Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 8
8 8. febrúar 2019FRÉTTIR ÞETTA ERU ALRÆMDUSTU BARNANÍÐINGAR ÍSLANDS n Fórnarlömbin skipta hundruðum n Lítil sem engin úrræði í boði fyrir síbrotamenn sem níðast á börnum n Eiga í engin hús að venda Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is M ikill skortur er á sér­ úrræðum fyrir dæmda kynferðisbrotamenn á Íslandi. Lítið er um eftirfylgni eftir að þeir koma út úr fangelsum og blasir því við að þeir muni brjóta af sér á ný. Kári Stefánsson, forstjóri Ís­ lenskrar erfðagreiningar, segir í aðsendri grein í Fréttablaðinu í október 2017 að engin lækn­ ing sé til fyrir barnaníðinga: „Rannsóknir sýna líka að þeir sem þjást af fíkn í börn læknast ekki, aldrei. Börnum stafar því alltaf hætta af þeim sem hafa leitað á börn. Það verður því að hafa í huga að þegar níðingun­ um er sleppt úr haldi er verið að taka áhættu á kostnað barna og við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að sú hætta verði ekki að lífstíðar­ lemstrun á saklausri barnssál.“ Þeir einstaklingar sem tald­ ir eru upp hér eiga það sam­ eiginlegt að hafa síendurtekið brotið kynferðislega á börnum og ungmennum, og í sumum tilfellum eftir að hafa afplán­ að fangelsisdóm. Þeir sæta of­ sóknum og ofbeldi á götum úti og hafa sumir gripið til þess ráðs að skipta um nafn. Þetta eru nokkrir af alræmdustu barnaníðingum Íslands. n Brotasaga Karls Vignis Þorsteins­ sonar nær áratugi aftur í tímann en hann hefur viðurkennt opin­ berlega að hafa misnotað allt að fimmtíu börn. Talið er þolendur séu mun fleiri. DV fjallaði ítarlega um sögu Karls Vignis árið 2007. Á níunda áratugnum starfaði hann sem yfir maður töskubera á Hótel Sögu, þar sem flestir undir­ manna hans voru drengir á ung­ lingsaldri. Eftir nokkur ár var honum vikið úr starfi á hótelinu þegar upp komst um kynferðis­ brot hans gegn drengjunum. Þá vandi Karl Vignir komur sínar um árabil á Kumbaravog, upp­ tökuheimili í eigu ríkisins. Þar gaf hann drengjum sælgæti áður en hann misnotaði þá bak við lukt­ ar dyr. Þá var hann lengi vel starfs­ maður á Sólheimum í Grímsnesi, en þaðan var honum vikið úr starfi vegna gruns um kynferðis­ brot. Karl Vignir var einnig safn­ aðarmeðlimur í Kirkju sjöunda dags aðventista. Starf hans þar fór á sama veg og í Grímsnesi en árið 1997 var honum vikið úr söfnuðinum eftir að stúlka innan kirkjunnar sagði frá því að Karl Vignir hefði ítrekað misnotað hana kynferðislega. Það mál kom aldrei til kasta lögreglu. Karl Vignir var allra vörum eft­ ir umfjöllun og afhjúpun Kast­ ljóss árin 2012 og 2013. Í þættin­ um gekkst Karl við brotum gegn tugum barna og ungmenna og var þá áratuga löng þöggun rofin. Lögreglurannsókn hófst í kjöl­ farið og var Karl Vignir að lokum handtekinn. Karl Vignir aðstoð­ aði um árabil við umsjón opinna húsa í Áskirkju. Þegar mál hans kom til kasta lögreglu var honum gert að hætta starfi í söfnuðinum. Haustið 2013 var Karl Vignir loks dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn þremur mönnum en brotin voru framin á sjö ára tímabili, frá 1995 til 2012. Hlaut hann sjö ára fangelsisdóm. DV greindi frá því í júlí á sein­ asta ári að Karl Vignir væri laus úr fangelsi, eftir að hafa afplán­ að fimm ár af sjö, og væri búinn að koma sér fyrir í lítilli íbúð við Hlemm. Ágúst Magnússon hlaut fimm ára fangelsisdóm árið 2004 fyrir gróf og ítrekuð kynferðisbrot gegn sex ungum drengjum. Einnig fyr ir að hafa í vörslu sinni mynd­ bands spól ur, DVD­mynddiska, ljós mynd ir og hreyfi mynda skrár sem sýna börn á kyn ferðis leg an og klám feng inn hátt. Á nokkr um mynd bands spól um sást Ágúst í kyn ferðis leg um at höfn um með ung menn um. Í dómi héraðsdóms kem­ ur fram að Ágúst hafi á „skipu­ leg an, yf ir vegaðan hátt og með blekk ing um, tælt og/ eða mis­ notað dreng ina sem flest ir höfðu litla sem enga reynslu á kyn lífs­ sviðinu.“ Í skýrslu sálfræðings kom fram að Ágúst væri haldinn alvar­ legri barnagirnd og með þráláta kynóra, og réði ekki við þessar kenndir sínar. Það væri því hætta á því að hann myndi endurtaka brot sín. Ríkissaksóknari fór á sín­ um fram á að Ágúst yrði beittur öryggisráðstöfunum að refsivist lokinni og vistaður á stofnun. Dómari féllst hins vegar ekki þá kröfu. Í fréttum fjölmiðla af mál­ inu kom meðal annars fram að Ágúst hefði verið virkur í starfi KFUM á árum áður og hlut hann viðurnefnið Gústi guðsmaður á meðal samfanga sinna á Litla­ Hrauni. Veturinn 2006 fékk Ágúst leyfi fangelsismálastofnunar til að flytja af Litla­Hrauni á áfanga­ heimilið Vernd, þar sem hann hafði aðgang að tölvu með nettengingu. Á meðan hann dvaldi á Vernd gekk hann í gildru fréttaskýringaþáttarins Kompáss þegar hann gerði tilraun til þess að nálgast þrettán ára stúlku í gegnum vefsíðuna einkamál.is. Afhjúpun Kompáss leiddi meðal annars til þess að hætt var að vista á Vernd kynferðisglæpamenn sem hafa brotið gegn börnum. Ágúst fékk reynslulausn eftir að hafa afplánað þrjú ár af fimm ára dómi en þurfti að tilkynna reglulega um ferðir sínar og var einnig meinað að koma nálægt ákveðnum stöðum þar sem börn voru til staðar. Samkvæmt Þjóðskrá er Ágúst nú kominn með nýtt nafn og heitir Jan T. Bergland Fanneyj­ arson. Samkvæmt heimildum DV er hann búsettur erlendis. Eitt þekktasta kynferðisbrotamál síðari ára er mál fyrrverandi lög­ mannsins Roberts Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreiðarsson. Í september 2007 hlaut Róbert Árni þriggja ára fangelsi fyrir kyn­ ferðisbrot gegn fjórum stúlkum á aldrinum fjórtán til fimmtán ára. Hann var einnig sviptur lög­ mannsréttindum. DV greindi ítar lega frá málinu á sínum tíma en brotin framdi Róbert Árni á tímabilinu frá júlí 2005 til vor­ mánaða 2006, meðal annars þegar ein stúlknanna var í helgarleyfi frá meðferðarheimili fyrir unglinga. Róbert Árni var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa haft beint og óbeint samræði við eina stúlk­ una fimmtán sinnum gegn um það bil tuttugu þúsund króna greiðslu fyrir hvert skipti. Þá voru gerðar upptækar myndbands­ spólur og tölvur sem innihéldu barnaklám. Þar var ekki sakfellt að fullu. Við húsleit á heimili hans fundust meðal annars tveir GSM­ ­símar. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að símarnir hefðu báðir verið í notkun með fjórum símanúmer­ um, sem öll voru óskráð nema eitt sem skráð var á fjárfestingarfélag í eigu hans. Símana notaði Róbert Árni til að hafa samskipti við stúlk­ urnar undir ólíkum nöfnum, með­ al annars sem Árni og Robbi. Þá þótti sannað að Róbert Árni hefði haft tölvupóstfangið bestur2000@ hotmail.com, en hann tældi stúlk­ urnar á MSN­spjallforritinu undir fölsku nafni sem sautján ára strák­ ur að nafni Rikki. Í fórum Róberts Árna fannst minnisbók sem innihélt 335 kven­ mannsnöfn með bæði símanúm­ erum og póstföngum. Við nöfn­ in höfðu verið skráðar tölur sem líklegt er að hafi vísað til aldurs stúlknanna. Róbert hélt áfram brotum sín­ um eftir að honum var kunn­ ugt um að hann væri grunaður um kynferðisbrot gagnvart einu fórnar lambinu. Þá hélt Róbert réttindum sínum sem lögmaður í þau tvö ár sem málið var rannsak­ að og kom til dæmis oft í Barnahús vegna mála sem voru í rannsókn. Það vakti gífurleg viðbrögð meðal þjóðarinnar í júní 2017 þegar ljóst var að Róbert hefði fengið uppreist æru frá innanríkis­ ráðuneytinu í september 2016, og væri heimilt að starfa á ný sem lögmaður. Tvö fórnarlamba hans stigu fram í kjölfarið, þær Glódís Tara og Nína Rún Bergsdóttir, og greindu frá hversu miklum sárs­ auka og skaða það hefði valdið þeim. Þá lagði önnur kona, Anna Katrín Snorradóttir, fram kæru hjá lögreglu gegn Róbert, fyrir sams konar brot og hann hafði hlotið dóm fyrir tíu árum áður. Í umfjöllun DV í júní 2017 kom fram að Róbert Árni væri fluttur af landi brott. Með 335 nöfn skráð Fórnarlömbin minnst 50 talsins Braut af sér á meðan hann dvaldi á Vernd www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL 101 Afmælisútgáfa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.