæli út. Ríkisstjórnin mætti þeim af mikilli hörku. Á sama tíma og lögreglan skaut á mótmælendur sem reyndu að skýla sér bak við brennandi dekk voru þeir sem báru ábyrgð á stöðunni hvergi nærri. Emmerson Mnangagwa forseti var í Kreml til að reyna að kría út lán til handa illa stöddu landi sínu. Þar fundaði hann með Vladimír Pútín Rúss- landsforseta sem hefur átt annríkt undanfarið ár við að byggja upp ný sambönd við afríska leiðtoga. Þessi vinaleit hans hófst í kjölfar innlimunar Rússa á Krímskaga 2014 en í kjölfar hennar fraus sam- bandið við Vesturlönd nánast og hefur ekki þiðnað síðan. Af þess- um sökum töldu Rússar sig þurfa að leita nýrra bandamanna og það hefur nú þegar skilað sér í mörg- um samningum um hernaðarlega samvinnu og hefur styrkt stöðu og áhrif Rússa í Afríku mikið. Þetta hefur komið mörg- um vestrænum sérfræðingum og stjórnmálamönnum á óvart. Rússar hafa ekki sama efnahags- lega bolmagn og Kínverjar en geta hins vegar boðið ódýr vopn, hernaðarráðgjöf og aðgengi að ríkisreknum fyrirtækjum sem hafa mikla reynslu af vinnslu nátt- úruauðlinda. Þetta hefur verið vinsælt og ekki síst meðal ein- ræðisherra í álfunni. Augljósast er þetta í Súdan og Mið-Afríku- lýðveldinu. Í nýlegum mótmæl- um og óróleika í Súdan, þar sem að minnsta kosti 40 manns létust, segja margir fjölmiðlar og leið- togar stjórnarandstöðunnar að þeir hafi séð rússneska málaliða á götum Khartoum. Þeir hafa að- stoðað og þjálfað leyniþjónustu landsins enda er samband Rússa við valdhafa í Súdan náið. Rússneskir blaðamenn myrtir Það voru morð á þremur rúss- neskum blaðamönnum í Mið- Afríkulýðveldinu í sumar sem opnuðu augu heimsins af alvöru upp fyrir sókn Rússa til áhrifa í Afríku. Blaðamennirnir höfðu far- ið til Mið-Afríkulýðveldisins til að rannsaka umsvif rússnesks mála- liðafyrirtækis. En þeir komust ekki langt með rannsókn sína því þeir lentu í fyrirsát og voru skotn- ir til bana. Yfirvöld komust að þeirri niðurstöðu að um ránstil- raun hefði verið að ræða. En áður en þeir voru myrtir hafði lögreglu- maður, með tengsl við Rússa, njósnað um þá, sagði CNN nýlega í heimildamynd. Það leikur enginn vafi á að Rússar hafa aukið hernaðar- lega viðveru sína í Mið-Afríku- lýðveldinu. Þeir sjá til dæmis um þjálfun öryggissveita landsins. Eftir því sem fram hefur kom- ið í fjölmiðlum er hugsanlegt að næsta skref þeirra verði að opna herstöð í landinu. Þeir hafa einnig uppi hugmyndir um að opna birgðastöð í Erítreu, ekki fjarri herstöðvum Kína og Banda- ríkjanna í Djíbútí. En það veldur mörgum einna mestum áhyggj- um núna að Rússar virðast hafa tryggt sér bein áhrif á öryggis- stefnu Mið-Afríkulýðveldisins. Þeir hafa selt stjórnvöldum vopn og skotfæri og staðið fyrir þjálfun öryggissveita. Í Súdan hafa stjórn- völd fengið Rússa til að gegna starfi þjóðaröryggisráðgjafa og líf- verðir forsetans eru að sögn Rúss- ar. Rússar hafa einnig seilst til áhrifa í Austur-Kongó. Því hefur verið varpað fram að Rússar séu að reyna að verða ein- hvers konar hernaðarlegt öryggis- net fyrir Afríkuþjóðir. Þeir lokki leiðtoga frá stuðningi við Vestur- lönd með ódýrum vopnum og tál- sýn um pólitíska tryggð. Kínverjar beina sjónum sínum aðallega að náttúruauðlindum álfunnar og reyna að ná stjórn á þeim. Austur-Kongó er stærsta framleiðsluland kóbalts, sem er notað við framleiðslu raftækja, og vilja Kínverjar gjarnan ná stjórn á þessari auðlind og losa sig við vestræn fyrirtæki. Vita vel af þessu John Bolton, þjóðaröryggisráð- gjafi Donalds Trump Bandaríkja- forseta, gagnrýndi umsvif Rússa og Kínverja í ræðu sem hann hélt í desember. Hann sagði jafnframt að Bandaríkin muni hrinda nýrri áætlun af stað til að vinna gegn því sem Rússar og Kínverjar eru að gera í álfunni. Bolton sagði að ágengni Rússa og Kínverja í Afríku skekki hagvöxt í álfunni og ógni efnahagslegu sjálfstæði ríkja hennar. Hann sakaði Rússa um að selja vopn og orku í skipt- um fyrir atkvæði á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna. Með þessum atkvæðum væri stuðlað að því að einræðisstjórnir sitji að völdum, grafið sé undan friði og öryggi og unnið gegn hagsmunum Afríku- búa að mati Bolton. Hann vandaði Kínverjum heldur ekki kveðjurnar og sagði þá nota mútur, flókna og ógagnsæja samninga og áætlun um að nota skuldir til að halda Afríkuríkjum sem gíslum til að uppfylla drauma sína og kröfur. Hann nefndi Djíbútí og Sambíu sérstaklega til sögunnar. Í Sambíu er mikið af kopar og hefur landið fengið um 10 millj- arða dollara lán hjá Kínverjum til að byggja skóla, flugvelli og aðra innviði. Ef landið getur ekki stað- ið við afborganir af þessum lán- um er þess vænst að Kínverjar taki yfir stjórn orkufyrirtækis landsins. Í Djíbútí er svipað uppi á ten- ingnum. Stjórnvöld hafa fengið há lán hjá Kínverjum og skulda þeim mikið. Árið 2017 opnuðu Kínverjar herstöð í landinu en þetta er fyrsta herstöð þeirra í Afríku og ekki nóg með það því hún er mjög nærri banda- rískri herstöð. En auk þess að leyfa Kínverjum að opna herstöð gætu stjórnvöld í Djíbútí þurft að láta Kínverjum eftir yfirráð yfir gámahöfninni í Doraleh við Rauðahaf, en ef svo fer þá verða Kínverjar allvaldamiklir á því svæði. Svo virðist sem Kenía hafi gengið í sömu gildru. Landið fékk lán hjá Kínverjum til að leggja nýja járnbrautarlínu, en á nú í erf- iðleikum með að greiða af lán- inu og þarf jafnvel að láta Kín- verjum eftir yfirráð yfir höfninni í Mombasa. Bandaríkjamenn geta að vissu leyti litið í eigin barm varðandi þróun mála í Afríku því undanfar- inn áratug, á valdatíma Baracks Obama, horfðu Bandaríkin að- allega á Afríku með öryggismál í huga en höfðu engan hug á fjár- festingum þar. Þetta opnaði leið Kínverja inn í álfuna og það hafa þeir nýtt sér út í ystu æsar og Rússar hafa einnig séð sér leik á borði til að koma ár sinni vel fyrir borð í álfunni. n „Kínverjar beina sjón- um sínum aðallega að náttúruauðlindum álfunnar og reyna að ná stjórn á þeim Rússland og Kína styrkja stöðu sína Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is AFRÍKA ER NÝJASTA VÍGLÍNAN Í VALDAUPPGJÖRI STÓRVELDANNA Lánveitingar Emmerson Mn-angagwa, forseti Zimbabwe og Pútín. Sambía Ríkulegar koparnámur. UMHVERFISVÆNI RUSLAPOKINN www.igf.is SEGÐ U NE I VIÐ P LAST I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.