Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 10
10 08. febrúar 2019FRÉTTIR - ERLENT
M
argar popúlistahreyfingar
í Evrópu eiga sér draum
um að beint lýðræði verði í
meira mæli notað við ýms-
ar ákvarðanir og því þrýsta þær sífellt
meira á um þjóðaratkvæðagreiðsl-
ur. Emmanuel Macron Frakklands-
forseti varar við hættunni sem hann
telur stafa af þjóðaratkvæðagreiðsl-
um og tekur Brexit sem dæmi.
„Brexit-atkvæðagreiðslan í
Bretlandi ætti að vera aðvörun til
evrópskra stjórnmálamanna um að
það er hættulegt að efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um mikilvæg mál,“
sagði hann nýlega en hann og ríkis-
stjórn hans hafa undanfarið þurft
að glíma við mótmæli Gulu vestan-
na sem vilja einmitt taka upp lýð-
ræðislegra ferli þegar ákvarðanir eru
teknar til að gefa almenningi færi á
að tjá sig um málefni líðandi stund-
ar.
„Áhrif voru höfð á þjóðar-
atkvæðagreiðsluna utan frá af því
sem við köllum nú falsfréttir. Fyrst
segir maður hvað sem er og síðan
segir maður að nú verðið þið að
bjarga ykkur sjálf,“ sagði Macron á
löngum fundum með 600 frönskum
borgar- og bæjarstjórum nýlega.
„Í stuttu máli sagt er logið að
fólki. Það tók ákvörðun í þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem er ekki hægt að
standa við. Síðan er bara að óska
þjóðkjörnum fulltrúum góðs gengis
við að hrinda óframkvæmanlegum
hlut í framkvæmd.“
Orð forsetans koma í miðri um-
ræðu um hvort evrópsk lýðræðisríki
eigi oftar að viðhafa þjóðaratkvæða-
greiðslu. Það eru einmitt popúlista-
flokkar, sem eru víða á mikilli sigl-
ingu, sem hafa sett fram kröfur um
slíkt. Eitt af því sem popúlistaflokkar
á báðum vængjum stjórnmálanna
eiga sameiginlegt er að þeir vilja
koma á meira beinu lýðræði.
En valdhafar í Evrópu eru ekki
ýkja hrifnir af þjóðaratkvæða-
greiðslum. Þeir hallast flestir að full-
trúalýðræði og telja að aðeins eigi
að grípa til þjóðaratkvæðagreiðslu
þegar gera á breytingar á stjórnar-
skrá og kannski í einstökum öðrum
tilfellum, en annars eigi að forðast
þær.
Í Hollandi voru lög um leiðbein-
andi þjóðaratkvæðagreiðslur felld
úr gildi á síðasta ári af ótta við að
þær gætu grafið undan lýðræðinu.
Áhyggjur Hollendinga, sem og ým-
issa annarra, eru að í framtíðinni
muni myndast pólitískur þrýstingur
um þjóðaratkvæðagreiðslu um að-
ild Hollendinga að ESB.
Í rannsókn bandarísku stofn-
unarinnar Pew Institute, sem var
birt í október 2017, um afstöðu
Evrópubúa til lýðræðis kom fram
að helmingur aðspurðra í tíu ríkj-
um sagðist ósáttur við hvernig lýð-
ræðið virkar í heimalandi þeirra.
Um 70 prósent aðspurðra sögðu að
þjóðaratkvæðagreiðslur væru frá-
bært verkfæri í lýðræðisríkjum.
Fimmstjörnuhreyfingin
og Gulu vestin
Fimmstjörnuhreyfingin á Ítalíu
hefur gert beint lýðræði að einu
helsta stefnumáli sínu og talsmenn
Gulu vestanna í Frakklandi telja að
þjóðaratkvæðagreiðslur séu áhrifa-
ríkt vopn gegn hinni pólitísku elítu í
París. Eins og Gulu vestin á Fimm-
stjörnuhreyfingin rætur að rekja til
mótmælagöngu á landsbyggðinni,
árið 2009. Það var áður en hreyf-
ingin fór að nota samfélagsmiðla
til að vekja athygli á sér og áður en
hún hélt innreið sína í borgir og
bæi. Luigi Di Maio, leiðtogi Fimm-
stjörnuhreyfingarinnar, styður Gulu
vestin, og segir samkvæmt umfjöll-
un Le Monde að „hreyfingar, sem
styðja beint lýðræði, séu að skapa
nýja Evrópu“.
En það er rétt að hafa í huga að
í Ungverjalandi og Póllandi, þar
sem popúlistahreyfingar eru við
völd, eru ekki fleiri þjóðaratkvæða-
greiðslur en áður eða annars
staðar. Það má því álykta að þegar
popúlistahreyfingar eru komnar til
valda og sitja öruggar á valdastóli
þá sé engin hvatning til að efna til
þjóðar atkvæðagreiðslna.
Ef tekið er mið af orðum Macron
þá er að heyra að hann vilji halda
þjóðaratkvæðagreiðslum í algjöru
lágmarki. Aðrir franskir stjórn-
málamenn hafa varað við sviss-
neska módelinu, en í Sviss eru
umdeild mál send í bindandi
þjóðar atkvæðagreiðslur ef ákveðið
hlutfall kjósenda krefst þess.
Frönsku stjórnmálamennirnir
segja að hætta sé á að þjóðar-
atkvæðagreiðslurnar fari að snúast
um eitthvað allt annað en lagt var
upp með. En þeir segja einnig að
það sé hættulegt að láta þjóðar-
atkvæðagreiðslu ráða úrslitum í við-
kvæmum málum á borð við mál-
efni innflytjenda, dauða refsingar,
fóstur eyðingar, hjónabönd samkyn-
hneigðra eða aðild að ESB.
Frakkar hafa tvisvar efnt til
þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að
ESB og stjórnvöld vilja ekki fara í þá
þriðju. Sú kenning hefur verið sett
fram að hin pólitíska elíta í Frakk-
landi treysti kjósendum ekki, þeir
séu taldir vera þröngsýnir bænd-
ur. Aðrir eru algjörlega á öndverð-
um meiði og segja að hugmyndir
um þjóðaratkvæðagreiðslur séu
„hættulegar“. Þær séu tálsýn sem
endi með miklum vonbrigðum í
framtíðinni eða séu bara hreint eitur
fyrir lýðræðissamfélögin í Evrópu. n
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
POPÚLISTAHREYFINGAR ÞRÝSTA SÍFELLT Á
UM FLEIRI ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLUR
n Macron Frakklandsforseti varar við hættunni
Gulu vestin Hafa verið áberandi í
Frakklandi undanfarið.„ Brexit-atkvæða-
greiðslan í Bretlandi
ætti að vera aðvörun til
evrópskra stjórnmálamanna
Luigi Di Maio Leiðtogi ítölsku
Fimmstjörnuhreyfingarinnar.