Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 28
Öryggi og hugbúnaður 8. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ ISR MATRIX: Eru starfsmenn þínir öruggir? Margir starfa við krefjandi aðstæður þar sem oft geta komið upp erfið og jafnvel hættuleg mál. ISR Matrix er al- þjóðlegt öryggisfyrirtæki og hefur verið í samstarfi við lögregludeildir, fangelsi og öryggisfyrirtæki víðs vegar um heiminn sl. 23 ár. ISR hefur einnig þjálfað fjölda lögreglu- manna, öryggisvarða og dyravarða á Íslandi. ISR á Íslandi hefur einnig verið í samstarfi við Reykjavíkur- borg, ríkisstofnanir og einkafyrir- tæki. ISR á Íslandi býður upp á tvenns konar námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir sem trygg ja aukið starfs- öryggi starfsmanna fyrirtækja og stofnana. ISR PM öryggiskerfi ISR PM – er öryggiskerfi. Starfs- menn læra að yfirbuga einstak- linga sem eru hættulegir sjálfum sér og öðrum. Kerfið snýst um að aðgerðin fari fram á faglegan hátt. Starfsmenn læra að vinna saman og einnig er lögð mikil áhersla á að mótaðilinn slasist ekki. Kerfið er sem sagt fullkomlega öruggt fyrir þann sem beitir því og þann sem er beittur því. ISR CLUTCH neyðarvarnarkerfi ISR CLUTCH – er neyðarvarnar- kerfi. Starfsmenn læra að koma sér úr aðstæðum þar sem lífi eða heilsu þeirra er ógnað af hættuleg- um einstaklingi eða einstaklingum. Starfsmenn læra því harðari tækni sem getur skipt sköpum í erfiðari aðstæðum. ISR CAT neyðarvörn fyrir konur ISR Matrix býður einnig upp nám- skeið fyrir einstaklinga og eru þau auglýst í hverjum mánuði inni á vefsíðu og Facebook-síðu ISR Matrix Iceland. Ásamt fyrrnefndu námskeiðunum ISR PM og CLUTCH býður ISR Matrix einnig upp á námskeið eins og ISR CAT – neyðarvörn fyrir konur. Hildur María Sævarsdóttir er ein þeirra sem hafa sótt ISR CAT námskeið og mælir eindregið með því: „Ég þekki enga konu sem ekki hefur einhvern tíma haft ástæðu til að óttast um öryggi sitt. Okkur er kennt að vera stilltar og prúðar sem börn og svo þegar við erum orðnar fullorðnar heyrum við að það sé mjög hættulegt að fara niður í miðbæ. Og við verðum smeykar. En við heyrum aldrei um mikilvægi þess að konur læri að verja sig. Úti á götu er enginn að fara að spila eftir einhverjum reglum. Veruleikinn getur verið grimmur og villtur og við þurfum að vera undirbúnar fyrir það.“ ISR Matrix er staðsett á Stór- höfða 17 en einnig er boðið upp á að setja upp námskeið og æfingar inni á vinnustöðum. Þjálfarar telja það mikilvægt að kenna starfsfólki að bregðast við erfiðum aðstæð- um í sínu rétta starfsumhverfi. Frekari upplýsingar er að finna á isrmatrix.is Einnig er hægt að senda fyrir- spurnir í tölvupósti á isrmatrix@ isrmatrix.is eða hringja í síma: 862-0808. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.