Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 6
6 FÓKUS 15. feb 2019
Sjáðu úrvalið á goddi.is
Sauna- og gistitunnur GODDI.ISAuðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550
Sauna- og
gistitunnur ásamt
viðarkyntum pottum
Sjáðu úrvalið
á goddi.is
Margar gerðir
Eigum fjórar stærðir af lokum á
lager í gráum og brúnum litum
Verð aðeins 58.500 kr.
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
Ljósakassar
Ljósaskil
3D stafir
Hönnun
Ráðgjöf
Uppsetning
Tónlistarfólkið sem leikur í Ófærð
Nú líður senn að leiðarlokum annarrar þáttaraðar-
innar af Ófærð og spennan er farin að magnast.
Rjóminn af helstu leikurum þjóðarinnar fer með
burðarhlutverk í þáttunum en inni á milli eru óþekktir
leikarar sem þó leika ekki síður veigamikil hlutverk.
Á dögunum tók DV saman leikarabörnin í Ófærð en
núna er komið að „óþekktu leikurunum“.
Eitt mikilvægasta atriði sjónvarpsþáttaraðarinnar á sér stað strax á
fyrstu mínútum fyrsta þáttar þegar bóndinn Gísli kveikir í sjálfum sér
fyrir framan Alþingishúsið. Gísli er leikinn af Þorgeiri Tryggvasyni
sem getið hefur sér gott orð sem leikskáld, Ljótur hálfviti og álitsgjafi
varðandi allt sem tengist menningu og listum. Þegar Þorgeir, eða
Toggi, er ekki að gera eitthvað sjóðheitt tengt listinni þá starfar hann
sem hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni Hvíta hús-
inu. DV hefur ekki upplýsingar um hvort Toggi muni halda áfram að
spreyta sig á hvíta tjaldinu eða hvort ferill hans sé orðinn brunarúst-
ir einar.
Íris leikur veigamikið hlutverk
hárgreiðslukonunnar Hönnu
Stínu sem er ekki öll þar sem
hún er séð. Íris hefur getið sér
gott orð sem söngkona undan-
farin ár. Hún kvað sér fyrst
hljóðs í sjónvarpsþáttunum
X-factor og í kjölfarið opnuðust
henni margar dyr sem söng-
kona. Í ár syngur hún bakradd-
ir í lagi Ívars Daníels „Þú bætir
mig“ í undankeppni Eurovison
hérlendis. Á þeim vettvangi
hefur Íris mikla reynslu en hún
söng meðal annar bakrödd hjá
Maríu Ólafs í Austurríki árið
2015. Íris venti sínu kvæði í
kross árið 2015 og fluttist til
New York þar sem hún lærði
leiklist við skólann Circle in the
Square Theatre. Íslenskir sjón-
varps- og kvikmyndaunnend-
ur munu því eflaust sjá meira af
Írisi í framtíðinni.
Búast má við því að æska landsins hafi hrópað upp yfir sig af hrifn-
ingu þegar rappararnir Jói Pé (Jóhannes Damian Patreksson) og
Króli (Kristinn Óli Haraldsson) birtust skyndilega sem ofbeldisfullir
unglingar í áttunda þætti þáttaraðarinnar. Það hefði sennilega orðið
raunin ef börn mættu horfa á Ófærð. Króli hafði sig mest í frammi í
atriðinu enda er hann þrautreyndur leikari þrátt fyrir ungan aldur.
Hann hefur meðal annars stigið á svið í verkunum Óvitar eftir Guð-
rúnu Helgadóttur og Fjalla-Eyvindi og Höllu í Þjóðleikhúsinu. Þá lék
hann í kvikmyndinni Bjarnfreðarson þegar hann var aðeins 10 ára
gamall. JóiPé var síðan svalur í bakgrunni senunnar.
Rapparinn og leikstjórinn Bent
er vanur maður beggja vegna
myndavélanna. Samkvæmt
bestu vitund DV er þetta þó í
fyrsta skipti sem hann er hvorki
að rappa né grínast fyrir fram-
an linsuna. Bent lætur ljós sitt
skína í þriðju seríu þáttaraðar-
innar sem vinnumaðurinn
Elliði en hann veitir lögreglu-
konunni Hinriku upplýsingar
sem reynast mikilvægar í lög-
reglurannsókninni.
Elva María fer með mun stærra
hlutverk í annarri þáttaröðinni
sem Þórhildur, dóttir rann-
sóknarlögreglumannsins
Andra. Elva María lék einnig
Þórhildi í fyrri þáttaröðinni en
þá deildi hún hlutverkinu með
annarri leikkonu. Elva María
sló í gegn í sjónvarpsþáttaröð-
inni Ísland got Talent árið 2014,
þá aðeins ellefu ára gömul, en
hún söng sig inn í úrslitaþátt-
inn. Þá hefur hún stigið á svið
í ófáum leikritum og fór með
stórt hlutverk í kvikmyndinni
Grafir og bein um árið.
Þorgeir Tryggvason
Íris Hólm
Jónsdóttir
JóiPé og Króli
Ágúst Bent
Sigbertsson
Elva María
Birgisdóttir