Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 52
52 FÓKUS 15. feb 2019 Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN Hvað varð um Eurovision-stjörnurnar? Margar af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá á að standa stóra sviðinu í Eurovision. Á keppnina sjálfa horfa um 180 milljón manns ár hvert og keppnin því kjörið tækifæri til að koma sér á fram- færi. Það er mismunandi hvernig fólk nýtir þetta tækifæri og sumir hverfa einfaldlega úr sviðs- ljósinu eftir keppnina. Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Halla Margrét Árnadóttir tók þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd árið 1987 en þá voru Íslendingar enn í áfalli yfir gengi Gleðibankans. Hún söng angur- vært lag Valgeirs Guðjónssonar, Hægt og hljótt. Halla er óperusöngkona og flutti til Ítalíu nokkrum árum eftir Eurovision. Þar hefur hún búið í meira en aldarfjórðung og giftist ítölskum manni. Íslendingar hafa ekki orðið hennar varir, svo orð sé á gerandi, en hún hefur sungið í stór- verkum á borð við Tosca og Cavalleria Rusticana. Ingibjörg Stefánsdóttir var stór stjarna á Íslandi á tíunda áratugnum. Hún lék meðal annars að- alhlutverk kvikmyndarinnar Veggfóður: Erótísk ástarsaga sem út kom árið 1992. Ári síðar flaug hún til Írlands til að syngja lagið Þá veistu svarið í Eurovision. Eftir þetta lék Ingibjörg í kvikmyndinni Nei er ekkert svar, sem fékk bagalega dóma, og frægð hennar fölnaði hratt. Síðan þá hefur hún einbeitt sér að rólegri hlutum, nefnilega jóga. Árið 2005 stofnaði hún stöðina Yoga Shala í Skeifunni og rek- ur hana enn. Í óperuhallir Ítalíu Rólegra líf Framlag Íslands til Eurovision-keppninnar árið 2000 var lagið Tell me! í flutningi Einars Ágústs Víðissonar og Telmu Ágústsdóttur. Allir muna eft- ir Skímó-stjörnunni og hvíta pilsinu hans, en hvað varð um Telmu? Telma, sem er dóttir Ágústs Atlasonar úr Ríó Tríó, var á þessum tíma söngkona hljómsveitar- innar Spur. Hún varð stjarna á einni nóttu með þátttökunni, en hvarf jafn harðan úr sviðsljósinu. Hún starfar nú hjá Isavia en hefur hins vegar ekki alveg sagt skilið við tónlistina. Til að mynda syngur hún með Rokkkór Íslands. Syngur í rokkkórÁrið eftir að Einar Ágúst tók þátt í Eurovision var kominn tími á aðra Skímó-stjörnu, Gunnar Óla- son. Með honum söng Kristján Gíslason lagið Birtu eða Angel eins og það hét á sviðinu í Kaup- mannahöfn. Tvíeykið kallaði sig TwoTricky og starfaði saman í tvö ár eftir Eurovision. Margir hafa velt fyrir sér hvað varð um þenn- an Kristján sem er Sauðkrækingur að uppruna. Líklegt er að þeir hafi séð hann án þess að átta sig á því, því að hann hefur sungið í bakröddum í Eurovision síðan. Fyrst hjá Heru Björk í Ósló árið 2010 og síðan hjá Eyþóri Inga í Malmö þrem- ur árum síðar. Kristján er grafískur hönnuður og starfar hjá VÍS. Færði sig í bakraddirnar Sumir urðu gáttaðir þegar Íslendingar völdu ekki lagið Í síðasta skipti í flutningi Friðriks Dórs sem framlag Íslands árið 2015. Í staðinn sigr- aði lagið Lítil skref, eða Unbroken, flutt af Maríu Ólafsdóttur. Lagið komst ekki upp úr riðlakeppninni í Vínarborg. Síðan þá hefur lítið frést af Maríu sem er 25 ára gömul. Hún hefur ekki sagt skilið við tónlistina og gaf frá sér lagið Hækka í botn síðasta sumar. Þá hefur hún einnig reynt fyrir sér í leik- listinni og meðal annars leikið Ronju ræningjadóttur hjá Leik- félagi Mosfellssveitar. Lítil skref í tónlist og leiklist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.