Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 33
Heimili og viðhald 15. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
Protektor-þakrennur eru þýsk hágæðavara en þær beygl-ast hvorki né ryðga. Þær eru
framleiddar úr pvc-plasti og láta
ekki á sjá í rysjóttri íslenskri veðr-
áttu. Þessar viðhaldsfríu þakrennur
þola UV-geisla og eru höggþoln-
ar, þær hafa verið þolprófaðar.
Rennurnar eru framleiddar sam-
kvæmt DIN-staðli og passa því inn
í flest gömul rennustæði.
Þ.Þorgrímsson hefur selt Prot-
ektor þakrennur í um tíu ár en þessi
vara hefur verið á markaðnum í
Þýskalandi í um þrjá áratugi. „Þær
líta bara út eins og nýmálaðar
hvítar rennur og eru alltaf fallegar
að sjá,“ segir Þorgrímur Þór Þor-
grímsson hjá Þ.Þorgrímsson.
Protektor-rennurnar eru til sölu í
verslun fyrirtækisins að Ármúla 29.
Verslunin er opin virka daga frá kl.
8 til 18. Protektor-þakrennur eru á
hagstæðu verði og ávallt til á lager.
Laufgildrur koma í veg fyrir
skemmdir
„Við erum með sýningarrennu hér
á staðnum og því geta viðskipta-
vinir séð alla fylgihluti. Þar ber
hæst laufgildrur sem eru mikið
þarfaþing. Það er hvimleitt vanda-
mál varðandi þakrennur í dag að
þær fyllast af laufi sem fýkur á
haustin. Svo liggja laufin í skjóli
rennunnar sem fyllist af þeim, síð-
an frýs í þessu og skemmdir verða
á rennunni, blikkrennur beyglast og
plastrennur brotna. En laufgildran
liggur á rennunni eins og net yfir
henni, þar lendir laufið, það þornar
í fyrstu sólarupprás og fýkur síðan
burtu. Rennan er því alltaf hrein og
fín,“ segir Þorgrímur.
Laufgildrurnar er hægt að kaupa
sér fyrir Protektor-rennur en þær
er geta mögulega passað á aðrar
þakrennur með sama sniði og Pro-
tektor-rennurnar eru með. Er gildr-
an þá einfaldlega klippt til svo hún
passi á viðkomandi þakrennu en
breidd á rennum er mismunandi.
Sjá nánar á vefsíðunni thco.
is. Komdu við í Þ.Þorgrímsson að
Ármúla 29, fáðu faglega ráðgjöf
og nánari upplýsingar um fram-
úrskarandi Protektor-þakrennur og
laufgildrur. n
Viðhaldsfríar þakrennur og laufgildrur
sem koma í veg fyrir skemmdir