Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 15. feb 2019
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Hvað varð um Eurovision-stjörnurnar?
Margar af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar
hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá á að
standa stóra sviðinu í Eurovision. Á keppnina
sjálfa horfa um 180 milljón manns ár hvert og
keppnin því kjörið tækifæri til að koma sér á fram-
færi. Það er mismunandi hvernig fólk nýtir þetta
tækifæri og sumir hverfa einfaldlega úr sviðs-
ljósinu eftir keppnina.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Halla Margrét Árnadóttir tók þátt í Eurovision fyrir
Íslands hönd árið 1987 en þá voru Íslendingar enn
í áfalli yfir gengi Gleðibankans. Hún söng angur-
vært lag Valgeirs Guðjónssonar, Hægt og hljótt.
Halla er óperusöngkona og flutti til Ítalíu
nokkrum árum eftir Eurovision. Þar hefur hún
búið í meira en aldarfjórðung og giftist ítölskum
manni. Íslendingar hafa ekki orðið hennar varir,
svo orð sé á gerandi, en hún hefur sungið í stór-
verkum á borð við Tosca og Cavalleria Rusticana.
Ingibjörg Stefánsdóttir var stór stjarna á Íslandi
á tíunda áratugnum. Hún lék meðal annars að-
alhlutverk kvikmyndarinnar Veggfóður: Erótísk
ástarsaga sem út kom árið 1992. Ári síðar flaug
hún til Írlands til að syngja lagið Þá veistu svarið í
Eurovision.
Eftir þetta lék Ingibjörg í kvikmyndinni Nei er
ekkert svar, sem fékk bagalega dóma, og frægð
hennar fölnaði hratt. Síðan þá hefur hún einbeitt
sér að rólegri hlutum, nefnilega jóga. Árið 2005
stofnaði hún stöðina Yoga Shala í Skeifunni og rek-
ur hana enn.
Í óperuhallir Ítalíu
Rólegra líf
Framlag Íslands til Eurovision-keppninnar árið
2000 var lagið Tell me! í flutningi Einars Ágústs
Víðissonar og Telmu Ágústsdóttur. Allir muna eft-
ir Skímó-stjörnunni og hvíta pilsinu hans, en hvað
varð um Telmu?
Telma, sem er dóttir Ágústs Atlasonar úr Ríó
Tríó, var á þessum tíma söngkona hljómsveitar-
innar Spur. Hún varð stjarna á einni nóttu með
þátttökunni, en hvarf jafn harðan úr sviðsljósinu.
Hún starfar nú hjá Isavia en hefur hins vegar ekki
alveg sagt skilið við tónlistina. Til að mynda syngur
hún með Rokkkór Íslands.
Syngur í rokkkórÁrið eftir að Einar Ágúst tók þátt í Eurovision var kominn tími á aðra Skímó-stjörnu, Gunnar Óla-
son. Með honum söng Kristján Gíslason lagið
Birtu eða Angel eins og það hét á sviðinu í Kaup-
mannahöfn. Tvíeykið kallaði sig TwoTricky og
starfaði saman í tvö ár eftir Eurovision.
Margir hafa velt fyrir sér hvað varð um þenn-
an Kristján sem er Sauðkrækingur að uppruna.
Líklegt er að þeir hafi séð hann án þess að átta
sig á því, því að hann hefur sungið í bakröddum í
Eurovision síðan. Fyrst hjá Heru Björk í Ósló árið
2010 og síðan hjá Eyþóri Inga í Malmö þrem-
ur árum síðar. Kristján er grafískur hönnuður og
starfar hjá VÍS.
Færði sig í bakraddirnar
Sumir urðu gáttaðir þegar Íslendingar völdu ekki lagið Í síðasta skipti
í flutningi Friðriks Dórs sem framlag Íslands árið 2015. Í staðinn sigr-
aði lagið Lítil skref, eða Unbroken, flutt af Maríu Ólafsdóttur. Lagið
komst ekki upp úr riðlakeppninni í Vínarborg.
Síðan þá hefur lítið frést af Maríu sem er 25 ára gömul. Hún
hefur ekki sagt skilið við tónlistina og gaf frá sér lagið Hækka
í botn síðasta sumar. Þá hefur hún einnig reynt fyrir sér í leik-
listinni og meðal annars leikið Ronju ræningjadóttur hjá Leik-
félagi Mosfellssveitar.
Lítil skref í tónlist og leiklist