Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 10
10 15. feb 2019FRÉTTIR Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu. Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur. Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig. Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570 VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR VILL LÖGGJÖF UM HERTARA EFTIRLIT MEÐ BARNANÍÐINGUM EFTIR AFPLÁNUN n Lögreglan mætti fara inn á heimili n Netnotkun skoðuð S ilja Dögg Gunnarsdóttir hefur í tvígang lagt fram frumvarp um hert eftirlit með dæmdum barnaníð­ ingum. Frumvarpið hefur ekki enn fengið umræðu en sam­ kvæmt því myndu þeir sem tald­ ir eru hættulegir umhverfi sínu þurfa að gangast undir vissar kvaðir, svo sem bann við búsetu þar sem börn eru, eftirliti með netnotkun þeirra og eftirliti lög­ reglu með heimili þeirra. Barna­ verndaryfirvöldum á hverjum stað yrði gert viðvart um búferla­ flutninga þeirra og kerfið því bet­ ur í stakk búið til að sinna eftir­ litinu. DV ræddi við Silju um frumvarpið og stöðuna í mála­ flokknum. Lagði fram frumvarp í tvígang Silja Dögg hefur setið á Alþingi fyr­ ir Framsóknarflokkinn síðan 2013. Hún lagði fyrst fram frumvarp um breytingu á barnaverndarlögum og almennum hegningarlögum vorið 2018. Þegar það komst ekki á dagskrá lagði hún það aftur fram um haustið. Hún segir að ástæðan hafi verið síendurtekinn frétta­ flutningur um dæmda barnaníðinga sem halda áfram að brjóta af sér eftir að afplánun lýkur. Hún segir: „Menn eru dæmdir, þeir sitja inni, svo fara þeir aftur út. Í sumum tilvikum er vitað að þeir muni brjóta af sér aftur. Eða það eru að minnsta kosti yfirgnæf­ andi líkur á því. Ég hugsaði hvað væri til ráða og var þá bent á leið sem hefur verið farin í Bretlandi með góðum árangri. Ég ákvað því að nota þessa hugmynd en auð­ vitað þyrfti að aðlaga hana að ís­ lensku umhverfi.“ Þurfum að hugsa út fyrir rammann Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að barnaverndarnefndir og aðrir viðkomandi aðilar verði upplýst­ ir þegar dæmdur barnaníðingur flytur búferlum. Það er ef hann flytur til Akureyrar, svo dæmi sé tekið, yrðu stofnanir þar í bæ látin vita. „Þetta gengur út á að tengja kerfin betur saman. Barnavernd, löggæsluna, dómstólana og alla sem koma að þessum málum. En það yrðu ekki hengd upp plaggöt með myndum af brotamönnum á staðnum. Þetta snýst um sam­ vinnu. Núna er þetta þannig að eftir afplánun láta þessir menn sig hverfa, skipta um nafn og flytja til annarra sveitarfélaga. Þannig kaupa þeir sér tíma, halda áfram að brjóta af sér og eyði­ leggja fjölda fólks, fyrir lífstíð jafn­ vel. Það sem ég er að leggja fram í þessu frumvarpi er kannski ekki eina rétta leiðin en þetta er tilraun til þess að byrja einhvers staðar. Að taka umræðuna og reyna að finna leið til að koma í veg fyrir þessi brot.“ Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu eru um það bil tíu prósent kynferðisafbrotamanna talin líkleg til þess að brjóta af sér á nýjan leik. „Meginreglan er sú að þegar menn hljóta dóm og afplána þá séu þeir búnir að gera upp skuldina við samfélagið. En þegar við erum með þessa tegund af brotamönnum þá verðum við að hugsa út fyrir rammann. Við náum ekki árangri með núver­ andi leiðum og náum ekki að vernda borgarana.“ Ef einstaklingur hefur brotið af sér gegn barni og er talinn líklegur síbrotamaður samkvæmt áhættu­ mati yrði hægt að gera eftirfarandi öryggisráðstafanir eftir að afplán­ un lýkur í þann tíma sem nemur hámarksrefsingu við brotinu. 1. Brotamanni yrði gert að gangast undir meðferð hjá heilbrigðisstarfsfólki. 2. Honum væri skylt að mæta í viðtöl hjá félagsþjónustu. 3. Netnotkun og samfélags­ miðlanotkun hans væri und­ ir eftirliti. 4. Hann mætti ekki neyta áfengis eða annarra vímu­ efna. 5. Lögreglan hefði eftirlit með heimili hans. 6. Hann mætti ekki búa á heimili þar sem börn væru í skemmri eða lengri tíma. Viðurlögin við brotum á þess­ um öryggisráðstöfunum yrðu allt að tveggja ára fangelsi. Valfrelsi vandamál Áhættumat er framkvæmt í dag en Silja segir vandamálið vera að það sé valkvætt. Brotamaðurinn sjálfur ákveður hvort hann undirgengst það. Ef frumvarpið færi í gegn yrði áhættumat skylda og framkvæmt af fagaðilum á afplánunartímabil­ inu. „Það er ekki verið að tala um að allir kynferðisbrotamenn undir­ gangist kvaðir að afplánun lok­ inni. Þetta er fámennur hópur en hættulegur.“ Getur betrunarvist í fangelsi gert eitthvað fyrir þennan hóp? „Það eru til meðferðir fyrir barnaníðinga, lyfjavönun, sam­ talsmeðferð og annað. En svo eru aðrir sem segja að þetta sé ólækn­ andi. Það sé hins vegar hægt að halda þessu niðri, ef viðkomandi er samstarfsfús og vill berjast gegn þessu. Vandinn er að þessar með­ ferðir eru valkvæðar.“ Ekki nornaveiðar Í greinargerð með frumvarpinu er til dæmis gert ráð fyrir að dæmd­ ir barnaníðingar geti ekki skipt um nafn til að fela sig. Silja segir að þetta sé flókið mál og geti stangast á einhvern hátt á við persónuvernd. „Þetta frumvarp brýtur grunn­ hugmyndafræði réttarkerfisins sem við að öllu jöfnu göngum út frá. Menn sem falla í þennan hóp verða undir ákveðnu eftirliti eftir að af­ plánun er lokið. En þetta snýst ekki um nornaveiðar, að hús þessara manna séu merkt og þar fram eftir götum.“ Í sumum löndum eru upp­ lýsingar um dæmda kynferðis­ brotamenn aðgengilegar, til dæm­ is á vefsíðum, með nafni og mynd brotamanns. Hér á Íslandi hafa borgararnir tekið sig saman og komið á legg vefsíðum og sam­ félagsmiðlasíðum þar sem birtar eru myndir, nöfn og heimilisföng dæmdra barnaníðinga sem lokið hafa afplánun. Eins og fjallað hef­ ur verið um lagði Sigríður Á. And­ ersen dómsmálaráðherra fram frumvarp um breytt fyrirkomulag á birtingu dóma. Yrðu þá dómar í kynferðisbrotamálum ekki birtir opinberlega á héraðsdómstólastigi sem gengur í berhögg við vilja al­ mennings um að fá upplýsingar um þessa brotamenn. Silja telur að frumvarp Sigríðar verði ekki lagt fram, að minnsta kosti ekki í vetur. Kerfið ekki í stakk búið Telur þú að ef þetta frumvarp eða annað sambærilegt næði fram að ganga, þá yrði minni ótti í samfé- laginu? „Já, og ég held að fólk vilji sjá eitt­ hvað gert. Umfjöllun fjölmiðla síð­ ustu mánuði og ár sýnir að kerfið er veikt. Það eru sömu einstaklingarn­ ir sem brjóta af sér árum og áratug­ um saman. Áður fyrr var ekki talað um svona hluti og fólk ekki upplýst um hættuna. Í dag er umræðan til staðar en kerfið ekki í stakk búið til að taka á þessu.“ Silja segir að það muni taka stjórnmálamenn tíma að setja sig inn í málið. Þrátt fyrir að hún leggi þetta til ein standi þingflokkur Framsóknarflokksins með henni. „Ég vona að þetta komi til um­ ræðu í vetur, en ef ekki þá legg ég það aftur fram á næsta þingi. Best væri ef ráðuneytin sem þetta heyr­ ir undir, félagsmála og dómsmála, legðu fram frumvarp því þá tæki það skemmri tíma.“ n Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.