Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 26
Heimili og viðhald 15. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ NÚS/NÚS: Heiðarlegt handverk og náttúrulúxus frá Marokkó Ein skemmtilegasta verslun á Íslandi, NúsNús, býður upp á gull-fallegar vörur frá Marokkó. Versl- unin er fjölskyldufyrirtæki í orðsins fyllstu merkingu. „Við erum í samstarfi við dóttur okkar, Birtu og Othman, mann- inn hennar, sem búa í Marokkó með tvenna tvíbura. Við kynntumst handverki Marokkómanna í gegnum þau og okkur datt í hug að Íslendingar kynnu einnig að meta þessa fallegu muni,“ segir Sigríður Þóra. Með tvíburana á bakinu Samstarfið byrjaði fyrir þremur árum þegar Birta og Othman ferðuðust um Marokkó þvera og endilanga með eldri tvíburastelpurnar á bakinu. Þau fóru á milli framleiðenda og listamanna og fylgdust með þeim búa til fallega hand- gerða muni, sem einkenna marokkóska menningu. Við kolféllum fyrir hand- bragðinu, gerðum bein viðskipti við framleiðendurna og hófum innflutning á þessum dásamlegu vörum.“ Hamingjuverð! „Allar vörur í versluninni eru handunnar úr náttúruefnum og það er dásamlegt að vera umkringdur svona fallegum og náttúrulegum vörum alla daga,“ segir Sigríður Þóra. „Okkar metnaður liggur í því að versla beint við framleiðendur. Það tryggir að handverksfólkið fái sann- gjarnt verð fyrir vöruna. Þar sem við verslum flestallt milliliðalaust og leggjum eins lítið á og hægt er, þá náum við að halda verðinu sanngjörnu. Við köllum þetta „hamingjuverð“ því það er enginn að okra á neinum.“ 100% náttúrulegar snyrtivörur „Við flytjum einnig inn náttúrulegar olíur og krem frá Marokkó. Til að mynda 100% hreina arganolíu (Argania spinosa). Sjálf nota ég hana óspart enda má skipta henni út fyrir svo margar aðrar snyrti- vörur. Hún virkar sem andlitshreinsir, hárnæring, andlitskrem, líkamskrem og margt annað. Einnig erum við með 100% hreint sheasmjör, unnið úr hnetu sheatrésins (Vitellaria paradoxa). Hrein guðsgjöf fyrir þurra húð og exem.“ Að vökva húðina með kaktusfræjaolíu „Svo má ekki gleyma kaktusfræjaolíunni. Hún er unnin úr fræjum kaktustegundar (Opuntia ficus indica) sem vex í Marokkó. Það er magnað að kaktusfræjaolían inniheldur 150% meira E-vítamín en t.d. arganolía og því hentar hún einstaklega vel á húð sem er að eldast. Þegar þú berð olíuna á þig færðu þá tilfinningu að þú sért að vökva húðina. Þetta er kannski ekki skrítið þegar maður hugsar til þess að kaktus er planta sem þarf að þola sífellda þurrka. Því þarf hann að vera sérlega rakadrægur.“ Nánari upplýsingar og vefverslun má finna á nusnus.is Instagram: nusnusihus Facebook: nusnusihus Funahöfði 17a, 110 Rvk. Sími: 566-8682 Netpóstur: nusnus@nusnus.is n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.