Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 10
10 15. feb 2019FRÉTTIR
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
VILL LÖGGJÖF UM HERTARA EFTIRLIT
MEÐ BARNANÍÐINGUM EFTIR AFPLÁNUN
n Lögreglan mætti fara inn á heimili n Netnotkun skoðuð
S
ilja Dögg Gunnarsdóttir
hefur í tvígang lagt fram
frumvarp um hert eftirlit
með dæmdum barnaníð
ingum. Frumvarpið hefur ekki
enn fengið umræðu en sam
kvæmt því myndu þeir sem tald
ir eru hættulegir umhverfi sínu
þurfa að gangast undir vissar
kvaðir, svo sem bann við búsetu
þar sem börn eru, eftirliti með
netnotkun þeirra og eftirliti lög
reglu með heimili þeirra. Barna
verndaryfirvöldum á hverjum
stað yrði gert viðvart um búferla
flutninga þeirra og kerfið því bet
ur í stakk búið til að sinna eftir
litinu. DV ræddi við Silju um
frumvarpið og stöðuna í mála
flokknum.
Lagði fram frumvarp í tvígang
Silja Dögg hefur setið á Alþingi fyr
ir Framsóknarflokkinn síðan 2013.
Hún lagði fyrst fram frumvarp um
breytingu á barnaverndarlögum
og almennum hegningarlögum
vorið 2018. Þegar það komst ekki
á dagskrá lagði hún það aftur fram
um haustið. Hún segir að ástæðan
hafi verið síendurtekinn frétta
flutningur um dæmda
barnaníðinga sem
halda áfram að
brjóta af sér eftir
að afplánun lýkur.
Hún segir:
„Menn eru
dæmdir, þeir
sitja inni,
svo fara
þeir aftur
út. Í sumum tilvikum er vitað að
þeir muni brjóta af sér aftur. Eða
það eru að minnsta kosti yfirgnæf
andi líkur á því. Ég hugsaði hvað
væri til ráða og var þá bent á leið
sem hefur verið farin í Bretlandi
með góðum árangri. Ég ákvað því
að nota þessa hugmynd en auð
vitað þyrfti að aðlaga hana að ís
lensku umhverfi.“
Þurfum að hugsa út fyrir
rammann
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að
barnaverndarnefndir og aðrir
viðkomandi aðilar verði upplýst
ir þegar dæmdur barnaníðingur
flytur búferlum. Það er ef hann
flytur til Akureyrar, svo dæmi sé
tekið, yrðu stofnanir þar í bæ látin
vita.
„Þetta gengur út á að tengja
kerfin betur saman. Barnavernd,
löggæsluna, dómstólana og alla
sem koma að þessum málum. En
það yrðu ekki hengd upp plaggöt
með myndum af brotamönnum
á staðnum. Þetta snýst um sam
vinnu. Núna er þetta þannig að
eftir afplánun láta þessir menn
sig hverfa, skipta um nafn og
flytja til annarra sveitarfélaga.
Þannig kaupa þeir sér tíma, halda
áfram að brjóta af sér og eyði
leggja fjölda fólks, fyrir lífstíð jafn
vel. Það sem ég er að leggja fram
í þessu frumvarpi er kannski ekki
eina rétta leiðin en þetta er tilraun
til þess að byrja einhvers staðar.
Að taka umræðuna og reyna að
finna leið til að koma í veg fyrir
þessi brot.“
Samkvæmt greinargerð með
frumvarpinu eru um það bil tíu
prósent kynferðisafbrotamanna
talin líkleg til þess að brjóta af sér
á nýjan leik.
„Meginreglan er sú að þegar
menn hljóta dóm og afplána
þá séu þeir búnir að gera upp
skuldina við samfélagið. En þegar
við erum með þessa tegund af
brotamönnum þá verðum við
að hugsa út fyrir rammann. Við
náum ekki árangri með núver
andi leiðum og náum ekki að
vernda borgarana.“
Ef einstaklingur hefur brotið af
sér gegn barni og er talinn líklegur
síbrotamaður samkvæmt áhættu
mati yrði hægt að gera eftirfarandi
öryggisráðstafanir eftir að afplán
un lýkur í þann tíma sem nemur
hámarksrefsingu við brotinu.
1. Brotamanni yrði gert að
gangast undir meðferð hjá
heilbrigðisstarfsfólki.
2. Honum væri skylt að mæta
í viðtöl hjá félagsþjónustu.
3. Netnotkun og samfélags
miðlanotkun hans væri und
ir eftirliti.
4. Hann mætti ekki neyta
áfengis eða annarra vímu
efna.
5. Lögreglan hefði eftirlit
með heimili hans.
6. Hann mætti ekki búa á
heimili þar sem börn væru í
skemmri eða lengri tíma.
Viðurlögin við brotum á þess
um öryggisráðstöfunum yrðu allt
að tveggja ára fangelsi.
Valfrelsi vandamál
Áhættumat er framkvæmt í dag en
Silja segir vandamálið vera að það
sé valkvætt. Brotamaðurinn sjálfur
ákveður hvort hann undirgengst
það. Ef frumvarpið færi í gegn yrði
áhættumat skylda og framkvæmt
af fagaðilum á afplánunartímabil
inu.
„Það er ekki verið að tala um að
allir kynferðisbrotamenn undir
gangist kvaðir að afplánun lok
inni. Þetta er fámennur hópur en
hættulegur.“
Getur betrunarvist í fangelsi
gert eitthvað fyrir þennan hóp?
„Það eru til meðferðir fyrir
barnaníðinga, lyfjavönun, sam
talsmeðferð og annað. En svo eru
aðrir sem segja að þetta sé ólækn
andi. Það sé hins vegar hægt að
halda þessu niðri, ef viðkomandi
er samstarfsfús og vill berjast gegn
þessu. Vandinn er að þessar með
ferðir eru valkvæðar.“
Ekki nornaveiðar
Í greinargerð með frumvarpinu er
til dæmis gert ráð fyrir að dæmd
ir barnaníðingar geti ekki skipt um
nafn til að fela sig. Silja segir að
þetta sé flókið mál og geti stangast
á einhvern hátt á við persónuvernd.
„Þetta frumvarp brýtur grunn
hugmyndafræði réttarkerfisins sem
við að öllu jöfnu göngum út frá.
Menn sem falla í þennan hóp verða
undir ákveðnu eftirliti eftir að af
plánun er lokið. En þetta snýst ekki
um nornaveiðar, að hús þessara
manna séu merkt og þar fram eftir
götum.“
Í sumum löndum eru upp
lýsingar um dæmda kynferðis
brotamenn aðgengilegar, til dæm
is á vefsíðum, með nafni og mynd
brotamanns. Hér á Íslandi hafa
borgararnir tekið sig saman og
komið á legg vefsíðum og sam
félagsmiðlasíðum þar sem birtar
eru myndir, nöfn og heimilisföng
dæmdra barnaníðinga sem lokið
hafa afplánun. Eins og fjallað hef
ur verið um lagði Sigríður Á. And
ersen dómsmálaráðherra fram
frumvarp um breytt fyrirkomulag
á birtingu dóma. Yrðu þá dómar
í kynferðisbrotamálum ekki birtir
opinberlega á héraðsdómstólastigi
sem gengur í berhögg við vilja al
mennings um að fá upplýsingar
um þessa brotamenn. Silja telur
að frumvarp Sigríðar verði ekki lagt
fram, að minnsta kosti ekki í vetur.
Kerfið ekki í stakk búið
Telur þú að ef þetta frumvarp eða
annað sambærilegt næði fram að
ganga, þá yrði minni ótti í samfé-
laginu?
„Já, og ég held að fólk vilji sjá eitt
hvað gert. Umfjöllun fjölmiðla síð
ustu mánuði og ár sýnir að kerfið er
veikt. Það eru sömu einstaklingarn
ir sem brjóta af sér árum og áratug
um saman. Áður fyrr var ekki talað
um svona hluti og fólk ekki upplýst
um hættuna. Í dag er umræðan til
staðar en kerfið ekki í stakk búið til
að taka á þessu.“
Silja segir að það muni taka
stjórnmálamenn tíma að setja sig
inn í málið. Þrátt fyrir að hún leggi
þetta til ein standi þingflokkur
Framsóknarflokksins með henni.
„Ég vona að þetta komi til um
ræðu í vetur, en ef ekki þá legg ég
það aftur fram á næsta þingi. Best
væri ef ráðuneytin sem þetta heyr
ir undir, félagsmála og dómsmála,
legðu fram frumvarp því þá tæki
það skemmri tíma.“ n
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is