Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 6
6 FÓKUS 15. feb 2019 Sjáðu úrvalið á goddi.is Sauna- og gistitunnur GODDI.ISAuðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550 Sauna- og gistitunnur ásamt viðarkyntum pottum Sjáðu úrvalið á goddi.is Margar gerðir Eigum fjórar stærðir af lokum á lager í gráum og brúnum litum Verð aðeins 58.500 kr. Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is SKILTAGERÐ Ljósakassar Ljósaskil 3D stafir Hönnun Ráðgjöf Uppsetning Tónlistarfólkið sem leikur í Ófærð Nú líður senn að leiðarlokum annarrar þáttaraðar- innar af Ófærð og spennan er farin að magnast. Rjóminn af helstu leikurum þjóðarinnar fer með burðarhlutverk í þáttunum en inni á milli eru óþekktir leikarar sem þó leika ekki síður veigamikil hlutverk. Á dögunum tók DV saman leikarabörnin í Ófærð en núna er komið að „óþekktu leikurunum“. Eitt mikilvægasta atriði sjónvarpsþáttaraðarinnar á sér stað strax á fyrstu mínútum fyrsta þáttar þegar bóndinn Gísli kveikir í sjálfum sér fyrir framan Alþingishúsið. Gísli er leikinn af Þorgeiri Tryggvasyni sem getið hefur sér gott orð sem leikskáld, Ljótur hálfviti og álitsgjafi varðandi allt sem tengist menningu og listum. Þegar Þorgeir, eða Toggi, er ekki að gera eitthvað sjóðheitt tengt listinni þá starfar hann sem hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni Hvíta hús- inu. DV hefur ekki upplýsingar um hvort Toggi muni halda áfram að spreyta sig á hvíta tjaldinu eða hvort ferill hans sé orðinn brunarúst- ir einar. Íris leikur veigamikið hlutverk hárgreiðslukonunnar Hönnu Stínu sem er ekki öll þar sem hún er séð. Íris hefur getið sér gott orð sem söngkona undan- farin ár. Hún kvað sér fyrst hljóðs í sjónvarpsþáttunum X-factor og í kjölfarið opnuðust henni margar dyr sem söng- kona. Í ár syngur hún bakradd- ir í lagi Ívars Daníels „Þú bætir mig“ í undankeppni Eurovison hérlendis. Á þeim vettvangi hefur Íris mikla reynslu en hún söng meðal annar bakrödd hjá Maríu Ólafs í Austurríki árið 2015. Íris venti sínu kvæði í kross árið 2015 og fluttist til New York þar sem hún lærði leiklist við skólann Circle in the Square Theatre. Íslenskir sjón- varps- og kvikmyndaunnend- ur munu því eflaust sjá meira af Írisi í framtíðinni. Búast má við því að æska landsins hafi hrópað upp yfir sig af hrifn- ingu þegar rappararnir Jói Pé (Jóhannes Damian Patreksson) og Króli (Kristinn Óli Haraldsson) birtust skyndilega sem ofbeldisfullir unglingar í áttunda þætti þáttaraðarinnar. Það hefði sennilega orðið raunin ef börn mættu horfa á Ófærð. Króli hafði sig mest í frammi í atriðinu enda er hann þrautreyndur leikari þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur meðal annars stigið á svið í verkunum Óvitar eftir Guð- rúnu Helgadóttur og Fjalla-Eyvindi og Höllu í Þjóðleikhúsinu. Þá lék hann í kvikmyndinni Bjarnfreðarson þegar hann var aðeins 10 ára gamall. JóiPé var síðan svalur í bakgrunni senunnar. Rapparinn og leikstjórinn Bent er vanur maður beggja vegna myndavélanna. Samkvæmt bestu vitund DV er þetta þó í fyrsta skipti sem hann er hvorki að rappa né grínast fyrir fram- an linsuna. Bent lætur ljós sitt skína í þriðju seríu þáttaraðar- innar sem vinnumaðurinn Elliði en hann veitir lögreglu- konunni Hinriku upplýsingar sem reynast mikilvægar í lög- reglurannsókninni. Elva María fer með mun stærra hlutverk í annarri þáttaröðinni sem Þórhildur, dóttir rann- sóknarlögreglumannsins Andra. Elva María lék einnig Þórhildi í fyrri þáttaröðinni en þá deildi hún hlutverkinu með annarri leikkonu. Elva María sló í gegn í sjónvarpsþáttaröð- inni Ísland got Talent árið 2014, þá aðeins ellefu ára gömul, en hún söng sig inn í úrslitaþátt- inn. Þá hefur hún stigið á svið í ófáum leikritum og fór með stórt hlutverk í kvikmyndinni Grafir og bein um árið. Þorgeir Tryggvason Íris Hólm Jónsdóttir JóiPé og Króli Ágúst Bent Sigbertsson Elva María Birgisdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.