Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 4
4 8. febrúar 2019FRÉTTIR
Engin tvö tígrisdýr hafa eins rendur. Húð
þeirra er röndótt eins og feldurinn.
Af ferðamönnum á Íslandi eru Þjóðverjar
fjölmennastir á skemmtiferðaskipum en
Bretar með flugvélum.
Kókómjólkin frá MS var eitt sinn seld
í grænum fernum. Brúnu fernurnar
fengust ekki vegna kaupskipaverk-
falls.
Silfurreynirinn á horni Aðalstrætis
og Kirkjustrætis er elsta núlifandi
tréð í Reykjavík. Flutt frá Danmörku
til Íslands árið 1884 og gróðursett af
Georg Schierbeck landlækni.
Hnéskeljar manna breytast úr
brjóski í bein við þriggja ára aldurinn.
Það er
staðreynd að…
Gott á íslensku tannlæknabófana
E
kki fer Svarthöfði oft til
útlanda. En það gerðist í
síðustu viku þegar ferðinni
var heitið til sjálfrar Búda
pest í Ungverjalandi til að fá nýja
tönn. Var Svarthöfði búinn að
vera með helvíti leiðinlega tann
pínu síðan í apríl. Bölvanlegan
verk sem leiddi upp í augu, stokk
bólgið hold og var hann farinn að
spýta blóði eins og hnefaleika
maður.
Eftir erfitt sumar og um það bil
1.200 verkjatöflur fór Svarthöfði
loksins til tannsa. Sagði hann að
ný tönn myndi kosta ríflega 110
þúsund krónur. 110 þúsund krón
ur fyrir eina tönn! Svarthöfði var
við það að kýla manninn fyrir
ósvífnina en stillti sig og gekk á
dyr. Þá var Svarthöfða sagt að það
kostaði 15 þúsund krónur fyrir
það að eitt að skoða tönnina og
segja hvað ný tönn kostaði. Það er
ekki skrýtið að þessir bófar tróni
á toppum tekjublaðanna. Vitandi
það að heilbrigðistryggingakerfið
skilgreini tennur ekki sem hluta af
mannslíkamanum.
Nei, frekar lét Svarthöfði sér
það lynda að bryðja töflur. Alveg
þangað til hægðatregðan fór að
segja til sín. Hitti þá Svarthöfði
gamlan vin á förnum vegi, sem
hafði svipaða sögu að segja en
fann lausnina austan við járn
tjaldið. Í Búdapest kosta tannvið
gerðir ekki nema brot af því sem
þær gera hér á klakanum.
Fannst Svarthöfða þetta þjóð
ráð og auk þess góð hefnd í garð
gervallrar íslensku tannlækna
stéttarinnar. Fór Svarthöfði strax á
netið og fann íslenskan umboðs
aðila sem lofaði ódýrum aðgerð
um í Búdapest, frírri skoðun og
ókeypis nótt á hóteli. Fann svo flug
á 30 þúsund kall! … nei, það voru
víst 45 þúsund þegar kom að því
að borga. Hagstæðasta flugið var
vikudvöl og því þurfti Svarthöfði
að kaupa sex nætur á hóteli til
viðbótar, það er 51 þúsund kall.
En þetta verður skemmtileg ferð.
Flogið var út og Svarthöfði
settur í stólinn. Verðið á tann
skiptingunni var aðeins 40 þús
und! En læknarnir mæltu með að
skipt yrði um fjórar tennur til við
bótar, og Svarthöfði fór vitaskuld
eftir því ráði. Endaði reikningur
inn í tæpum 200 þúsund krón
um. Ferðin var líka ekkert svo
skemmtileg þar sem Svarthöfði
lá upp á hóteli með saumað sár
í kjaftinum og bunka af verkja
lyfjum. Rúsínan í pylsuendan
um er síðan sú að Svarthöfði fær
að koma aftur eftir þrjá mánuði
til að láta klára verkið og borga
meira. n
Svarthöfði
Hver er
hún
n Vinnur mikið
með súrar lausnir
n 26 ára og býr
í Mosfellsbænum
n Gaf út metsölubók
árið 2018
n Sagði nýlega skilið við Snapchat
n Hefur áður tekið sér hlé frá
Snapchat
SVAR: SÓLRÚN DIEGO
Þetta kostuðu listaverkin:
300 MILLJÓNA VERK Í
HJARTA BORGARINNAR
A
llt varð vitlaust á dögunum
þegar tilkynnt var um að
listaverkið Pálmatré, eftir
þýsku listakonuna Karin
Sanders, myndi prýða torg í nýrri
Vogabyggð í Reykjavík. Ástæðan
var kostnaðurinn við verkið sem er
áætlaður um 140 milljónir króna
miðað við núverandi gengi.
Flestir virðast þó á því að list í
almenningsrýmum sé eftirsóknar
verð og auki lífsgæði íbúa. DV tók
því saman kostnað við nokkur
þekkt listaverk. Lesendur geta svo
metið hvort fjárútlátin hafi verið
þess virði eða ekki.
Árið 1973 var stórt mósaík
listaverk Gerðar Helgadóttur af
hjúpað á Tollhúsinu við Tryggva
götu. Flöturinn undir verkið hafði
þá staðið ómúraður í nokkur ár
til þess að stjórnvöld áttuðu sig
á að veita þyrfti fé í að gera götu
myndina meira aðlaðandi. Gerður
vann verkið í samstarfi við frægt
þýskt listaverkafyrirtæki, Bræð
urna Oidtmann. Alls var verkið
um tvö ár í vinnslu en verksamn
ingurinn hljóðaði upp á 170 þús
und þýsk mörk á þeim tíma. Á
núvirði eru það rúmlega 300 millj
ónir króna.
Í tilefni af 204 ára afmæli
Reykjavíkurborgar, þann 18. ágúst
1990, var listaverkið Sólfarið eftir
Jón Gunnar Árnason afhjúpað.
Heildarkostnaður við verkið var
25 milljónir króna á sínum tíma
sem þótt hátt verð. Þar af kostaði
stálsmíðin 8 milljónir króna. Núna
myndi kostnaðurinn við listaverk
ið vera 79 milljónir króna.
Árið 1991 reis listaverkið
Regnbogi eftir listakonuna Rúrí
við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Nokkrum árum fyrr hafði verkið
orðið hlutskarpast í umfangsmik
illi listasamkeppni ásamt lista
verkinu Þotuhreiðrið eftir Magnús
Tómasson. Verk Rúríar kostaði
38 milljónir króna á sínum tíma.
Á núvirði gera það 112 milljónir
króna.
Árið 2007 var Friðarsúlan (e.
Imagine Peace Tower) eftir lista
konuna Yoko Ono afhjúpuð í Við
ey. Verkið er tendrað á afmælisdegi
Johns Lennon þann 9. október ár
hvert og lýsir upp kvöldhimininn
til og með 8. desember en þann
dag dó John Lennon árið 1980.
Kostnaðurinn við verkið var tæp
lega 8 milljónir króna á sínum
tíma. Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg hefur verkið kost
að skattgreiðendur rúmlega 40
milljónir króna. Stærsti kostnað
urinn er heimildamynd um lista
konuna og verkið sem unnin var
árin 2007–2009. Kostnaðurinn við
myndina var 4,8 milljónir króna. n
Friðarsúlan í Viðey
Listaverkið Regnbogi
eftir Rúrí
MYND: HANNA/DV
MYND: HANNA/DV
Sólfarið
Dregur að sér fjölda ferðamanna.
MYND: HANNA/DV
Mósaíklistaverk
Listakonan Gerður Helgadóttir á heiðurinn af því.